Lögmaður á villigötum – skák og mát… Agnar Þór Guðmundsson skrifar 20. mars 2026 07:31 Þann 4. desember s.l. skrifaði undirritaður grein Lögmaður á villigötum – eða hvað? sem birtist á Vísi sem andsvar við grein Magnúsar M. Nordal lögfræðings ASÍ, Lögmaður á villigötum, sem birtist á Vísi þann 3. desember. Í greininni vakti undirritaður athygli á því að samtök stéttarfélaga hefðu samþykkt kjarasamninga við Reykjavíkurborg þar sem hlutastarfandi starfsmönnum Reykjavíkurborgar væri mismunað í vinnuslysum. Þá upplýsti undirritaður að hann hefði stefnt Reykjavíkurborg fyrir héraðsdóm til heimtu bóta fyrir hlutastarfandi starfsmanna. Atvik máls voru þau að hlutastarfandi starfsmaður Reykjavíkurborgar varð fyrir slysi á leið sinni heim úr vinnu. Borgarlögmaður hafði hafnað bótaskyldu úr kjarasamningsbundinni slysatryggingu starfsmannsins með vísan til reglna nr. 1/90 og byggði höfnunin á því að þar sem starfsmaðurinn hafi slasast í aukastarfi sínu væri hún ekki tryggð. Skemmst er frá því að segja að gerð var dómsátt við Reykjavíkurborg, þar sem fallist var á greiðslu bóta, auk vaxta og málskostnaðar. Mun fjöldi mála þar starfsmenn sem hafa slasast í aukastarfi sínu fyrir Reykjavíkurborg fylgja í kjölfarið enda eiga allir þeir starfsmenn sem hafa slasast í aukastörfum sínum fyrir Reykjavíkurborg að fá sömu afgreiðslu á málum sínum. Þetta „einfalda mál“ sýnir mikilvægi þess að tjónþolar leiti til lögmanna sem sérhæfa sig í bótarétti þegar slys ber að höndum. Alvarleiki málsins er sá að um þessa réttarstöðu sömdu stéttarfélög fyrir hönd félagsmanna sinna við gerð kjarasamninga og samþykktu þannig mismunun á réttindum hluta félagsmanna sinna á grundvelli starfshlutfalls. Alvarlegast er þó að í stað þess að breyta þessu við endurnýjun kjarasamninga virðast samtök stéttarfélaga einungis hafa sent kæru til ESA, líkt og fram kemur í grein Magnúsar. Mikilvægt er að í stað þess að þræða villigötur, að þau samtök sem hafa þann tilgang að gæta hagsmuna félagsmanna sinna í kjarabaráttu, hvort sem um er að ræða heildarsamtök stéttarfélaga eða neytendasamtök, standi vörð um réttindi allra félagsmanna sinna -ekki bara sumra. Höfundur er hæstaréttarlögmaður hjá Fulltingi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögmennska Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Sjá meira
Þann 4. desember s.l. skrifaði undirritaður grein Lögmaður á villigötum – eða hvað? sem birtist á Vísi sem andsvar við grein Magnúsar M. Nordal lögfræðings ASÍ, Lögmaður á villigötum, sem birtist á Vísi þann 3. desember. Í greininni vakti undirritaður athygli á því að samtök stéttarfélaga hefðu samþykkt kjarasamninga við Reykjavíkurborg þar sem hlutastarfandi starfsmönnum Reykjavíkurborgar væri mismunað í vinnuslysum. Þá upplýsti undirritaður að hann hefði stefnt Reykjavíkurborg fyrir héraðsdóm til heimtu bóta fyrir hlutastarfandi starfsmanna. Atvik máls voru þau að hlutastarfandi starfsmaður Reykjavíkurborgar varð fyrir slysi á leið sinni heim úr vinnu. Borgarlögmaður hafði hafnað bótaskyldu úr kjarasamningsbundinni slysatryggingu starfsmannsins með vísan til reglna nr. 1/90 og byggði höfnunin á því að þar sem starfsmaðurinn hafi slasast í aukastarfi sínu væri hún ekki tryggð. Skemmst er frá því að segja að gerð var dómsátt við Reykjavíkurborg, þar sem fallist var á greiðslu bóta, auk vaxta og málskostnaðar. Mun fjöldi mála þar starfsmenn sem hafa slasast í aukastarfi sínu fyrir Reykjavíkurborg fylgja í kjölfarið enda eiga allir þeir starfsmenn sem hafa slasast í aukastörfum sínum fyrir Reykjavíkurborg að fá sömu afgreiðslu á málum sínum. Þetta „einfalda mál“ sýnir mikilvægi þess að tjónþolar leiti til lögmanna sem sérhæfa sig í bótarétti þegar slys ber að höndum. Alvarleiki málsins er sá að um þessa réttarstöðu sömdu stéttarfélög fyrir hönd félagsmanna sinna við gerð kjarasamninga og samþykktu þannig mismunun á réttindum hluta félagsmanna sinna á grundvelli starfshlutfalls. Alvarlegast er þó að í stað þess að breyta þessu við endurnýjun kjarasamninga virðast samtök stéttarfélaga einungis hafa sent kæru til ESA, líkt og fram kemur í grein Magnúsar. Mikilvægt er að í stað þess að þræða villigötur, að þau samtök sem hafa þann tilgang að gæta hagsmuna félagsmanna sinna í kjarabaráttu, hvort sem um er að ræða heildarsamtök stéttarfélaga eða neytendasamtök, standi vörð um réttindi allra félagsmanna sinna -ekki bara sumra. Höfundur er hæstaréttarlögmaður hjá Fulltingi.
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar