Fjölskyldubærinn Akranes Katrín Valdís Hjartardottir skrifar 6. maí 2026 06:45 Akranes er að mínu mati fyrsta flokks fjölskyldubær. En það gerist sannarlega ekki að sjálfu sér. Til að styðja vel við fjölskylduna í heild þurfa margir hlutir að fara saman. Það þarf að hlúa að skólunum okkar svo þeir verði áfram í fremstu röð. Leik- og grunnskólarnir á Akranesi eru fyrirmyndir annarra skóla hvað varðar faglegt starf og ekki síður mönnun á fagmenntuðu starfsfólki. En til að svo megi verða áfram þarf að styðja við starfsemina og starfsfólkið og halda áfram þeirri góðu uppbyggingu sem hefur verið í gangi síðustu misseri, t.d. með lagfæringu og uppbyggingu á skólalóðum skólanna okkar. Brúum bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla Einnig þarf að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Það verður ekki gert með einu pennastriki. Við í Samfylkingunni viljum vinna að því með ríkinu að lögfesta réttinn til leikskólavistar og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Lögfesting leikskólastigsins felur í sér aukna aðkomu ríkisins að leikskólastiginu. Ekki er um að ræða skólaskyldu heldur lögfestan rétt í áföngum og með tryggari fjármögnun. Það er lengri tíma lausn sem er til þess fallin að brúa þennan vanda til framtíðar. Hækkum frístundastyrki Tómstundir og kostnaður vegna þeirra er einnig stór hluti veruleika fjölskyldna með börn. Við í Samfylkingunni viljum í samstarfi við ÍA hækka frístundastyrki svo þeir nýtist raunverulega fjölskyldum bæjarins. Það er mikið jafnréttismál að öll börn og ungmenni hafi tök á að stunda tómstundir hvort sem það eru íþróttir, tónlistarstarf, skátar eða hvað annað sem hentar hverju og einu barni. Samfylkingin á Akranesi vill setja fjölskylduna í forgang og styðja þannig við jöfn tækifæri allra. Höfundur skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Akranes Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Akranes er að mínu mati fyrsta flokks fjölskyldubær. En það gerist sannarlega ekki að sjálfu sér. Til að styðja vel við fjölskylduna í heild þurfa margir hlutir að fara saman. Það þarf að hlúa að skólunum okkar svo þeir verði áfram í fremstu röð. Leik- og grunnskólarnir á Akranesi eru fyrirmyndir annarra skóla hvað varðar faglegt starf og ekki síður mönnun á fagmenntuðu starfsfólki. En til að svo megi verða áfram þarf að styðja við starfsemina og starfsfólkið og halda áfram þeirri góðu uppbyggingu sem hefur verið í gangi síðustu misseri, t.d. með lagfæringu og uppbyggingu á skólalóðum skólanna okkar. Brúum bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla Einnig þarf að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Það verður ekki gert með einu pennastriki. Við í Samfylkingunni viljum vinna að því með ríkinu að lögfesta réttinn til leikskólavistar og brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla. Lögfesting leikskólastigsins felur í sér aukna aðkomu ríkisins að leikskólastiginu. Ekki er um að ræða skólaskyldu heldur lögfestan rétt í áföngum og með tryggari fjármögnun. Það er lengri tíma lausn sem er til þess fallin að brúa þennan vanda til framtíðar. Hækkum frístundastyrki Tómstundir og kostnaður vegna þeirra er einnig stór hluti veruleika fjölskyldna með börn. Við í Samfylkingunni viljum í samstarfi við ÍA hækka frístundastyrki svo þeir nýtist raunverulega fjölskyldum bæjarins. Það er mikið jafnréttismál að öll börn og ungmenni hafi tök á að stunda tómstundir hvort sem það eru íþróttir, tónlistarstarf, skátar eða hvað annað sem hentar hverju og einu barni. Samfylkingin á Akranesi vill setja fjölskylduna í forgang og styðja þannig við jöfn tækifæri allra. Höfundur skipar 6. sæti á lista Samfylkingarinnar á Akranesi.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar