Sterk viska í stafni íslenskrar kjarabaráttu Freyr Snorrason skrifar 9. apríl 2026 15:02 Kaupmáttur ungs fólks hefur staðið í stað í 20 ár. Það er sláandi staðreynd. Hún slær mann af enn meiri þunga þegar kaupmáttaraukning milli kynslóða er skoðuð. Á þessari öld hefur kaupmáttur ráðstöfunartekna ungs fólks milli 30-39 ára aukist um 19% í Danmörku og 31% í Svíþjóð. Hins vegar hefur kaupmáttur 60-69 ára aukist um 64% og hjá fólki yfir 70 ára um 75%. Ójöfnuður milli kynslóða er að aukast um tvöfalt hraðar á Íslandi miðað við Norðurlöndin sem er merki um að hagvöxtur dreifist mjög ójafnt milli kynslóða. Eftir efnahagshrunið 2008 hefur endurheimt kaupmáttar gengið misvel eftir hópum og hvað verst hjá ungu fólki. Árið 2024 höfðu karlar á aldrinum 30-39 ára jafn mikinn kaupmátt og árið 1999. Ótrúleg en sorgleg staðreynd. Það sem veldur er atvinnustefna eftirhrunsáranna sem einblíndi á láglaunastörf í ferðamannaþjónustu. Þannig varð hagvöxtur drifinn áfram af fólksfjölgun, með tilheyrandi þrýsting á húsnæðismarkaði og breyttri samsetningu vinnumarkaðarins. Á sama tímabili flyktist ungt fólk og einkum ungar konur í háskólanám. Hér þarf atkvæðamikið afl sem talar máli ungs og háskólamenntaðs fólks. Það afl er Viska, sem var stofnað 2023 með sameiningu þriggja stéttarfélaga innan BHM. Með áframhaldandi fjölgun félagsfólks og styrkari samtakamætti getur Viska orðið burðarás í lífskjarabaráttu háskólamenntaðrar millistéttar. Sterk Viska getur gert stöðnun kaupmáttar ungs fólks að forgangsmáli í kjarabaráttu. Menntun skal metin til launa og skila sér strax í heimilisbókhaldið en ekki á síðari æviskeiðum. Öflug Viska getur unnið að kerfislausnum í námslánakerfinu svo óstöðugu vaxta- og verðbólgustigi krónunnar sé ekki velt yfir á greiðendur og rýri kaupmátt ungs fólks. Þrýst á lausnir fyrir greiðendur í eldra námslánakerfinu, skoða ætti greiðsluþak og bjóða upp á möguleikann á yfirfærslu námslána í nýja kerfið. Viska þarf að krefjast þess að stjórnvöld móti atvinnustefnu sem er í samhengi við menntunarstig þjóðarinnar. Atvinnustefnu sem tryggir að millistéttin drífi áfram hagvöxt því þannig verður háskólamenntun metin til launa. Hver sem er getur sett fram þessar kröfur en það eru sterk fjöldasamtök með fjölda félagsmanna og sterka hagsmunagæslu sem er hlustað á. Þess vegna verður Viska að halda áfram að stækka. Þannig eykur Viska slagkraft sinn og verður einn af burðarásunum í stefnumótun kjaramála og leiðandi umbótasinnað afl í lífskjara-, húsnæðis- og velferðarmálum Íslands á 21. öldinni. Ég býð fram krafta mína í stjórn Visku því ég brenn fyrir þessu. Að við drögum úr kynslóðaójöfnuði og tryggjum framtíðarkynslóðum sömu lífskjarabætur og þeim sem á undan komu. Ég trúi því að það gerist með sterkri Visku í stafni í íslenskrar kjarabaráttu. Kosning fer fram frá 9. apríl til 16. apríl. Öll sem hafa greitt iðgjald á árinu 2026 geta kosið. Hér er hlekkur á kosningarnar. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðunni minni FreyrSnorrason.is. Höfundur er 28 ára fjölskyldufaðir, borgarfræðingur og í framboði til stjórnar Visku, opið er fyrir kosningu á heimasíðu Visku til hádegis 16. apríl. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Stéttarfélög Mest lesið Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Spírallinn Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Barnið sem mælikvarðinn sér ekki Rebekka Rafnsdóttir skrifar Skoðun Er landsbyggðin hluti af lausninni? Hildur Sólveig Sigurðardóttir skrifar Skoðun Netöryggi snýst líka um að þora að segja frá Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Fortíðin vann Baldur Johnsen skrifar Skoðun Getur maður verið rasisti án þess að gera sér grein fyrir því? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ekki leggja þjóðinni orð í munn Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hvernig hefurðu það? Carmen Maja Valencia skrifar Skoðun Minna kerfi, betri þjónusta Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Forstjóri CIA heimsækir Moskvu Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Trump lítið annað en hvíslari í leikritinu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ísland: Þessi sigur jaðrar við kraftaverk Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Af klósettferðum og frelsinu til að njóta almannarýmis Eva Dögg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar Skoðun Utanríkisráðherra setur EES-samninginn í uppnám Gunnar Bragi Sveinsson skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei – megum við þá ganga frá eftir okkur? Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Foreldrar og þjálfarar: Hvar liggja mörkin? Ragna Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin tapaði – og ætti að segja af sér Eldur Smári Kristinsson skrifar Skoðun Eigum við ekki bara að taka til heima hjá okkur? Guðjón Idir skrifar Skoðun Hugvekja á Höfuðdaginn Ívar Örn Hauksson skrifar Skoðun Við munum ekki hafa neitt neitunarvald Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun NEI heldur öllu opnu. JÁ er vegferð að lokun Haraldur Ólafsson skrifar Skoðun Hvað græði ég á að segja já? Björn B Björnsson skrifar Skoðun Opið bréf til óákveðinna kjósenda Gylfi Zoega skrifar Skoðun Þyrnirinn sem náði í gegn Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Sjá meira
Skoðun „Að tilheyra“, tækifæri til að styðja fyrr við unga fólkið okkar Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar
Skoðun Hvar er eðlilegt að telja atkvæði? (og fleiri góðar samkvæmisvangaveltur) Brynhildur Bolladóttir skrifar