Betri heilsa – betri Kópavogur Arnar Grétarsson skrifar 2. maí 2026 13:32 Kópavogur er öflugt og einstakt samfélag. Hér býr fjölbreyttur hópur fólks sem á það sameiginlegt að vilja gott nærumhverfi, öfluga þjónustu og skýra framtíðarsýn. En líkt og önnur sveitarfélög stöndum við frammi fyrir krefjandi verkefnum. Til þess að tryggja lífsgæði til framtíðar þurfum við tvennt: ábyrgan rekstur og markvissa fjárfestingu í því mikilvægasta sem við eigum – heilsu íbúa Kópavogs. Lærdómurinn af vellinum Líf mitt hefur frá unga aldri snúist um íþróttir hér í Kópavogi. Ég er uppalinn Bliki og sleit barnsskónum á fótboltavellinum, en samhliða því spilaði ég handbolta með HK fram að 16 ára aldri. Þessi ár mótuðu mig og þau gildi sem ég lærði þar ég bý enn að í dag. Íþróttir kenna manni margt sem lærist ekki í kennslustofunni. Þær kenna liðsheild – að enginn er stærri en heildin og að besti árangurinn næst þegar allir stefna í sömu átt. Þær kenna aga og þrautseigju – að mæta í rigningu og roki og halda áfram þó að á móti blási. Og þær kenna félagsfærni – að mynda vináttubönd sem endast ævilangt og bera virðingu fyrir öðrum, jafnt innan sem utan vallar. Þessi reynsla er grunnurinn að sýn minni á lýðheilsu. Lýðheilsa er ekki lúxus – heldur grunnur að góðu lífi. Ábyrg fjármálastýring er forsenda þess að hægt sé að fjárfesta markvisst í fólkinu okkar Íþróttir og hreyfing eru ekki jaðarmál. Við vitum að regluleg hreyfing bætir bæði líkamlega og andlega heilsu. Sem fyrrum atvinnumaður og þjálfari hef ég séð hvernig rétt umhverfi getur ýtt undir vöxt, sjálfstraust og vellíðan. Við í Viðreisn viljum að Kópavogur verði leiðandi í að skapa umhverfi sem hvetur alla íbúa til hreyfingar. Það snýst um að tryggja aðgengi fyrir alla – að frístundastyrkir séu raunveruleg lyftistöng fyrir öll börn, óháð efnahag. Það snýst um að hanna nærumhverfið þannig að hreyfing verði eðlilegur hluti af deginum, með góðum göngustígum og opnum svæðum í öllum hverfum Kópavogs. Mikilvægt er að fjárfesta í forvörnum, því hver króna sem sett er í æskulýðs- og íþróttastarf skilar sér margfalt til baka síðar. Lausnir, ekki bara loforð Reynsla mín með að vinna með fjárhagsáætlanir í alþjóðlegu umhverfi hefur kennt mér að góður vilji dugar ekki einn og sér. Til að ná raunverulegum árangri þurfum við sjálfbæran rekstur sem skapar svigrúm til að fjárfesta skynsamlega. Við þurfum að byggja upp íþróttamannvirki sem mæta þörfum vaxandi bæjar. Við þurfum að efla æskulýðsstarf sem nær til allra barna, ekki bara sumra. Og við þurfum að þróa grænni samgöngur sem gera hreyfingu að sjálfsögðum hluta af daglegu lífi. Kosningarnar 16. maí snúast um framtíðina okkar. Ég vil nýta reynslu mína af vellinum, úr atvinnulífinu og úr þjálfun til að taka betri ákvarðanir fyrir alla Kópavogsbúa. Við eigum að þora að fjárfesta í fólkinu okkar – því þar liggur raunveruleg verðmætasköpun framtíðarinnar. Höfundur skipar 3. sæti á lista Viðreisnar í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Kópavogur Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Sjá meira