Frá Jens Mustermann til CR7: hugvekja um vörumerki knattspyrnumanna Jóhann Skúli Jónsson skrifar 29. apríl 2026 15:02 Sem ungur maður með vonir og drauma um að verða knattspyrnumaður sat ég eitt sinn inni í klefa og hlustaði á ræðu þjálfarans. Innihaldið það kvöld, eftir kalda og erfiða æfingu á gervigrasinu í Safamýri, snerist um að við værum allir í þessu saman, að keðjan væri ekki sterkari en veikasti hlekkurinn og endaði svo á hinum klassíska bandaríska frasa: „Strákar, there’s no ‘I’ in team.“ Eftir ræðuna tók við dauðaþögn sem virtist staðfesta að boðskapurinn hefði skilað sér. Þá laumaði trúður hópsins inn: „En ég meina… there’s an ‘I’ in win.“ Oliver Kahn bannaði notkun á sjálfum sér Völd knattspyrnumanna utan vallar gagnvart þeim félögum sem þeir spila fyrir hafa farið ört vaxandi allt frá miðjum tíunda áratugnum. Þar ber hæst margfrægt mál Jean Marc Bosman, en sömuleiðis má nefna verkfall norskra leikmanna í baráttu gegn einræði deildarinnar um skóbúnað. Hér heima gripu menn til skæra, nálar og líms til að breyta takkaskóm þannig að þeir uppfylltu samningsskyldur gagnvart framleiðanda, „þetta reddast“ hugarfarið í fullri yfirvinnu. Vitundarvakning leikmanna um eigin réttindi náði þó nýjum hæðum upp úr aldamótum. Ronaldo Nazario var t.d. ekki í neinum af FIFA leikjunum á árunum 1999-2002 og margir muna eftir því þegar Oliver Kahn hvarf skyndilega úr tölvuleikjunum FIFA og Football Manager. Þýski markvörðurinn taldi sig fá óeðlilega lítið fyrir notkun á nafni sínu og ímynd og bannaði einfaldlega notkun þeirra, enda stóð hann fyrir utan öll hefðbundin leikmannasamtök (talandi um sterkt vörumerki og „on-brand“ hegðun). Þegar EA Sports reyndi að fara í kringum þetta með karakter sem svipaði til þessa fyrrum markmanns Bayern Munchen í FIFA World Cup 2002 tölvuleiknum, fór Kahn með málið fyrir dóm og hafði betur. Á seinni stigum fæddist í kjölfarið hinn ódauðlegi Jens Mustermann, þeir vita sem vita. CR7, R9, NJR og D10S ekki bara gælunöfn Í dag hafa leikmenn tekið þetta skrefinu lengra. Þeir skrá í auknum mæli allt sem tengist þeim sem vörumerki. CR7, R9, NJR og D10S eru ekki bara gælunöfn heldur verndaðar eignir og lái eigendum þeirra hver sem vill. Cristiano Ronaldo er með meira en tvöfalt fleiri fylgjendur á Instagram en Juventus, Manchester United og Real Madrid samanlagt. Leikmaðurinn er orðinn stærri en merkið á treyjunni sem er í reynd ótrúlegt komandi frá jafn litlu markaðssvæði og Portúgal. Stórfyrirtæki hafa ýtt undir þessa þróun. Adidas breytti leiknum með #POGBACK herferðinni þegar Paul Pogba sneri aftur til Manchester United upp að því marki að gamli skólinn taldi leikinn glataðan fyrir fullt og allt. Samhliða þessu hafa svokallaðir ímyndarréttarsamningar orðið einn heitasti punkturinn við samningaborðið milli leikmanna og félags þar sem áður var eingöngu samið um stoðsendingar og mörk. Ekki margar íslenskar skráningar Fá eða engin dæmi eru um að íslenskir knattspyrnumenn skrái nöfn sín eða gælunöfn sem vörumerki, þrátt fyrir augljós tækifæri. Í einstaklingsíþróttum hefur fólk hins vegar verið mun beittara á þessu sviði; þar má nefna Annie Mist Þórisdóttur og Gunnar Nelson. Ef trúðurinn í klefanum í Safamýrinni á að hafa rétt fyrir sér þyrftu íslenskir knattspyrnumenn kannski að endurhugsa sín mál til að hámarka virði sitt því möguleikarnir eru til staðar. Hver veit nema einn daginn verði TG9 ekki lengur bara þekktur fyrir að mæta á fjærstöngina heldur skráð vörumerki fyrir skóbúnað og annan íþróttafatnað í flokki 25? #WorldIPDay – Alþjóðahugverkadagurinn var haldinn hátíðlegur um allan heim síðastliðinn sunnudag, 26. apríl. Jóhann Skúli Jónsson, lögfræðingur hjá Hugverkastofunni Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Höfundar- og hugverkaréttur Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar