Kallar eftir breytingum á lífeyriskerfinu til að lækka íbúðalánavexti Birgir Olgeirsson skrifar 1. apríl 2026 13:26 Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banki, segir að lægri íbúðalánavextir ráðist ekki bara af Seðlabankanum heldur líka af lífeyriskerfi sem haldi uppi verðtryggingu og háu vaxtastigi. Vísir/Vilhelm Ráðast þarf í breytingar á íslenska lífeyriskerfinu til að skapa varanlegar forsendur fyrir lægri vöxtum á íbúðalánum, að mati Benedikts Gíslasonar, bankastjóra Arion banka. Í aðsendri grein á Innherja heldur hann því fram að núverandi fyrirkomulag lífeyriskerfisins, þar sem verðtrygging og föst raunávöxtunarforsenda séu í lykilhlutverki, haldi uppi hærra vaxtastigi en ella og bitni sérstaklega á ungu fólki á húsnæðismarkaði.
Í greininni er því haldið fram að lægri vextir byrji ekki í Seðlabankanum heldur í kerfisbreytingum á lífeyrismarkaði. Verðtryggt lífeyriskerfi með fastri 3,5 prósenta raunávöxtunarforsendu kalli að mati Benedikts á verðtryggt fjármálakerfi og slíkt kerfi leiði til hærra vaxtastigs en ella. Lífeyrissjóðir hafi afgerandi áhrif á markaðinn Sérstaklega er bent á áhrif lífeyrissjóða á íbúðalánamarkaðinn. Sá markaður er sagður tæplega 3.000 milljarðar króna að stærð og lífeyrissjóðir standa, samkvæmt greininni, á bak við 28 prósent lánveitinga með beinum hætti. Auk þess fjármagni þeir 14 prósent markaðarins í gegnum íbúðalán bankanna, þannig að heildarhlutdeild þeirra nemi um 42 prósentum. Jafnframt er bent á að lífeyrissjóðir eigi 70 prósent allra skráðra skuldabréfa á Íslandi og að 85 prósent þeirra séu verðtryggð. Að mati Benedikts sýnir það hversu sterk áhrif sjóðirnir hafi á skuldabréfamarkaðinn og þar með á kjör heimila. Yngri kynslóðir beri þyngstu byrðina Í greininni segir einnig að yngri kynslóðir beri margþætta byrði í þessu kerfi. Þær standi ekki aðeins frammi fyrir háum vöxtum og verðtryggðum íbúðalánum heldur greiði jafnframt að lágmarki 15,5 prósent af heildarlaunum í lífeyrissjóð. Þá sé uppsafnað skuldbindingagat ríkisins vegna lífeyrisréttinda metið á um 1.000 milljarða króna. Benedikt heldur því fram að samspil hárra vaxta, hárra skylduiðgjalda og skattbyrði geri fyrstu ár fólks á vinnumarkaði og húsnæðismarkaði sérstaklega þung. Vísar til Danmerkur og Hollands Til samanburðar er vísað til Danmerkur og Hollands, þar sem gripið hafi verið til breytinga á lífeyriskerfum til að dreifa áhættu með öðrum hætti milli kynslóða. Þar séu lífeyrisgreiðslur almennt ekki verðtryggðar með sjálfvirkum eða lögbundnum hætti heldur ráðist verðbætur frekar af stöðu sjóðanna hverju sinni. Samkvæmt greininni hafi þessi ríki valið að stíga frá föstum loforðum um tiltekna raunávöxtun og færa sig yfir í sveigjanlegra kerfi sem endurspegli betur raunverulega verðmætasköpun í hagkerfinu. Vill endurskoða grunnforsendur kerfisins Í lok greinarinnar er kallað eftir því að horfið verði frá verðtryggðri 3,5 prósenta ávöxtunarforsendu og óskilyrtri verðtryggingu lífeyrisgreiðslna, lífeyrisskuldbindingar verði endurmetnar út frá raunverulegri ávöxtun og opnað verði fyrir að einstaklingar geti stýrt sjálfir hluta lífeyrisiðgjalda sinna. Meginskilaboðin eru þau að ekki verði skapaðar varanlegar forsendur fyrir lægri vöxtum nema ráðist verði í breytingar á kerfi sem hafi um langt árabil mótað bæði skuldabréfamarkað og kjör heimilanna.
Lífeyrissjóðir Fjármálafyrirtæki Arion banki Mest lesið Fær 9,5 fyrir IKEA og JYSK samsetningar Atvinnulíf Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til Viðskipti erlent Klíníkin sótti 300 milljónir króna Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Viðskipti innlent G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Viðskipti erlent Fleiri fréttir Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Sjá meira