Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 28. apríl 2026 18:19 Sunna Sæmundsdóttir les kvöldfréttir í kvöld. vísir Samtök iðnaðarins segjast hafa orðið fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka 2 sem ráðherrar og borgarstjóri kynntu í dag. Pakkinn á að skila allt að 1400 íbúðum á ríkisreitum í Reykjavík en samtökin segja pakkann ekki taka á bráðavanda markaðarins.
Birgir Olgeirsson, fréttamaður okkar, mun fjalla um umferðarhnúta á höfuðborgarsvæðinu en ferðatími á tíu km leið frá Hafnarfirði að HÍ gæti lengst um rúman hálftíma þegar framhaldsskólar og háskólar hefjast að loknu sumri. Við höldum áfram að fjalla um ófremdarástand í samgöngumálum Eyjamanna. Einn íbúanna hefur skrifað mótmælapistla í sautján daga samfleytt í þeirri von um að hreyfa við hlutunum. Öllu var til tjaldað til að skapa fallega og eftirminnilega kveðjustund fyrir Björgvin Halldórsson stórsöngvara. Útför var gerð frá yfirfullri Hallgrímskirkju en segja má að jarðarförin hafi verið einstök; klappað var á milli tónlistaratriða, Jakob Frímann sagði gamansögur af sér og Björgvini og þá hélt Ari Eldjárn eins konar uppistand. Börn Björgvins sungu síðan lag til föður síns sem lét engan ósnortinn. Við sýnum frá útförinni í fréttatímanum. Hitaveitur gætu orðið að veruleika á Grænlandi en jarðhiti hefur fundist þar mun víðar en áður var talið. Búið er að kortleggja nærri fjögur hundruð heitavatnsuppsprettur í rannsókn sem grænlenskar og danskar vísindastofnanir standa fyrir í samstarfi við íslenska jarðvísindamenn. Þá verðum við í beinni útsendingu frá prjónakvöldi JYSK með hlaupadrottningunni Mari Järsk og það er spurning hvort Mari geti kennt Tómasi Arnari að fitja upp á lykkjur. Í sportinu ræðir Stefán Árni meðal annars við Elías Már Ómarsson sem hefur farið á kostum með Víkingi í byrjun tímabilsins í Bestu-deildinni og í Íslandi í dag fer Sindri Sindrason í morgunkaffi til Diljár Mistar. Allt þetta og meira til á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar á slaginu 18.30.
Kvöldfréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Sinnt útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Sjá meira