Við ætlum að vinna keppnina um unga fólkið Óðinn Svan Óðinsson skrifar 10. maí 2026 00:01 Það hefur aldrei verið auðveldara að taka sig upp og flytja búferlum. Í dag er Akureyri ekki bara í samkeppni við önnur sveitarfélög á Íslandi, heldur allan heiminn. Þess vegna verðum við að taka samkeppnina um fólk, fjölskyldur og framtíðina alvarlega. Ég vel að búa hérna með mína fjölskyldu vegna þess að Akureyri er frábær staður sem hakar við þau box sem ég horfi til. Við megum samt aldrei setja fæturna upp á borð og halda að það sé sjálfgefið að fólk velji að búa á Akureyri. Við þurfum stöðugt að gera betur. Við þurfum að halda áfram! Verkefnið okkar er skýrt. Foreldrar eiga að geta treyst því að leikskólapláss bíði barna þegar fæðingarorlofi lýkur. Þar erum við á réttri leið, en við verðum að halda áfram af fullum krafti. Skólar bæjarins þurfa að vera framúrskarandi og íþrótta- og tómstundaaðstaða til fyrirmyndar. Frístundastyrkir eru líka tól sem hafa margsannað gildi sitt en við viljum útvíkka þá niður í 5 ára börn og til foreldra í fæðingarorlofi. Þá skiptir líka miklu máli að standa vörð um að Akureyri sé vel tengd við heiminn með beinu flugi. Þó hér sé gott að vera er það okkur nauðsynlegt að vera beintengd við Evrópu. Við erum í keppni um unga fólkið og fjölskyldur þeirra og við í L-listanum ætlum að sjá til þess að Akureyri vinni þá keppni. Höfundur er oddviti L-listans á Akureyri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 22.08.2026 Halldór Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson Skoðun Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen Skoðun „Viltu koma út að leika?“ Hallgrímur Helgason Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Þögnin rofin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar Skoðun Fimmtugt er ekki biðstofa Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Horfum á heildarmyndina – og til lengri tíma Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Hvar hefur 400.000 manna þjóð mest áhrif? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Hvernig ákveður þjóð sig? - Samhygð á undanhaldi Davíð Brynjar Sigurjónsson skrifar Skoðun Siðferðiskirtillinn Jón Bragi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Spörum milljarða Lárus Blöndal Sigurðsson skrifar Skoðun Drottningaviðtal – þegar ein rödd fær sviðið Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Þegar náttúran verður okkur framandi Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Af hverju aðildarviðræður? Björn Leví Gunnarsson skrifar Skoðun Hvað var afaðlagað? Þorvaldur Logason skrifar Skoðun Fullveldi - ættaróðal eða verkfæri sjálfstæðrar þjóðar? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Referendum: The Status Quo is Path Dependent Smári McCarthy skrifar Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar Skoðun Gylliboðin sem ekki standast Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Þegar mótrökin verða meðmæli Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Er ekki alltaf brjálað að gera? Sigríður Indriðadóttir skrifar Skoðun Spliff, Donk & Gengja á Alþingi Benedikt V Warén skrifar Skoðun Bannmenn og bruggarar Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Íslensk mjólkurframleiðsla er ekki skiptimynt í Brussel Sigurbjörg Ottesen skrifar Skoðun Hversdagsleg menning og majónes Logi Einarsson skrifar Skoðun Lærum lýðræði Ingibjörg Rósa Björnsdóttir skrifar Skoðun Referendum: What Is Path Dependence? Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Veikar konur, hið hæga þjóðarmorð og Reykjavíkurmaraþon Viðar Hreinsson skrifar Skoðun ESB-aðild eykur áhrif smáríkja. Reynsla Íra er mjög jákvæð Dominic Scott skrifar Skoðun Hvaða Evrópusamband erum við að kjósa um? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Hefur einhver trú á topplistum? Dagbjört Hákonardóttir skrifar Sjá meira
Það hefur aldrei verið auðveldara að taka sig upp og flytja búferlum. Í dag er Akureyri ekki bara í samkeppni við önnur sveitarfélög á Íslandi, heldur allan heiminn. Þess vegna verðum við að taka samkeppnina um fólk, fjölskyldur og framtíðina alvarlega. Ég vel að búa hérna með mína fjölskyldu vegna þess að Akureyri er frábær staður sem hakar við þau box sem ég horfi til. Við megum samt aldrei setja fæturna upp á borð og halda að það sé sjálfgefið að fólk velji að búa á Akureyri. Við þurfum stöðugt að gera betur. Við þurfum að halda áfram! Verkefnið okkar er skýrt. Foreldrar eiga að geta treyst því að leikskólapláss bíði barna þegar fæðingarorlofi lýkur. Þar erum við á réttri leið, en við verðum að halda áfram af fullum krafti. Skólar bæjarins þurfa að vera framúrskarandi og íþrótta- og tómstundaaðstaða til fyrirmyndar. Frístundastyrkir eru líka tól sem hafa margsannað gildi sitt en við viljum útvíkka þá niður í 5 ára börn og til foreldra í fæðingarorlofi. Þá skiptir líka miklu máli að standa vörð um að Akureyri sé vel tengd við heiminn með beinu flugi. Þó hér sé gott að vera er það okkur nauðsynlegt að vera beintengd við Evrópu. Við erum í keppni um unga fólkið og fjölskyldur þeirra og við í L-listanum ætlum að sjá til þess að Akureyri vinni þá keppni. Höfundur er oddviti L-listans á Akureyri.
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun
Skoðun Fullveldi, yfirþjóðlegar stofnanir og jafnræðisgrundvöllur í Evrópu Maximilian Conrad skrifar
Skoðun Þurfum við kreatín og prótín sem bætiefni? Jóhanna Eyrún Torfadóttir,Dögg Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Amma getur ekki eldað. Borgarfulltrúinn getur það. Bæði borga 1.900. Kristín Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Þegar Ísland verður 600 þúsund manna borgríki – hver á þá að framleiða matinn? Eyjólfur Ingvi Bjarnason skrifar
Hvers vegna vil ég sem Austurríkismaður hvetja Íslendinga til að segja NEI þann 29. ágúst? Stephan Zanzerl Skoðun