Fékk ekki umbeðna bílalest á við páfann Valur Páll Eiríksson skrifar 29. apríl 2026 10:03 Umbeðnar öryggisráðstafanir og heimild til bílalestar eru fráteknar fyrir þjóðhöfðingja og páfa. FIFA varð því ekki að ósk sinni fyrir Gianni Infantino. Samsett/Getty Borgar- og lögregluyfirvöld í Vancouver höfnuðu beiðni FIFA þess efnis fjórða stigs öryggisráðstafanir yrðu gerðar vegna komu Gianni Infantino, forseta FIFA, til borgarinnar.
Fjórða stigs öryggisráðstafanir og bílalest eru á hæsta stigi gesta sem koma til Kanada. Páfinn og Donald Trump, Bandaríkjaforseti, myndu til að mynda fá slíka meðferð við komu til ríkisins. Því fylgja þónokkrir lögreglubílar og að aðrir ökumenn séu stöðvaðir svo að meðfylgjandi bílalest geti keyrt yfir rauð ljós. „Formlegar bílalestir þar sem umferð er stöðvuð eru fráteknar fyrir þjóðhöfðingja,“ segir Don Chapman, aðstoðaryfirlögreglustjóri hjá lögreglunni í Vancouver, í yfirlýsingu sem send var til The Athletic. „Þar sem framkvæmdastjórn FIFA uppfyllir ekki kröfur um alþjóðlega verndaða einstaklinga (Internationally Protected Person, IPP) sem réttlæta slíka fylgd (að loka vegum, gatnamótum, heimild til að fylgja ekki umferðarreglum o.fl.) var beiðninni hafnað,“ segir enn fremur í yfirlýsingunni. Sagan segir að Infantino hafi sjálfur óskað eftir meðferðinni sem um ræðir en FIFA neitar því í yfirlýsingu. „Forseti FIFA vissi ekki af og var ekki aðili að neinum beiðnum til yfirvalda varðandi samgöngur sínar og öryggismál fyrir 76. þing FIFA,“ segir talsmaður sambandsins. Ársþing FIFA fer fram í Vancouver á fimmtudaginn kemur og gera má ráð fyrir að fulltrúar KSÍ séu komnir vestur um haf.
FIFA Kanada Mest lesið Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Íslenski boltinn Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Íslenski boltinn „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Enski boltinn Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Fótbolti Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Íslenski boltinn Ensku félögin með bókhaldsbrellur Enski boltinn Sveindís skoraði í langþráðum sigri Fótbolti Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Íslenski boltinn McTominay í hjartaaðgerð Fótbolti Albert lánaður til Lazio Fótbolti Fleiri fréttir Slær Aron markametið í kvöld? McTominay í hjartaaðgerð „Þetta er síðasti séns fyrir KR-inga“ Ekki eitthvað sem Víkingur stendur fyrir Framkvæmdastjórinn þrífur upp skemmdarverkin Mbaye til Aston Villa Vaktin: Lokadagur félagsskiptagluggans Albert lánaður til Lazio Ensku félögin með bókhaldsbrellur Skemmdarverk unnin á KR-vellinum Allt klárt á Meistaravöllum fyrir pallaleikinn í kvöld Arteta vill bæta við hópinn í dag Gata nefnd í höfuð Salah í Tyrklandi „Ef hann gerir það verða mörg félög í vandræðum“ Sjáðu Stjörnuna klára Blika Sveindís skoraði í langþráðum sigri Sanchez á förum frá Chelsea eftir komu Martinez Manchester City ekki enn búið að gefast upp á Enzo Fernandez Kushner tjáir sig formlega um söluna á heimsmeistaramótinu Barcelona með fullt hús stiga eftir þrjár umferðir Everton bjóða í hetju Bandaríkjanna Þarf Manchester United nýja bakverði fyrir gluggalok? Vandræði Sønderjyske halda áfram þegar liðið tapaði manni færri Aston Villa - Arsenal 0-1 | Tíðindalítill leikur en meistararnir með yfirhöndina Uppgjörið: Breiðablik - Stjarnan 0-2 | Stjarnan sótti þrjú stig í Kópavog Glódís Perla hélt hreinu þegar lið hennar jafnaði met „Við viljum drepa þá og þeir vilja drepa okkur“ „Er ekki að fara að strá einhverju galdradufti yfir þetta“ Messi leggur landsliðsskóna á hilluna Sjáðu þrennu Hlínar Sjá meira