Menntamál í Hafnarfirði: Raunverulegar lausnir fyrir nemendur og starfsfólk Margrét Lilja Pálsdóttir skrifar 30. apríl 2026 07:46 Samfylkingin í Hafnarfirði hélt á dögunum opinn fund um menntamál í bænum þar sem fram fóru góðar og málefnalegar umræður. Gestur fundarins var Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Umræðan á fundinum endurspeglar vel það sem ég hef sjálf upplifað í starfi mínu síðustu ár. Ég hef starfað í menntakerfinu í rúm 20 ár, bæði sem kennari og stjórnandi í Hafnarfirði. Þetta er besta starf í heimi en það hefur líka breyst mikið á undanförnum árum. Við sem störfum í leik- og grunnskólum stöndum frammi fyrir sífellt flóknari áskorunum. Við sjáum aukinn kvíða, erfiðleika með einbeitingu og flóknari samskipti barna. Þetta endurspeglar breytt samfélag og birtist daglega í starfi skólanna. Við verðum að grípa fyrr inn í Það þýðir að byggja þarf upp raunverulegan þrepaskiptan stuðning fyrir börn og ungmenni, ekki síst á aldrinum 16–18 ára, þar sem mörg mál verða þung áður en gripið er til aðgerða. Snemmtæk íhlutun er ekki bara betri fyrir barnið heldur er hún líka skynsamleg fyrir samfélagið í heild. Við erum vissulega þegar með ákveðinn ramma í gegnum farsældarlögin og í skólum Hafnarfjarðar starfa farsældarteymi sem fara yfir mál sem talin eru þurfa aukinn stuðning. Það er mikilvægur grunnur. En kerfið er þungt, úrræði fá og biðlistar langir. Þar liggur vandinn – og þar þurfum við að gera betur. Aðgerðir sem skipta máli strax Við þurfum að grípa til aðgerða strax. Eitt af því er að fækka nemendum í bekkjum. Það hefur bein áhrif á námsumhverfi, líðan nemenda og getu kennara til að sinna hverjum og einum. Á sama tíma þurfum við að horfa til stærri breytinga. Við þurfum að fjölga fagstéttum innan skólanna, s.s. atferlisfræðingum, iðjuþjálfum, talmeinafræðingum og þroskaþjálfum. Þannig mætum við þörfum barna innan skólanna sjálfra. Við þurfum einnig að efla sérúrræði fyrir þau börn sem þurfa mestan stuðning. Við megum ekki gleyma starfsfólkinu Veikindahlutfall í leik- og grunnskólum er hátt og álag er mikið. Ef við ætlum að halda í gott fagfólk þurfum við að tryggja því öryggi, stuðning, fræðslu og handleiðslu. Sterkt skólakerfi byggir á sterku starfsfólki. Í umræðunni hefur einnig verið bent á þörf á að skoða úthlutun fjármagns til skóla með nýjum hætti. Ein leið er að gefa skólum meira svigrúm til að meta eigin þarfir og forgangsraða út frá raunverulegum aðstæðum. Í dag upplifa margir stjórnendur að þeir þurfi að „selja“ þörf nemenda sinna fyrir þjónustu. Það er staða sem við verðum að breyta. Ofbeldi og áhættuhegðun í skólum Þessi málaflokkur krefst heildstæðrar nálgunar. Aukið ofbeldi og áhættuhegðun kallar á skýr viðbrögð og aukið samstarf milli skóla, foreldra og annarra þjónustukerfa. Án snemmtækrar íhlutunar er hætta á að mál þróist í alvarlegri farveg sem hefur áhrif á bæði nemendur, starfsfólk og samfélagið í heild. Við eigum sterkan grunn Það er unnið frábært starf í leik- og grunnskólum Hafnarfjarðar. Þar starfar fagfólk sem mætir börnum af alúð, þekkingu og metnaði á hverjum degi og heldur utan um flókið og krefjandi starf af mikilli fagmennsku. Þessi skrif eru ekki hugsuð til að draga úr því, þvert á móti. Þessi skrif byggja á samtölum við fólk sem starfar í kerfinu og þeim röddum sem ég heyri daglega. Röddum sem lýsa bæði stolti yfir starfinu og áhyggjum af því álagi og þeim áskorunum sem því fylgja. Við eigum sterkan grunn. En einmitt þess vegna eigum við að hafa kjark til að hlusta, bregðast við og gera betur. Menntamál eiga að snúast um fólk Menntamál eiga að snúast um fólk. Ef við ætlum að standa undir því þurfum við að grípa fyrr inn í, bregðast fyrr við og byggja upp kerfi sem mætir raunverulegum þörfum barna og starfsfólks. Allt þetta er í samræmi við áherslur Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Samfylkingin í Hafnarfirði ætlar að: stórefla geðheilbrigðismál barna og ungmenna efla þrepaskipta þjónustu í anda farsældarlaganna auka sálfræði- og stoðþjónustu í skólum draga markvert úr biðlistum eftir þjónustu bæta starfsumhverfi kennara og annars starfsfólks skóla auka faglegt sjálfstæði skóla og veita þeim raunverulegt svigrúm efla frístunda- og forvarnarstarf þannig að öll börn hafi tækifæri til þátttöku Markmiðið er skýrt Markmiðið er að byggja upp menntakerfi sem er réttlátt, öflugt og sveigjanlegt, menntakerfi þar sem öll börn fá raunveruleg tækifæri til að vaxa, læra og blómstra. Við erum sterkari saman Höfundur skipar 8. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í Hafnarfirði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hafnarfjörður Samfylkingin Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson Skoðun Skoðun Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar Skoðun Hvað vita þingmenn um hvalveiðar? Valgerður Árnadóttir skrifar Skoðun Verður Vogi lokað? Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Hvað eruð þið að gera í ÖBÍ? Elísa Ósk Línadóttir skrifar Skoðun Hvern á verkfallið að bíta? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun NPA er ekki verðlaun fyrir samþykkta hegðun Rúnar Björn Herrera Þorkelsson skrifar Skoðun Samdráttur í losun Íslands – en ekki kerfisbreyting Sigurpáll Ingibergsson skrifar Skoðun Við tryggjum ekki lýðræðið eftir á Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Veit hið opinbera hvað virkar? Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Evrópa Henry Alexander Henrysson skrifar Skoðun Skeifan í smjörinu Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þetta reddast: en hvað ef það reddast ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Málshraðasögur 2. hluti — Forsjármál Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Á rafmagnskrossara á göngustíg á hundrað og þaðan inn í eilífðina Davíð Bergmann skrifar Skoðun Er afleiðingin orsök? Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Uppsagnir í Stjórnarráðinu Hrafnkell Tumi Kolbeinsson skrifar Skoðun Sigurganga málaflokka Flokks fólksins Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Getureglan og froðan Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Rætin Rót í þrettán ár Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Hvernig lögum við fegurðarskyn okkar að orkuskiptabyltingunni? Páll Jakob Líndal skrifar Skoðun Frítt í strætó í dag Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Tækni- og hugverkaiðnaðar eykur stöðugleika hagkerfisins Erla Tinna Stefánsdóttir,Ingólfur Bender skrifar
Skoðun Umferðartafir á höfuðborgarsvæðinu – Hver er staðan og hvert stefnir? Þórarinn Hjaltason skrifar
Skoðun Er ekki kominn tími til að endurskoða íslenska kjarasamningamódelið? Þórir Garðarsson skrifar