Reykjavíkurborg og ábyrgðin sem hún forðast Kári Sigurðsson og Sólveig Anna Jónsdóttir skrifa 29. apríl 2026 08:00 Reykjavíkurborg ber ríka skyldu til að tryggja starfsöryggi og sanngjarna meðferð gagnvart starfsfólki sem daglega sinnir krefjandi og mikilvægum störfum í þágu borgarbúa. Þrátt fyrir það berast Sameyki og Eflingu ítrekað mál þar sem borgin víkur sér undan ábyrgð þegar starfsfólk verður fyrir tjóni í starfi. Það er alvarlegt, ekki aðeins gagnvart réttindum starfsfólks heldur einnig gagnvart grundvallarskyldum vinnuveitanda. Sérstaklega vekur það furðu í ljósi þess að Reykjavíkurborg hefur um árabil viljað stilla sér upp sem leiðandi vinnustað í mannauðsmálum og kynnti nýverið nýja mannauðsstefnu með miklum fyrirheitum. Slík stefna verður að birtast í verki, ekki aðeins í glærum, stefnumótunarskjölum og fallegu orðalagi. Í nýlegum málum sem Sameyki og Efling hafa haft til meðferðar var til að mynda brotist inn í íbúðarkjarna á meðan starfsmaður Reykjavíkurborgar var við störf. Stolið var persónulegum munum starfsmanns, þar á meðal fatnaði, húslyklum og heyrnartólum. Starfsmaðurinn hafði ekki fengið aðgang að læstri aðstöðu eða öruggum skáp til að geyma eigur sínar á vinnustaðnum. Þrátt fyrir þetta hafnaði Reykjavíkurborg því alfarið að bæta tjónið og tryggingafélag starfsmannsins vísaði málinu frá þar sem tjónið varð á vinnutíma. Annað dæmi sem hefur verið bent á varðar starfsmann í neyðarskýli Reykjavíkurborgar, þar sem skjólstæðingur braust inn í læst starfsmannarými og stal rafhlaupahjóli starfsmanns að verðmæti tæplega 150 þúsund krónur. Atvikið náðist á öryggismyndavél og lá fyrir að um skjólstæðing starfsstöðvarinnar var að ræða. Þrátt fyrir skýrt tjón, lögreglutilkynningu og tilvísun í kjarasamningsákvæði sem kveður á um að starfsfólk geti beint bótakröfu að launagreiðanda þegar tjón verður í starfi vegna einstaklinga sem ekki bera fulla ábyrgð á gerðum sínum, hafnaði Reykjavíkurborg bótaskyldu. Málið dróst mánuðum saman. Borgin svaraði ekki ítrekunum, viðurkenndi síðar að erindi hefði setið ósent í drögum í pósthólfi og hafnaði að lokum kröfunni á þeim grundvelli að ákvæðið ætti ekki við. Þessi afgreiðsla sýnir fram á vinnubrögð sem erfitt er að skilja öðruvísi en sem tilraun til að víkja sér undan ábyrgð gagnvart starfsfólki sem vinnur krefjandi og oft áhættusöm störf fyrir borgina. Það sem gerir þessi mál sérstaklega alvarleg er að starfsfólkið var við störf fyrir borgina, í húsnæði borgarinnar og í aðstæðum sem borgin ber ábyrgð á að séu öruggar. Samt situr starfsfólkið eftir með tjón upp á hundruð þúsunda króna, á meðan borgin velur að fela sig á bak við þrönga lögfræðilega túlkun og formsatriði í sínum eigin tryggingarskilmálum. Þessi mál eru ekki einsdæmi. Starfsfólk hefur einnig orðið fyrir tjóni á bifreiðum sínum og öðrum verðmætum við vinnustaði borgarinnar, stundum af hálfu skjólstæðinga sem borgin sjálf ber ábyrgð á að þjónusta og halda utan um. Svörin sem berast eru alltof oft þau sömu, að ekki sé fullsannað hvenær tjónið varð, að starfsfólk eigi að leita annað eða að atvikið falli ekki „nákvæmlega“ undir orðalag kjarasamnings. Fyrirmyndar vinnuveitandi á ekki að leita allra leiða til að losa sig undan ábyrgð gagnvart eigin starfsfólki. Hann á að leggja sig fram um hið gagnstæða: að vernda það fólk sem heldur uppi þjónustunni dag eftir dag, oft við erfiðar og áhættusamar aðstæður. Þetta vekur upp alvarlegar spurningar. Á starfsfólk Reykjavíkurborgar í alvöru að mæta allslaust til vinnu? Eiga stéttarfélögin að vara fólk við ákveðnum starfsstöðvum ef það vill ekki taka persónulega fjárhagslega áhættu með því að mæta í vinnuna? Ef þetta er niðurstaðan, þá er eitthvað verulega bogið við bæði verklag og viðhorf Reykjavíkurborgar. Það er alvarlegt áhyggjuefni þegar vinnuveitandi sem tryggir sig sjálfur setur þrönga túlkun á eigin reglur og kjarasamningsákvæði ofar öryggi starfsfólks. Öryggi, vernd og sanngjörn meðferð eiga ekki að vera bitbein í kjarasamningum. Þetta eru grunnskyldur vinnuveitanda. Sameyki og Efling krefjast þess að Reykjavíkurborg endurskoði tafarlaust verklag sitt og viðhorf þegar starfsfólk verður fyrir tjóni í starfi. Borgin verður að tryggja öruggar aðstæður á starfsstöðvum sínum og bregðast við með skýrum og sanngjörnum hætti þegar tjón verður á eigum starfsfólks. Það getur aldrei verið ásættanlegt að þau sem standa í fremstu línu þjónustunnar beri sjálf kostnaðinn af ótryggum vinnuaðstæðum. Kári Sigurðsson, formaður Sameykis. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Reykjavík Sólveig Anna Jónsdóttir Kári Sigurðsson Mest lesið Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Skoðun Skoðun Sammála – leggjum þjóðinni ekki orð í munn Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Goðarnir fóru aldrei – þeir skiptu bara um nafn Ragnar Thorarensen skrifar Skoðun Hin drepleiðinlega Bókun 35 Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar