Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Árni Sæberg skrifar 1. júní 2026 14:43 Björn Ragnarsson er forstjóri Icelandia. ICELANDIA Ferðaþjónusturisinn Icelandia, sem hét áður Kynnisferðir, hagnaðist um 916 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður ársins 2024 nam 497 milljónum og jókst því um 84 prósent á milli ára. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 15 milljörðum á síðasta ári, samanborið við 12,3 milljarða árið áður, og jukust þar af leiðandi um 22 prósent á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, EBITDA, nam 2,6 milljörðum en var 1,6 milljarðar árið áður. EBITDA jókst því um 55 prósent á milli áranna 2024 og 2025.
Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Icelandia sé fjölbreytt ferðaþjónustufyrirtæki með áherslu á ferðir og upplifanir undir vörumerkjum á borð við Reykjavik Excursions, Flybus, Icelandic Mountain Guides og Dive.is. Icelandia sinni einnig almenningssamgöngum og flutningum. Forstjórinn ánægður Haft er eftir Birni Ragnarssyni, forstjóra Icelandia, að hann sé ánægður með árangur ársins og þróunina milli ára. „Síðasta ár var í samræmi við þau markmið og áætlanir sem við settum okkur. Við höfum lagt mikla áherslu á tækniframfarir og sjálfvirknivæðingu sem hefur gefið okkur betri yfirsýn og gert okkur kleift að taka skjótar og upplýstar ákvarðanir. Vöxturinn er ánægjulegur og við horfum af bjartsýni til framtíðar.“ Vöxtur félagsins hafi bæði skýrst af innri og ytri vexti en á árinu hafi verið gengið frá kaupum á dagsferðahluta Hópbíla með kaupum á Reykjavík Sightseeing og Gray Line Iceland. Í október 2025 hafi samningur um sölu bílaleigurekstrar dótturfélagsins Bílaleigu Kynnisferða undir vörumerkinu Enterprise rent-a-car til Okkar bílaleigu ehf. verið undirritaður. Afhending rekstursins hafi farið fram í upphafi árs 2026. Að sögn Björns er þetta þáttur í stefnumótun samstæðunnar um að einbeita sér að kjarna ferðaþjónustunnar. Sameinast öðrum risa Í nóvember 2025 samkomulag um sameiningu Icelandia og Arctic Adventures, tveggja stærstu ferðaþjónustufyrirtækja landsins, verið undirritað. Samkomulagið sé gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Sa„Við erum spennt fyrir þessum möguleika og trúum því að sameining okkar muni skila enn betri þjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi,“ er haft eftir Birni.
Ferðaþjónusta Uppgjör og ársreikningar Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Sjá meira