Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar 12. júní 2026 09:33 Skólinn er kominn í frí og sumir foreldrar hugsa með skelfingu til daganna sem framundan eru. Af hverju eru fríin úr skólanum svona erfið? Rifrildi geta orðið tíðari, erfiðara er að fá börnin til að fylgja fyrirmælum og skjánotkun getur aukist. Þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvað sé í gangi. Hegðun mótast af aðstæðum Hegðun barna er ekki tilviljanakennd. Hún mótast af aðstæðum og því sem gerist í kjölfar hennar. Þegar daglegt skipulag breytist, eins og gerist í skólafríi, breytast líka þær aðstæður sem halda hegðun gangandi. Hegðun barnsins er í fullkomnu samræmi við umhverfið sem það er í. Skoðum hvað hefur breyst. Í skólanum ríkir yfirleitt skýr rútína. Börnin vita hvenær þau eiga að mæta, hvað þau eiga að gera og hvaða reglur gilda. Í fríum minnkar þessi fyrirsjáanleiki. Sveigjanleiki eykst, sem er jákvætt að mörgu leyti, en á sama tíma verður óljósara hvað barnið á af sér að gera, hvenær eða til hvers er ætlast af því. Þegar börn vita ekki hvað eigi að gera eða hvað sé ætlast til af þeim geta líkur á krefjandi hegðun aukist. Óvissa um hvað taki við næst getur gert sumum börnum erfiðara fyrir að stýra eigin hegðun og taka frumkvæði. Í skólanum er dagurinn skipulagður. Kennarar skipta verkefnum niður, hjálpa nemendum að hefja þau og fylgja þeim eftir. Flest börn fá því reglulega leiðsögn um hvað þau eigi að gera næst. Í skólafríum hverfur hluti af þessum stuðningi og sum börn eiga þá erfiðara með að skipuleggja sig sjálf. Þá getur verið gott fyrir foreldra að velta fyrir sér hvaða verkefni eða viðfangsefni börnin hafi yfir daginn. Ef lítið er um skipulagðar athafnir eða skýr verkefni geta sum börn átt erfiðara með að koma sér af stað, kvartanir aukist og oftar þurft að grípa inn í. Sum börn leita meira eftir athygli, önnur draga sig í hlé og enn önnur verja meiri tíma í skjánotkun. Þetta er eðlilegt viðbragð við breyttum aðstæðum, ekki merki um að eitthvað sé að fara úrskeiðis. Ekki öll börn eiga auðvelt með að skipuleggja sig sjálf eða finna sér viðfangsefni þegar mikið frelsi er til staðar. Þá þurfum við foreldrar að stíga inn í og setja upp skipulag með barninu. Hvað er hægt að gera? Í fyrsta lagi skiptir máli að halda ákveðnum ramma. Misjafnt er hversu stífur ramminn þarf að vera. Fyrir sum börn gæti hentað að setja dagskrá klukkustund fyrir klukkustund. Fyrir önnur þarf ekki að vera nákvæm tímasetning heldur er nóg að vita í grófum dráttum hvernig dagurinn lítur út. Einföld atriði eins og að vakna á hefðbundnum tíma og að hafa máltíðir á svipuðum tíma geta skipt miklu máli. Í öðru lagi er gagnlegt að gera væntingar og kröfur skýrar. Segjum skýrt hvað á að gera og hvaða kröfur gilda. „Fyrst klárum við að taka til í herberginu, svo máttu fara í tölvuna.“ Skýr fyrirmæli draga úr árekstrum og gera börnum auðveldara að ná árangri. Í þriðja lagi er mikilvægt að veita athygli þegar vel gengur. Við gleymum stundum að taka eftir því þegar börn hegða sér eins og við viljum. Stutt og lýsandi hrós, eins og „mér finnst frábært hvernig þú byrjaðir strax að taka til“ getur aukið líkur á að jákvæð hegðun endurtaki sig. Þegar rútína minnkar getur skjánotkun aukist. Mikilvægt er að skoða ekki aðeins hversu miklum tíma barnið ver fyrir framan skjá heldur einnig hvernig sá tími er nýttur. Sum börn eiga í góðum samskiptum við vini í gegnum tölvuleiki eða nota skjái á skapandi hátt. Á sama tíma er mikilvægt að skjánotkun komi ekki í stað svefns, hreyfingar, fjölskyldusamveru eða annarra mikilvægra athafna. Skýr rammi og fyrirsjáanleiki geta hjálpað fjölskyldunni að finna jafnvægi sem hentar henni. Setjum skjátímann inn í rútínuna, ásamt öllu hinu, í skólafríum og einnig þegar skólinn starfar. Það getur einnig verið gagnlegt að hugsa fram í tímann. Ef vitað er að ákveðnar aðstæður eru krefjandi, til dæmis þegar skjátími lýkur, er hægt að undirbúa barnið og ákveða fyrirfram hvað taki við. Það getur verið skynsamleg leið fyrir barn sem á erfitt með að hætta í tölvunni og sýnir þá jafnvel krefjandi hegðun að hafa verkefni sem barninu þykir skemmtilegt í stað þess að fara úr skemmtilegum skjátíma í verkefni sem barninu þykir erfitt eða leiðinlegt. Skólafrí þurfa ekki að verða átakatími. Með fyrirsjáanleika, skýrum væntingum og jákvæðri athygli getum við skapað aðstæður þar sem bæði börn og foreldrar geta notið frísins. Höfundur er klínískur atferlisfræðingur (ICE-ABA) og grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar