Það sem Sjálfstæðisflokknum líður verst með Arnar Þór Ingólfsson skrifar 6. maí 2026 10:43 Það hefur varla farið fram hjá neinum að Samfylkingin – jafnaðarflokkur Íslands hefur á undanförnum vikum sett fram skýra sýn á ýmis lykilverkefni samfélagsins, sem framboð flokksins hringinn í kringum landið setja nú á oddinn í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Auðvitað eru málefnin síðan misjöfn í hverju sveitarfélagi, en þó er stóra myndin sú að ef þú kýst Samfylkinguna þá veistu svona nokkurn veginn hvað þú ert að fara að fá. Flokk sem vill stefna að lögfestingu leikskólastigsins og tryggja að mönnunarvanda leikskólanna sé ekki varpað í fang foreldra sem þurfa að nýta heilsdagsvistun, flokk sem vill samþætta og bæta þjónustu við eldra fólk og flokk sem tryggir betri þjónustu við fyrirtæki og framtakssamt fólk og einföldun regluverks á sveitarstjórnarstiginu – rétt eins og við höfum sett á oddinn í landsmálunum. Markaðskreddur ráða í Kópavogi Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og formaður Samfylkingar hefur talað fyrir þessum málum út á við og hefur það fengið pólitíska andstæðinga til að rísa upp á afturlappirnar, ekki síst Sjálfstæðisfólk í Kópavogi, en þangað hefur athyglin kannski beinst af því að þar hefur gjaldapólitíkin í leikskólamálum gengið hvað lengst, með 450 þúsund króna barnaskatti á vinnandi fjölskyldur með tvö börn á leikskóla í 40 tíma á viku, séu gjöldin borin saman við Reykjavíkurborg. Einnig hefur sést mjög skýrt hvernig Sjálfstæðisflokkurinn er tilbúinn að beita skipulagsvaldinu til að hindra nauðsynlega uppbyggingu almennra íbúða á vegum óhagnaðardrifinna leigufélaga á borð við Bjarg. Kópavogur skilar auðu þar, út af hugmyndafræðilegum kreddum pólitískrar forystu bæjarins – og oddvitinn í Reykjavík virðist ætla að feta sömu braut. Til að reyna að verja þá ráðstöfun segja Sjálfstæðismenn að það vilji hvort sem er enginn vera á leigumarkaði á Íslandi. Ekki virðist hvarfla að þeim að það kunni að vera sökum þess að íslenskur leigumarkaður er og hefur verið vanvirkur skortmarkaður, með litlu húsnæðisöryggi fyrir lág- og meðaltekjufjölskyldur. Á vef flokksins segir að þau vilji „stuðla að því að myndast geti virkur leigumarkaður eins og þekkist víða í nágrannalöndum“ en þegar á hólminn er komið standa þau beinlínis í vegi fyrir því. Hundruð fjölskyldna í Kópavogi, sem eru á leigumarkaði í dag og búa þar við hátt leiguverð og lítið öryggi, eru á biðlista hjá Bjargi. Fyrir þetta fólk vill Kópavogsbær ekki byggja og það veldur því að fólk er fast í ótryggu leiguhúsnæði sem er svo dýrt að það að ná að leggja til hliðar fyrir eigin íbúð er fjarlægur draumur. Það segir sig auðvitað sjálft að á slíkum leigumarkaði vill enginn vera. Þegar þú kýst Samfylkinguna, óháð því í hvaða sveitarfélagi það er, veistu að gegn þessu viljum við vinna. Þegar þú kýst Samfylkinguna ert þú að greiða atkvæði með samheldnu samfélagi þar sem sterk velferð er lykilatriði - eitthvað sem sameinar okkur og gerir okkur stolt. Sameinuð sýn á samgöngur höfuðborgarsvæðisins Á höfuðborgarsvæðinu veistu líka að atkvæði greitt Samfylkingunni er atkvæði greitt því að samgöngusáttmáli höfuðborgarsvæðisins, stærsti pakki samgöngubóta sem höfuðborgarsvæðið hefur nokkru sinni séð, komist loks til framkvæmda. Þvert á sveitarfélög stöndum við sameinuð gegn því að hefja enn eina endurskoðunina og viljum ekki leika fleiri biðleiki. Þetta þola pólitískir andstæðingar jafnaðarfólks illa, enda standa þau klofin gagnvart þessum lykilmálum. Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjavík er búinn að taka upp glórulausa samgöngustefnu Miðflokksins í flestum meginatriðum og hefur algjörlega tapað þeirri framtíðarsýn sem hann eitt sinn virtist hafa í örvæntingarfullri atkvæðaleit. Þau sem stjórna flokknum í nágrannasveitarfélögunum virðast hins vegar flest vita, rétt eins og ráðherrar Sjálfstæðisflokks vissu í síðustu ríkisstjórn, að ef umferðin á höfuðborgarsvæðinu á að ganga upp til framtíðar þá þarf að fara í þessar aðgerðir. Þess vegna kvittaði allt þetta fólk upp á endurskoðaðan samgöngusáttmála haustið 2024. Hildur Björns talar eins og Samfylkingin í Kópavogi Varðandi leikskólamálin er svo ljóst að Sjálfstæðismenn í borginni eru á öðrum stað en þau í Kópavogi. Þegar fyrstu tillögur að því sem síðar varð Reykjavíkurleiðin í leikskólamálum voru kynntar skrifaði Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokks: „Reykjavíkurleiðin leiðir af sér bæði þjónustuskerðingu fyrir foreldra og auknar álögur fyrir vinnandi fólk - og fyllir foreldra sem fullnýta þjónustu leikskólanna óþarfa samviskubiti. Með gjaldskrárbreytingum er reynt að stýra fjölskyldum í skertan vistunartíma sem líklegt er að leggist þyngra á vinnandi mæður en vinnandi feður.“ Þessi skilaboð Hildar eru einmitt kjarninn í gagnrýni Samfylkingarinnar í Kópavogi á sjálft Kópavogsmódelið, sem þó er með miklu skarpari tekjutengingum og leggur miklu þyngri byrðar á vinnandi fjölskyldur en þessar tillögur fyrstu tillögur að Reykjavíkurleiðinni gerðu. Allt þetta er til marks um að Sjálfstæðisflokkurinn er tvístraður hingað og þangað þegar kemur að lykilverkefnum samfélagsins, samvinnuverkefnum ríkis og sveitarfélaga. Það þarf því engan að undra að það fari í taugarnar á Sjálfstæðismönnum þegar formaður Samfylkingar stígur fram, með hvoru tveggja skýra stefnu og samstíga flokk að baki sér hringinn í kringum landið, og mæli með traustum kosti fyrir þau hátt í 90% kjósenda sem eiga kost á því að setja X við S í komandi sveitarstjórnarkosningum. Höfundur er félagi í Samfylkingunni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Arnar Þór Ingólfsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadótti skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar