Atvinnulíf

Mælir með eist­nesku poppi til að vekja börnin al­menni­lega

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, hefur verið líkt við skál af skittles með sjöföldum expressó í bland við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp að morgni jóladags.
Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, hefur verið líkt við skál af skittles með sjöföldum expressó í bland við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp að morgni jóladags. Vísir/Vilhelm

Melkorka Sigríður Magnúsdóttir, listrænn stjórnandi Iceland Innovation Week og framkvæmdastjóri Milk & Kleina, mælir með hugsanalestri því hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Melkorka segist vera dottin í smá nörd á morgnana: Dagarnir byrji á skoðun tölfræði um svefn næturinnar.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fólk fer að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég vakna yfirleitt í nokkrum skrefum, stilli vekjaraklukkuna yfirleitt á 07:20 og geri mitt besta til að rusla mér fram úr á þeim ókristilega tíma og gera mig til. Það er einfaldlega ekki í boði að vera morgunfúll með tvö börn undir fimm ára aldri og ég reyni yfirleitt að hafa sem mest tilbúið áður en ég vek þau. 

Svo húrra ég öllum í bílinn og við hlustum á eistneskt þjóðlagapopp á leiðinni í leikskólann til að tryggja að allir vakni nú örugglega. 

Eftir dropp legg ég leið mína á Hygge í fyrsta kaffibolla dagsins. Heilög stund fyrir það sem koma skal.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég festi nýlega kaup á Oura Ring sem er mögulega það besta sem ég hef gert til að fjárfesta í andlegri og líkamlegri heilsu á síðastliðnu ári. Það fyrsta sem ég geri á morgnana er því bein afleiðing af þessum kaupum og mjög nördalegt en ég kíki á svefntölfræði næturinnar. 

Við erum þrjár í vinnunni með snjallhringa og höfum gert það að heilagri morgunrútínu að bera saman tölfræðina, hver svaf best, hver fór seint að sofa og hver er að lifa á kaffi og þarf knús inn í daginn.“

Ertu líkleg til að geta sigrað í karokee-keppni? 

„Já, ég mæti heldur betur ekki bara til að horfa og tek karókí mjög alvarlega og þá sérlega performansinn fram yfir sönginn. Ég gifti mig í frönskum kastala síðasta sumar og tróð upp í eigin brúðkaupi. 

Ég er reyndar alltaf með tónlistina á hliðarlínunni, kom fram á Airwaves síðasta haust og geri popptónlist með Árna Rúnari Hlöðverssyni undir nafninu Milkywhale.

Okkur hefur verið lýst sem skál af skittles með sjöföldum expressó blandað saman við gleðina sem fylgir því að fá nýjan hvolp að morgni jóladags. 

Ég myndi segja að þetta væri góð uppskrift bæði inn í hversdaginn en líka karókí og hátíðarinnblástur.“

Melkorka mælir með hugsanalestri í vinnunni, að halda ró sinni og að geta hlegið þótt eitthvað fari úrskeiðis. Til viðbótar nýtir hún gervigreindina til að halda utan um ýmislegt í skipulaginu. Sérstaklega leiðinlegu verkefnin.Vísir/Vilhelm

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana? 

„Ég vil meina að ég sé í skemmtilegustu vinnu í heimi með skemmtilegustu konum í heimi og ég þakka fyrir að fá að mæta í vinnuna og hafa svona gaman á hverjum degi. 

Ég á tvö fyrirtæki með Eddu Konráðsdóttur, annars vegar Iceland Innovation Week og svo nýstofnað viðburða- og upplifunarstúdíó sem heitir Milk & Kleina. Saman stýrum við stærstu frumkvöðla- og tæknihátíð landsins sem fer einmitt fram í næstu viku en tökum líka að okkur alls konar spennandi herferðir og viðburði fyrir ólíka viðskiptavini. 

Ég er sviðslistamenntuð og mitt starf snýr mikið að því að hugsa hlutina út fyrir boxið. Ég vil að gestunum okkar líði frekar eins og þeir séu í leikhúsi frekar en á ráðstefnu og það endurspeglast í nálgun minni á öll okkar verkefni.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu? 

„Ég mæli hiklaust með hugsanalestri en hann sparar bæði tíma og óþarfa fundi. Við erum orðnar svo vel samhæfðar að stundum dugar hálf setning til að koma hlutum af stað. 

En í alvöru talað höldum við skipulaginu einföldu. Eftir að hafa prófað ýmis kerfi höfum við komist að því að beisikk virkar best. 

Fyrir stærri viðburði eins og Iceland Innovation Week notum við líka sértækar lausnir eins og tengslamyndunarapp þar sem þátttakendur geta skipulagt sig sjálfir og bókað fundi sín á milli. 

Við nýtum líka gervigreind óspart í alls konar skipulagningu, sérstaklega í leiðinlegu verkefnin. 

Og svo skiptir mestu máli að halda ró sinni og geta hlegið þegar eitthvað fer úrskeiðis, það er líklega Nirvana viðburðaplanarans.“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin? 

„Ég er á seinni árum orðin mikill aðdáandi ástralskra raunveruleikaþátta og horfi meira á þá en góðu hófi gegnir fyrir svefn. Það er eitthvað við dramatíkina og mjúka hreiminn sem heillar mig. 

Maðurinn minn er reyndar harður á því að viðhalda góðri svefnheilsu og myndi helst vilja sofa í hljóðdempandi svefnhylki ef slíkt byðist, svo ég reyni að taka mér það til fyrirmyndar og fara snemma að sofa með misjöfnum árangri. 

Þegar við erum korter í hátíð get ég alveg viðurkennt að svefnrútínan fer út um gluggann og þá lifi ég á adrenalíni, Google sheets og kaffi eins og fyrir frumsýningar. En þess á milli reyni ég að vera frekar prúð og skríða upp í rúm á skikkanlegum tíma um tíuleytið.“


Tengdar fréttir

Væri þjóðargersemi sem frægur poppari eða leikari

Baldur Rafn Gylfason, hárgreiðslumeistari og eigandi bpro heildsölu, er vaknaður eldsnemma á morgnana og rýkur þá beint af stað á æfingu. Viðurkennir þó að fara of seint að sofa á kvöldin og væri alveg til í að festa það betur í rútínunni að ná að anda djúpt, hugleiða og rækta þakklætið á hverjum degi.

Foreldrarnir byrja daginn á því að dansa og dilla sér

Lilja Kristín Birgisdóttir, markaðs- og upplifunarstjóri hjá Högum, viðurkennir að fara alltof seint að sofa. Hundurinn sér síðan um að koma henni fram úr um sex leytið. Synirnir eru ekkert alltof hrifnir af því að foreldrarnir byrji daginn með dansi.

Alltaf jafn hressandi að fara út og tala aðeins við hundinn

Fannar Örn Þorbjörnsson, framkvæmdastjóri Terra Eininga og Öryggisgirðinga, segir það alltof gott að snúsa á morgnana. Reglulega reynir hann þó að fara í átak, vakna klukkan 06.30 og skella sér í ræktina áður en hann fer að vinna. Síðan hefst snúsið á ný.

„Ég var geggjuð skvísa, en það er ekki mér að þakka“

Erla Ásgeirsdóttir, stjórnarkona og tilvonandi frumkvöðull, segir nátthrafnana á heimilinu oft halda vöku fyrir þeim hjónum. En þarf þó að viðurkenna á sig að vaka stundum of lengi við að horfa á sjónvarpið uppi í rúmi eða hlusta á Storytel.

Það getur allt gerst ef forstjórinn vakir fram yfir klukkan tíu

Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, forstjóri Varðar, er snúsari og hæg í gang á morgnana en mjög góð í að segja brandara. Oft sofnar hún með dóttur sinni rétt fyrir klukkan tíu á kvöldin, en í þau skipti sem hún nær að vaka fram yfir þann tíma getur allt gerst: Kvöldin eru besti tíminn!






Fleiri fréttir

Sjá meira


×