Körfubolti

Ár­mann fær sæti í Bónus deildinni og fram­lengir við Jónínu

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Jónína Þórdís og stöllur í Ármanni munu spila aftur í Bónus deildinni á næsta tímabili þrátt fyrir fall.
Jónína Þórdís og stöllur í Ármanni munu spila aftur í Bónus deildinni á næsta tímabili þrátt fyrir fall. vísir

Ármann fær sætið sem Hamar/Þór skilur eftir sig í Bónus deild kvenna í körfubolta. Samhliða þessum gleðitíðindum fyrir félagið hafa Ármenningar framlengt við lykilleikmann liðsins, Jónínu Þórdísi Karlsdóttur.

Hamar/Þór ákvað að slíta samstarfi félaganna í gær. Þór mun sækjast eftir sæti í 1. deild kvenna en óvíst er hvað verður um lið Hamars.

Hamar/Þór hélt sínu sæti í úrvalsdeildinni á síðasta tímabili eftir umspil við 1. deildarlið Fjölnis.

Ármann féll úr Bónus deildinni í vor en bauðst sætið sem Hamar/Þór skildi eftir laust.

Ármann þáði boðið og hefur tilkynnt KKÍ að félagið muni tefla fram liði í Bónus deildinni á næsta tímabili. Bæði karla- og kvennalið Ármanns munu því taka annað tímabil í efstu deild.

Jónína Þórdís Karlsdóttir hefur líka ákveðið að taka slaginn með Ármanni á næsta tímabili.

Jónína hefur verið lykilleikmaður hjá liðinu síðustu ár og var valin besti leikmaður 1. deildarinnar í þrígang áður en Ármann komst upp.

Karl faðir hennar Guðlaugsson hefur hins vegar hætt störfum, bæði sem þjálfari kvennaliðsins og stjórnarformaður körfuknattleiksdeildar Ármanns.

Soffía Einarsdóttir tók við formennsku af Karli og Friðrik Hrafn Jóhannsson tók við þjálfun liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×