Rósin hefur ekki sagt sig úr flokknum aðeins úr Fulltrúaráði hans í Reykjavík Birgir Dýrfjörð skrifar 7. apríl 2026 09:30 „Það er HEIÐUR fyrir Samfylkinguna að maður eins og Guðmundur Þóroddsson sækist eftir framboði á hennar vegum. Hann er akkúrat sú tenging við þá sem hafa átt undir högg að sækja í okkar samfélagi, sem flokkurinn þarfnast og á að berjast fyrir.” Margrét Sigrún Björnsdóttir skrifaði þessi orð til stuðnings við framboð Guðmundar. Margrét er einn stofnenda Samfylkingarinnar og formaður Framkvæmdastjórnar í mörg ár. Í prófkjörinu hlaut Guðmundur 7. sæti með rúm 1700 atkvæði á bak við sig.Hann óskað þá eftir að fulltrúaráðið virti vilja þeirra 1700 kjósenda, sem kusu hann í það sæti.Hann fékk engin svör við þeirri ósk, hvorki í samtölum eða símtölum og loforð um samtöl stóðust ekki. Björk Vilhelms formaður Fulltrúaráðsins svaraði þó að lokum. En ekki í samtali eða símtali eins og beðið var eftir heldur með viðtali við fjölmiðil, Vísir.is. Þannig var Guðmundur vanvirtur. Svar Fulltrúaráðsins var:„Nei, því miður. Guðmundur er ekki að fá sæti á okkar lista. Þetta mál stendur þannig að það er einhugur í uppstillingarnefnd Samfylkingarinnar, sem er að bjóða ekki fólki sem hefur í hótunum eða stendur í viðtölum við aðra flokka,“ segir Björk í samtali við Vísi. Björk segir að slík vinnubrögð séu ekki að skapi Samfylkingarinnar. „En ef hann hefði nú ekki ólmast svona eins og raun ber vitni, hefði hann þá fengið 7. sætið?”, spurði blaðamaður Vísis. „Það getur vel verið,“ segir Björk og segir að það megi koma skýrt fram að þau í uppstillingarnefnd hafi nákvæmlega ekkert á móti Guðmundi Inga né hans bakgrunni (takið eftir orðunum, „hans bakgrunni” og hvað þau eru lævís ábending). „Hann hefur talað um að við höfum hafnað hans málefnum eða persónu svo er ekki.Við erum hins vegar að hafna þeim vinnubrögðum sem hafa opinberast undanfarið sem eru með þeim hætti að ekki hefur myndast traust milli okkaroghans“. Þegar svo var komið að Fulltrúaráðið í Reykjavík lýsti yfir í fjölmiðlum að Guðmundur nyti ekki trausts þess, þá var honum þar með úthýst. Rökin voru slúður og skröksögur. Þannig var eyðilögð von hans að mega nota einstæða lífsreynslu sína öðrum til hjálpar. Þessi höfnun var Guðmundi mikið áfall. Hann hefur í mörg ár menntað sig í þeim eina tilgangi að nýta einstæða lífsreynslu sína til hjálpar þeim sem hafa farið út af sporinu og þurfa aðstoð til að rata til baka. Dýrmæt reynsla hans og góður ásetningur er fágætur auður, sem hann þráir að gefa öðrum til bjargar. Því er framboð hans heiður þó þröngsýnt fólk skilji það ekki.Þegar öll sund virtust lokuð bauðst Guðmundi að koma hugsjónum sínum til áhrifa í borgarstjórn. Honum bauðst að skipa 1. sæti á lista Flokks fólksins. Eftir yfirlýsingu Samfylkingarinnar um vantraust á Guðmund var sjálfgefið fyrir hann að taka boði Flokks fólksins, enda hafa báðir sígilda jafnaðarstefnu sem leiðarljós.Eins og málum er nú háttað, þarf ekki að koma á óvart ef kjósendur í Reykjavík álíta að stuðningur við jafnaðarstefnuna sé nær sanni í höndum fulltrúa Flokks fólksins, en þeirra sem lúta hrokafullu geðþóttavaldi stjórnar Fulltrúaráðs Samfylkingarinnar í Reykjavík. Höfundur er jafnaðarmaður. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birgir Dýrfjörð Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson Skoðun Skoðun Skoðun Hinn háskalegi hugsunarháttur Sighvatur Björgvinsson skrifar Skoðun Alþjóðadagur friðarmenningar 21. september Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun 37% og reikningskúnstir Viðskiptaráðs Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Hvers vegna hrynur námsárangur á Íslandi en ekki á Englandi? Guðrún Sævarsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigð skynsemi Einar Bárðarson skrifar Skoðun Samsköttun hjóna – allt annar hlutur? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tæknin í okkar þágu – ekki öfugt Halla Tómasdóttir skrifar Skoðun Pólland setur jurtaríkið á matseðilinn Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Hún þekkir mig með hjartanu Thelma Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvalveiðum er lokið... í bili Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hver borgar? — Seinni hluti: Já 2026 Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar Skoðun Þú, ég og dildóinn Eva Pandora Baldursdóttir skrifar Skoðun SÁÁ, milljarðarnir og aðhaldið sem vantar Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Sheeran og Gaza Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Sameinumst um 2,5 prósent markmið Seðlabankans Bragi Bjarnason skrifar Skoðun Lestur er meira en ein aðferð Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Hver skilgreinir svarið? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Krónan varð eftir – nú þarf að láta hana virka Örn Sigurdsson skrifar Skoðun Grænlandssamningurinn Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun Uppsagnir hafnar en ríkið er ekki tilbúið að taka við Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Þegar faglegt sjálfstæði verður að neitunarvaldi Ketill Guðmundsson skrifar Skoðun Penelópa í Valhöll Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þegar „fjölmiðlastyrkir“ eru ekki fyrir alla fjölmiðla Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Litlar ákvarðanir geta leitt til fleiri heilbrigðra æviára Thor Aspelund skrifar Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Allt landið eitt kjördæmi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Ég ætla ekki að verða sérfræðingur í salernispappír Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ástæðan fyrir ástandinu hjá SÁÁ Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Hvers vegna er ég ekki kominn lengra? Sigurður Árni Reynisson skrifar Sjá meira
„
Skoðun Parkour skúrinn - Síðasta vígið Davíð Már Sigurðsson, Tommi Thor Guðmundsson,Viktor Yngvi Ísaksson skrifar
Skoðun Ferðaskrifstofur í gíslingu kjaradeilna: Hver á að borga brúsann? Ásdís Eir Guðmundsdóttir skrifar