Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Birgir Olgeirsson skrifar 31. mars 2026 11:04 28 flugfélög flugu frá Keflavíkurflugvelli árið 2025. Vilhelm Vefur undir nafninu Yelo Air hefur vakið athygli innan flugbransans og kallað fram spurningar um hvort nýtt íslenskt flugfélag sé í burðarliðnum. Samkvæmt upplýsingum fréttastofu liggja þó hvorki fyrir umsóknir hjá Samgöngustofu um flugrekstrarleyfi né hjá Ferðamálastofu um ferðaskrifstofuleyfi vegna verkefnisins.
Fréttastofa náði tali af einum af aðstandendum vefsins sem vildi ekki koma fram undir nafni og taldi ekki tímabært að tjá sig því verkefnið væri á frumstigi. Að því er fram kemur á vef verkefnisins er Yelo Air íslenskt flugfélag og einkaframtak. Þar kemur fram að það sé viljandi gert að greina ekki frá flugleiðum eða viðskiptaáformum að svo komnu fyrr en fjármögnun, mönnun og leyfi liggja fyrir. Það er enda umfangsmikið ferli að koma nýju flugfélagi af stað. Samkvæmt lögum þarf leyfi Samgöngustofu til að starfrækja loftfar í ábataskyni hér á landi og aðeins handhafar flugrekstrarleyfis mega flytja farþega, farm eða póst í slíkum rekstri. Til að fá slíkt leyfi þarf félag meðal annars að hafa höfuðstöðvar á Íslandi, gilt flugrekandaskírteini, aðgang að einu eða fleiri loftförum og uppfylla skilyrði um íslenskt eignarhald og raunverulega stjórn. Kröfurnar snúa ekki heldur bara að pappírsvinnu. Gert er ráð fyrir að rekstraraðili hafi nægilegt og hæft starfsfólk miðað við umfang starfseminnar, auk ábyrgðarmanns og tilnefndra ábyrgðaraðila á lykilsviðum eins og flugrekstri, þjálfun áhafna, starfsmanna sem þjónusta flugvélar og lofthæfi.
Fréttir af flugi Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Nýr kafli hafinn hjá NOMY Samstarf Fór úr sjúkraþjálfun og stofnaði fyrirtæki í kringum ástríðuna Framúrskarandi fyrirtæki Nýtt gæðakerfi Michelin Expert center hjá N1 Samstarf Tæplega þrjátíu sagt upp Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Viðskipti innlent Vinnu-hopp orðið að taktík og gæti leitt til hærri launa hraðar Atvinnulíf Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Viðskipti innlent Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Viðskipti innlent Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Viðskipti innlent Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Sjá meira