Samgöngur til Vestmannaeyja á kostnað annarra landshluta Hildur Sólveig Sigurðardóttir og Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir skrifa 17. apríl 2026 10:46 Nýleg bilun um borð í Herjólfi hefur enn á ný sýnt hversu viðkvæmar ferjusamgöngur landsins eru. Til að halda uppi samgöngum við Vestmannaeyjar þarf nú að kalla Baldur frá sinni hefðbundnu áætlun á Breiðafirði, sem þýðir skerðingu á samgöngum fyrir íbúa og atvinnulíf við Breiðafjörð. Þetta er ekki einsdæmi heldur endurtekið vandamál. Þegar Herjólfur dettur út hefur það óhjákvæmilega og því miður víðtæk neikvæð keðjuverkandi áhrif á önnur svæði landsins. Samgöngur eru grunnstoð byggða og það er óásættanlegt að heil samfélög þurfi að búa við skerðingar vegna bilana eða reglubundins viðhalds annars staðar. Aldraður floti - flýta þarf nýsmíði Líkt og sést í nýrri samgönguáætlun eru flestar ferjur sem ríkið rekur komnar verulega til ára sinna eða um 30-35 ára og þar sérstaklega tekið fram,, Endurnýjun á ferjum ríkisins er brýn enda eru ferjur í eigu ríkisins orðnar allt að 34 ára gamlar. Á fyrri hluta tímabilsins þarf að undirbúa og hanna það skip sem næst verður endurnýjað vegna aldurs.” Við teljum brýnt að ríkið bregðist við með markvissari hætti. Í samgönguáætlun þarf augljóslega að flýta enn frekar nýsmíði ferju sem getur sinnt lykilhlutverki þegar áætlunarferjur fara í viðhald eða bila óvænt. Slík ferja myndi tryggja stöðugleika, auka öryggi og koma í veg fyrir að eitt svæði landsins beri kostnaðinn af truflunum annars. Viðhalda þarf varaferju Eins er mikilvægt er að sú varaferja sem Vegagerðin á og rekur hverju sinni sé vel viðhaldið og sé tilbúin í áætlun ef á þarf að halda með skömmum fyrirvara. Herjólfur III hefur þjónað hlutverki varaferju undanfarin ár og leyst af m.a. við slipptöku nýja Herjólfs en annars legið við Reykjavíkurhöfn að mestu ónotaður. Slíka varaferju væri einnig hægt að nýta á álagstímum ferjusamgangna og þannig bæta samgöngur við landsbyggðina um leið og skipinu er haldið í starfhæfu ásigkomulagi. Þetta snýst um samgönguöryggi og jafnræði íbúa um allt land. Skera á niður fjármuni til ferjusamgangna Samgönguáætlun 2026-2030 virðist hins vegar fyrst og fremst vera hagræðingaráætlun í ferjusiglingum en á hverju einasta ári til ársins 2030 á að skera niður fjármuni til samninga og reksturs ferja á Íslandi eða um rétt tæpar 300 milljónir í heildina. Það er fullkomlega óásættanlegt og enn eitt skref þessarar ríkisstjórnar í aðför hennar að atvinnulífi og íbúum landsbyggðarinnar. Við köllum eftir því að innviðaráðherra og ríkisvaldið setji þetta mál í forgang og tryggi að framtíðarsýn í ferjusamgöngum taki mið af raunverulegum þörfum landsbyggðarinnar. Hildur Sólveig Sigurðardóttir er bæjarfulltrúi og frambjóðandi í 5. sæti Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum. Viktoría Líf Valdimars Ingibergsdóttir er Sjálfstæðiskona og frambjóðandi í 5. sæti H-listans í Sveitarfélaginu Stykkishólmi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vestmannaeyjar Herjólfur Ferjan Baldur Stykkishólmur Samgöngur Mest lesið Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson Skoðun Skoðun Skoðun Stafrænt fullveldi er ekki frönsk sérviska Þorsteinn Siglaugsson skrifar Skoðun Gervigreind á ekki að hugsa fyrir okkur Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki skrifstofa heldur framkvæmd Auður Axelsdóttir skrifar Skoðun Af hverju „Nei“ 29. ágúst? Alfreð Sturla Böðvarsson skrifar Skoðun Að hafa rétt eftir Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Almyrkvi á sólu 12.ágúst 2026: Gagnlegar upplýsingar Runólfur Þórhallsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB II Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Meitlað í stein eða kannski, hugsanlega, ef til vill Sigurður Egilsson skrifar Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvers vegna ég skipti um skoðun á aðild Íslands að Evrópusambandinu Gunnar Ármannsson skrifar
Skoðun Hvaða áhættu tekur Ísland ef við breytum engu? – Framtíðarsýn til ársins 2050 Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar