Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar 11. júní 2026 19:03 Nú stendur fyrir dyrum stækkun fimm verknámsskóla víðs vegar um land. Framkvæmdir eru komnar vel á veg í Breiðholti og fram undan eru verkefni á Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og Sauðárkróki. Þá verður hafist handa við byggingu á nýju þrjátíu þúsund fermetra húsnæði fyrir Tækniskólann árið 2028. Öll þessi uppbygging er til marks um áherslur Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um eflingu verknáms á næstu árum. Um átta milljarðar króna fara í þessi verkefni að hálfu ríkis og sveitarfélaga. Metnaðarfull fjármálaáætlun Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi er gert ráð fyrir verulegu viðbótarfjármagni til uppbyggingar framhaldsskólanna en getið var um í gildandi fjármálaáætlun. Framlög verða aukin um 1,3 milljarða króna á næsta ári miðað við fyrirhugaðar áætlanir. Framlögin verða síðan aukin um 1,1 milljarð árið 2028 frá því sem til stóð að gera í gildandi fjármálaáætlun.. Samtals gerir fjármálaáætlunin sem þingið er nú með til umfjöllunar ráð fyrir að 2,4 milljarða aukningu á fjármagni til framhaldsskólastigsins á árunum 2027-2030 borið saman við gildandi fjármálaáætlun. Það er því verið að styrkja framhaldsskólana í þeirri áætlun sem nú liggur fyrir Alþingi. Það er alls ekki verið að veikja þá fjárhagslega eins og ætla mætti af neikvæðum málflutningi stjórnarandstöðunnar um skólamál. Breytingar til lækkunar frá og með árinu 2028 skýrast fyrst og fremst af því að þá verður farið að sjá fyrir endann á fyrrgreindum framkvæmdum og áætlaðri fjölgun nemenda. Auk þess er gert ráð fyrir að rekstrarfjárheimildir framhaldsskóla á hvern nemenda verði sambærilegar árið 2031 og þær verða á næsta ári. Þessu til viðbótar settu ríkisstjórnarflokkarnir 1,1 milljarð króna aukalega til framhaldsskólanna í síðustu fjáraukalögum í desember síðast liðnum. Með þessari hækkun fjármuna tókst að fullfjármagna fjölgun nemenda sem hafði raungerst síðast liðið haust. Ríkisstjórn stefnir að því að skila hallalausum fjárlögum árið 2027. Það skilar auknu svigrúmi í fjárhag ríkissjóðs þegar til lengri tíma er litið. Hallalaus fjárlög bæta hag allra landsmanna, minnka verðbólguþrýsting og stuðla þannig að lækkun vaxta. Það er mikilvægt að sem breiðust samstaða skapist um þetta mikilvæga markmið. Höfundur er formaður fjárlaganefndar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurjón Þórðarson Framhaldsskólar Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hafa íslensku lífeyrissjóðirnir staðið sig nógu vel? Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Pólitísk ábyrgð hlýtur að hafa afleiðingar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar Alþingi er beygt í duftið Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Sjá meira
Nú stendur fyrir dyrum stækkun fimm verknámsskóla víðs vegar um land. Framkvæmdir eru komnar vel á veg í Breiðholti og fram undan eru verkefni á Suðurnesjum, Akureyri, Ísafirði og Sauðárkróki. Þá verður hafist handa við byggingu á nýju þrjátíu þúsund fermetra húsnæði fyrir Tækniskólann árið 2028. Öll þessi uppbygging er til marks um áherslur Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra um eflingu verknáms á næstu árum. Um átta milljarðar króna fara í þessi verkefni að hálfu ríkis og sveitarfélaga. Metnaðarfull fjármálaáætlun Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem nú er til umræðu á Alþingi er gert ráð fyrir verulegu viðbótarfjármagni til uppbyggingar framhaldsskólanna en getið var um í gildandi fjármálaáætlun. Framlög verða aukin um 1,3 milljarða króna á næsta ári miðað við fyrirhugaðar áætlanir. Framlögin verða síðan aukin um 1,1 milljarð árið 2028 frá því sem til stóð að gera í gildandi fjármálaáætlun.. Samtals gerir fjármálaáætlunin sem þingið er nú með til umfjöllunar ráð fyrir að 2,4 milljarða aukningu á fjármagni til framhaldsskólastigsins á árunum 2027-2030 borið saman við gildandi fjármálaáætlun. Það er því verið að styrkja framhaldsskólana í þeirri áætlun sem nú liggur fyrir Alþingi. Það er alls ekki verið að veikja þá fjárhagslega eins og ætla mætti af neikvæðum málflutningi stjórnarandstöðunnar um skólamál. Breytingar til lækkunar frá og með árinu 2028 skýrast fyrst og fremst af því að þá verður farið að sjá fyrir endann á fyrrgreindum framkvæmdum og áætlaðri fjölgun nemenda. Auk þess er gert ráð fyrir að rekstrarfjárheimildir framhaldsskóla á hvern nemenda verði sambærilegar árið 2031 og þær verða á næsta ári. Þessu til viðbótar settu ríkisstjórnarflokkarnir 1,1 milljarð króna aukalega til framhaldsskólanna í síðustu fjáraukalögum í desember síðast liðnum. Með þessari hækkun fjármuna tókst að fullfjármagna fjölgun nemenda sem hafði raungerst síðast liðið haust. Ríkisstjórn stefnir að því að skila hallalausum fjárlögum árið 2027. Það skilar auknu svigrúmi í fjárhag ríkissjóðs þegar til lengri tíma er litið. Hallalaus fjárlög bæta hag allra landsmanna, minnka verðbólguþrýsting og stuðla þannig að lækkun vaxta. Það er mikilvægt að sem breiðust samstaða skapist um þetta mikilvæga markmið. Höfundur er formaður fjárlaganefndar.
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar