Þau sem töluðu um hvalrekaskatt og hin sem þora að leggja hann á Þórður Snær Júlíusson skrifar 28. mars 2026 07:33 Það átta sig sennilega flestir á að ein stærsta ástæðan fyrir því að við höfum verið að glíma við háa vexti og verðbólgu árum saman á sér rætur í þeim aðgerðum sem stjórnvöld á Íslandi gripu til í kórónuveirufaraldrinum, þegar ríkissjóður tók lán upp á mörg hundruð milljarða króna og dældi þeim út um allt samfélagið. Auðvitað var nauðsynlegt að bregðast við þeirri óvenjulegu stöðu sem var uppi í heimsfaraldrinum en mistök síðustu ríkisstjórnar fólust í því að stuðningurinn lenti í mörgum tilvikum ekki þar sem mest þörf var fyrir hann og aðgerðunum var viðhaldið allt of lengi. Allt þetta var í takti við verk þeirrar stjórnar frá því að hún tók við árið 2017 og þangað til að henni var hafnað í kosningum 2024. Aðgerðir voru ófjármagnaðar, juku á þenslu í þegar afar heitu hagkerfi, fólu í sér innleiðingu alls kyns skattstyrkja til þeirra sem þurftu ekki á þeim að halda og skilaði því að álögum var létt á efstu tekjutíundina á meðan að þær jukust á aðra. Þetta skilaði því meðal annars að ríkissjóður var samtals rekinn í 830 milljarða króna frá árinu 2019 og fram til dagsins í dag. Berum ábyrgð hvort á öðru Í vikunni var svo kynnt fjármálaáætlun næstu fimm ára þar sem boðað var að ríkissjóður verði ekki rekinn í halla í fyrsta sinn í næstum áratug. Að grunnur sé lagður fyrir lækkun vaxta með ábyrgum áherslum og stöðugleika, að skuldir ríkissjóðs muni halda áfram að lækka og að áfram verði fjárfest af krafti þar sem þarf að bæta, sérstaklega í heilbrigðiskerfi, samgöngum, málefnum barna, menntamálum og öðrum lykilmálaflokkum sem styðja við verðmætasköpun, lífskjör og aukin lífsgæði. Vöxtur með velferð, ekki á kostnað hennar eins og var hér allt of lengi. Þar er líka boðað að skattur á banka verði loksins hækkaður á ný. Það á að skila ríkissjóði um sex milljörðum króna í nýjar tekjur á næsta ári til að standa undir samneyslunni. Allt er þetta í takti við kjarnastefnu jafnaðarfólks, um að við búum í samfélagi, leggjum öll til eftir þörfum og getu og berum ábyrgð hvert á öðru. Bankaskattur lækkaður en vaxtamunur dróst ekki saman Rifjum aðeins upp það sem verið er að vinda ofan af. Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Vinstri grænna og Framsóknarflokks nýtti ferðina í kórónuveirufaraldrinum meðal annars í að lækka hinn svokallaða bankaskatt. Forsvarsmenn íslensku bankanna, sem voru reistir við eftir bankahrun með handafli ríkissjóðs og hafa helst tekjur af því að lána íslenskum heimilum og fyrirtækjum peninga, höfðu kvartað yfir því árum saman að bankaskatturinn væri ósanngjarn, drægi úr samkeppnishæfni og gerði það að verkum að vaxtamunur – munurinn á þeim vöxtum sem bankarnir borga fyrir að fá peninga að láni og þeim vöxtum sem þeir rukka fyrir að lána einstaklingum og fyrirtækjum fjármuni – væri miklu meiri á Íslandi en annars staðar. Bankaskatturinn var svo lækkaður myndarlega árið 2021 úr 0,376 prósentum af heildarskuldum banka umfram 50 milljarða króna í 0,145 prósent án þess að vaxtamunurinn færðist neitt til. Skattalækkun sem stungið var í vasann Þess í stað stungu bankarnir þrír ávinningnum af skattalækkuninni í vasann. Þeir notuðu hann til að auka arðsemi sína, og hluthafa sinna, en áætlað hefur verið að skattalækkunin hafi minnkað skattgreiðslur bankanna þriggja um samtals tólf milljarða króna fyrstu þrjú árin eftir að hún tók gildi, og enn meira síðan þá. Þetta hefur skilað því að bankarnir hafa hagnast gríðarlega á síðustu árum. Arðsemiskrafa þeirra, undirliggjandi markmið um hvað hver banki ætlar að græða mikið á því að miðla peningum frá einum til annars, er að margra mati of há miðað við að íslensku bankarnir starfi á lokuðum fákeppnismarkaði. Í fyrra högnuðust stóru bankarnir þrír: Landsbankinn, Íslandsbanki og Arion banki til dæmis um 94 milljarða króna og allir græddu meira en þeir stefndu að. Arðsemi þeirra var vel umfram kröfu og miklu hærri en almennt hjá bönkum í Evrópu. Uppistaðan í þeim mikla hagnaði voru vaxtatekjur af því að lána íslenskum heimilum og fyrirtækjum peninga. Talað um hvalrekaskatt á ofsagróða Á síðasta kjörtímabili átti sér sannarlega stað umræða um að grípa inn í þessa stöðu þegar ljóst var í hvað stefndi. Að fara í aðgerðir sem gætu aflað nýrra tekna og dregið úr þenslu. Einn forystumanna þeirrar ríkisstjórnar sem sat þá að völdum fór til að mynda í viðtal í febrúar 2022 og viðraði útfærðar hugmyndir um að leggja á svokallaðan hvalrekaskatt. „Ef það er ofsagróði eða ofurhagnaður hjá einhverjum aðilum, þá eigum við að gera það. Ég er líka á þeirri skoðun að þetta ætti að eiga sér stað varðandi sjávarútveginn. Þar sem við sáum ofurhagnað í einhverjum greinum þá á að skattleggja það.“ Áður hafði sami einstaklingur, ráðherra í ríkisstjórn Íslands, sagt að það ætti að hækka bankaskatt í ljósi þess hagnaðar sem íslensku bankarnir höfðu haft á tímum þar sem heimsfaraldur geisaði Þessi ráðherra var Lilja Alfreðsdóttir, sem í dag er formaður Framsóknarflokksins. Hún bætti því við að þingflokkur Framsóknar styddi þessar hugmyndir. Nákvæmlega ekkert var gert með þær. Þau sem tala og þau sem gera Sú ríkisstjórn sem tók við völdum á Íslandi í desember 2024, og hefur stýrt landinu í um 15 mánuði, hefur hins vegar brugðist hratt við og látið verkin tala við að jafna byrðarnar. Í fyrrasumar var þjóðinni loksins tryggð réttlát hlutdeild í arðsemi sjávarútvegsfyrirtækja af því að nýta auðlindir í eigu okkar allra. Þá lögðust þeir flokkar sem eru eftir á þingi úr síðustu ríkisstjórn í lengsta málþóf Íslandssögunnar til að reyna að koma í veg fyrir að þetta yrði að veruleika. Þeir fjármunir sem rata í ríkissjóð vegna þessa munu renna í að vinna upp mörg hundruð milljarða króna innviðaskuld sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur fékk í arf. Nú bætist við hvalrekaskattur á hagnað banka til viðbótar við áframhaldandi fækkun undanþága í skattkerfinu. Í þessu kristallast munurinn á ríkisstjórn sem talar um að gera hlutina, og ríkisstjórn sem gerir það sem hún segist ætla að gera. Höfundur er framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þórður Snær Júlíusson Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Skattar, tollar og gjöld Fjármálafyrirtæki Mest lesið Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman Skoðun Skoðun Skoðun Þetta hjólar sig ekki sjálft Birgir Birgisson skrifar Skoðun Vefsíðan er dauð! Lengi lifi amma dreki! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar Skoðun Spjall við Guð Atli Sævar Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað er svona sérstakt við börn fædd í apríl? Nanna Kristín Tryggvadóttir skrifar Skoðun Dauðalæsi: Þegar samtalið skiptir mestu máli Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Öflugasta endurhæfingarstofnun Íslands verður að fá slagkraft á ný Halldór Víglundsson skrifar
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun