Börnin í Hveragerði Þorsteinn Hjartarson og Birgitta Ragnarsdóttir skrifa 11. apríl 2026 19:01 Skólastefna Hveragerðisbæjar er frá árinu 2022 og því komin til ára sinna. Það verður eitt af forgangsmálum S-listans í bæjarstjórn að setja af stað stefnumótunarvinnu í málefnum barna og ungmenna. Margir þurfa að koma að þeirri vinnu, m.a. börnin sjálf, forráðamenn, kennarar, skólastjórnendur og annað starfsfólk leikskóla og grunnskóla. Þá er æskilegt að starfsfólk frístunda og íþrótta taki virkan þátt í vinnunni sem og allir aðrir sem áhuga hafa. Góður aðbúnaður og starf með börnum skiptir miklu fyrir hvert sveitarfélag enda erum við þar að leggja grunninn að þróun samfélagsins og velferð íbúanna. Samkvæmt íslenskum lögum bera sveitarfélög ábyrgð á leikskólum, grunnskólum og mörgum þáttum er varða velferð barna. Stefna í málaflokknum þarf að tryggja að Hveragerðisbær uppfylli kröfur í lögum og reglugerðum og að öll börn í bænum fái góða menntun, snemmtækan stuðning og skilvirka þjónustu. Þar eru sett fram markmið til lengri tíma um það hvaða árangri við viljum ná í námi, kennslu, vellíðan, þroska og félagslegum samskiptum barna. Ný stefna þarf að veita innblástur og leiðsögn Með markvissri stefnumótunarvinnu margra aðila skólasamfélagsins ætti að vera tryggt að tekið sé mið af réttindum barna samkvæmt Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og að hagsmunir þeirra séu alltaf settir í forgang. Stefna í málefnum barna veitir leiðarljós þegar taka þarf ákvarðanir um fjárveitingar, úrræði, starfsþróunarverkefni, þróunarstarf og þjónustustig. Ný stefna þarf að veita innblástur og leiðsögn til allra sem vinna með börnum og ungmennum í Hveragerði. Stefnan þarf að vera eins konar áttaviti sem vísar veginn og leiðbeinir um það hvernig nám, frístundir, íþróttir og listir fléttast saman og stuðla að góðri menntun og vellíðan barna. Með skýrri stefnu í þessum málaflokki er auðveldara að leggja mat á hvort settum markmiðum hefur verið náð og hvort vinna þarf umbótaverkefni. Málefni barna og ungmenna snerta mörg fagsvið, svo sem skóla, skólaþjónustu, félagsþjónustu og heilbrigðisþjónustu. Ný stefna í málefnum barna þarf að auðvelda það mikilvæga verkefni að samræma samstarf mismunandi fagsviða, einnig íþrótta- og tómstundafélaga. Gott samstarf allra þessara aðila ætti að tryggja heildstæða nálgun og samræmda þjónustu. Frambjóðendur S-listans vilja gera allt sem í þeirra valdi stendur til að börnin í Hveragerði hafi góð skilyrði til að læra, þroskast og líða vel. Höfundar eru í fyrsta og öðru sæti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hveragerði Mest lesið Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar