Góð áminning um „Birkenstock-liðið“ sem heldur samfélaginu gangandi Helga Rósa Másdóttir, Magnús Þór Jónsson og Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifa 22. mars 2026 10:16 Á Alþingi í vikunni var opinberum starfsmönnum lýst sem týpum sem eru samgróin Birkenstock inniskónum sínum. Væntanlega hefur viðkomandi séð fyrir sér stelpurnar sem starfa á spítalanum druslast sín 10.000 skref á vaktinni í inniskónum. Eða lögreglumanninn sem lufsast í inniskónum í handtöku á vopnuðum ofbeldismanni. Kannski framhaldsskólakennarann sem á að tryggja einstaklingsmiðaðan árangur 30 nemenda – með 90 sekúndur á hvern. Konur eru um 70% starfsfólks á opinbera vinnumarkaðnum en um 40% allra kvenna á Íslandi starfa hjá hinu opinbera. Nærri helmingur ríkisstarfsmanna starfar í heilbrigðis- og félagsþjónustu og um helmingur starfsmanna sveitarfélaga í menntakerfinu. Starfsfólk á opinberum vinnumarkaði veitir þjónustu sem hefur bein áhrif á öryggi og heilsu almennings, jöfnuð, félagslega samheldni og velsæld. Störfin spanna allt frá nánum samskiptum við fólk í viðkvæmum aðstæðum — í heilbrigðisþjónustu, menntakerfi, löggæslu, fangelsum og félagsþjónustu — yfir í rekstur og viðhald mikilvægra samfélagsinnviða á borð við vegakerfi, almenningssamgöngur og orkumál. Svo eru það verkefnin sem hafa bein áhrif á líf og afkomu fólks: almannatryggingar, sjúkratryggingar, atvinnuleysistryggingar, útgáfa vegabréfa og yfirferð skattskýrslna. Á bak við hvert þessara verkefna er starfsfólk sem ber ábyrgð á að þjónustan virki og að almenningur geti treyst henni. Íslendingar hafa lengi talið almannaþjónustuna vera meðal mikilvægustu stoða samfélagsins. Þjónustan væri ekki til staðar nema fyrir starfsfólkið sem veitir hana. Þau starfa á hverjum degi í aðstæðum sem algengt er að einkennist af viðvarandi aðhaldskröfu eða niðurskurði, manneklu og skorti á fjárfestingu í húsnæði, búnaði og tækjum. Kannski var starfsmaðurinn sem vann við hættulegar aðstæður og smitaðist af berklum í vinnunni í Birkenstock? Þegar ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttir þegir yfir lítillækkandi orðræðu gagnvart opinberu starfsfólki er hún ekki hlutlaus – hún er að samþykkja hana. Og þegar hún velur að bregðast við með því að veikja ráðningarvernd þessa hóps blasir forgangsröðunin við. Minna öryggi fyrir fólkið sem ber uppi samfélagið. Áminningarskyldan er ekki forréttindi eða hindrun – hún er lágmarksvernd gegn geðþótta, óréttlæti og óvönduðum stjórnarháttum. Að afnema hana leysir ekkert af þeim raunverulegu vandamálum sem blasa við eins og skort á starfsfólki eða óviðunandi starfsaðstæður. Það sendir hins vegar skýr skilaboð um að fólkið sem heldur samfélaginu gangandi eigi að bera meiri ábyrgð en njóta minni verndar. Spurningin er einföld: ætlar ríkisstjórnin að standa með ómissandi opinberum starfsmönnum eða liðinu á lakkskónum sem græðir á daginn og grillar á kvöldin? Með því að smella hér má sjá opinberan starfsmann í hlaupaskónum segja frá því hvað henni finnst um aðför ríkisstjórnarinnar að réttindum sínum. Frekari upplýsingar á https://godaminning.is/ Helga Rósa Másdóttir er formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga, Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands og Sonja Ýr Þorbergsdóttir er formaður BSRB. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Magnús Þór Jónsson Sonja Ýr Þorbergsdóttir Rekstur hins opinbera Alþingi Helga Rósa Másdóttir Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson Skoðun Skoðun Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar