Sóknin í efri byggðum Kópavogs Leifur Andri Leifsson skrifar 6. maí 2026 21:31 Í aðdraganda kosninga er ekki úr vegi að líta um öxl, rifja upp fortíðina og jafnframt að ímynda sér hvernig verður umhorfs þegar leikurinn er endurtekinn að nokkrum árum liðnum. Uppvaxtarár mín í Kópavogi snerust alla tíð um knattspyrnuiðkun. Ég man eftir því að hafa keppt á malarvelli á Kársnesinu og fyrstu skrefin með meistaraflokki HK voru á stúkulausum grasbletti í Fagralundi, hvaðan leiðin lá upp í knatthúsið í Kórnum. Í raun fylgdist maður með nýju hverfi birtast, með náttúruperlur á borð við Guðmundarlund í bakgarðinum. Þótt vel hafi til tekist má alltaf bæta skrauti á. Von bráðar græðir HK nýja stúku og keppnisvöll, sem óumdeilanlega mun vera mikil lyftistöng fyrir hverfið og íþrótta- og forvarnastarf sem þar fer fram. Það mun síðan verða reiðubúið í ásókn nýrra iðkenda, sem flytja munu í Vatnsendahlíðina samhliða uppbyggingu þess hverfis, hvar ráð er gert fyrir nýjum grunnskóla og íþróttahúsi. Áðurnefndum Guðmundarlundi, svo og nærumhverfi, verður gert hátt undir höfði með áframhaldandi uppbyggingu útivistar- og ævintýrasvæðis fyrir alla aldurshópa. Auk þess ætlum við að klára gönguhringinn kringum Elliðavatn og finna stað fyrir bað- og útivistaraðstöðu við vatnið. Tækifærin liggja víðar. Með hækkandi fjölda ára og afkvæma sé ég glöggt hve dýrmætir grænir hverfakjarnar eru. Minnst einn slíkur ætti að vera í hverju hverfi, hvar foreldrar geta setið á bekk eða kaffihúsi og notið samveru vina og málkunnugra, á meðan börnin grynnka á orkubirgðunum með ærslum og látum. Þetta er framtíðarsýn sem Sjálfstæðisflokkurinn sér fyrir sér að verði kominn langt á leið við kosningar eftir fjögur ár og fullgerð skömmu síðar. Án áræðni, skipulags og seiglu verður framangreint eingöngu orðin tóm. Undanfarið kjörtímabil hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi sýnt að þannig vinnur hann ekki. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur tekið til í rekstri og þjónustu við bæjarbúa, raunar svo að eftir því hefur verið tekið og önnur sveitarfélög fylgt í kjölfarið. Af þeim stíg munum við ekki hvika. Laugardaginn 16. maí er val Kópavogsbúa því skýrt. Kópavogur er í sókn og Sjálfstæðisflokkurinn þarf þinn stuðning svo að svo verði áfram. Höfundur skipar 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Í aðdraganda kosninga er ekki úr vegi að líta um öxl, rifja upp fortíðina og jafnframt að ímynda sér hvernig verður umhorfs þegar leikurinn er endurtekinn að nokkrum árum liðnum. Uppvaxtarár mín í Kópavogi snerust alla tíð um knattspyrnuiðkun. Ég man eftir því að hafa keppt á malarvelli á Kársnesinu og fyrstu skrefin með meistaraflokki HK voru á stúkulausum grasbletti í Fagralundi, hvaðan leiðin lá upp í knatthúsið í Kórnum. Í raun fylgdist maður með nýju hverfi birtast, með náttúruperlur á borð við Guðmundarlund í bakgarðinum. Þótt vel hafi til tekist má alltaf bæta skrauti á. Von bráðar græðir HK nýja stúku og keppnisvöll, sem óumdeilanlega mun vera mikil lyftistöng fyrir hverfið og íþrótta- og forvarnastarf sem þar fer fram. Það mun síðan verða reiðubúið í ásókn nýrra iðkenda, sem flytja munu í Vatnsendahlíðina samhliða uppbyggingu þess hverfis, hvar ráð er gert fyrir nýjum grunnskóla og íþróttahúsi. Áðurnefndum Guðmundarlundi, svo og nærumhverfi, verður gert hátt undir höfði með áframhaldandi uppbyggingu útivistar- og ævintýrasvæðis fyrir alla aldurshópa. Auk þess ætlum við að klára gönguhringinn kringum Elliðavatn og finna stað fyrir bað- og útivistaraðstöðu við vatnið. Tækifærin liggja víðar. Með hækkandi fjölda ára og afkvæma sé ég glöggt hve dýrmætir grænir hverfakjarnar eru. Minnst einn slíkur ætti að vera í hverju hverfi, hvar foreldrar geta setið á bekk eða kaffihúsi og notið samveru vina og málkunnugra, á meðan börnin grynnka á orkubirgðunum með ærslum og látum. Þetta er framtíðarsýn sem Sjálfstæðisflokkurinn sér fyrir sér að verði kominn langt á leið við kosningar eftir fjögur ár og fullgerð skömmu síðar. Án áræðni, skipulags og seiglu verður framangreint eingöngu orðin tóm. Undanfarið kjörtímabil hefur Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi sýnt að þannig vinnur hann ekki. Sjálfstæðisflokkurinn í Kópavogi hefur tekið til í rekstri og þjónustu við bæjarbúa, raunar svo að eftir því hefur verið tekið og önnur sveitarfélög fylgt í kjölfarið. Af þeim stíg munum við ekki hvika. Laugardaginn 16. maí er val Kópavogsbúa því skýrt. Kópavogur er í sókn og Sjálfstæðisflokkurinn þarf þinn stuðning svo að svo verði áfram. Höfundur skipar 10. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar