Tenging almannatrygginga við launavísitölu – ófyrirséðar afleiðingar fyrir börn og jöfnuð Lúðvík Júlíusson skrifar 19. mars 2026 13:02 Alþingi hefur samþykkt að tengja almannatryggingar við launavísitölu. Markmiðið er að tryggja kaupmátt en ekkert kerfisbundið áhrifamat fylgdi frumvarpinu. Það er áhyggjuefni, því án áreiðanlegra gagna er erfitt að meta hverjir hagnast og hverjir tapa — og hvaða áhrif breytingin hefur á börn, foreldra og jafnrétti. Hverjar eru staðreyndirnar? Meðlagsgreiðslur, sem hingað til fylgdu verðlagi og launabreytingum til hálfs, breytast með nýju fyrirkomulagi. Ekkert jafnréttismat eða áhrifamat var lagt fyrir Alþingi þrátt fyrir að breytingin hafi bæði bein og óbein áhrif á kynin og fjölskyldur.(1) Forsætisráðuneytið birti rannsókn á fátækt í júní 2023 sem bendir á að börn hjá umgengisforeldrum séu í aukinni hættu á að lifa í fátækt; breytingar sem auka byrðar umgengisforeldra geta aukið fátækt barna.(2) Áhrif á fötluð börn og foreldra Alþingi staðfesti nýlega Samning SÞ um réttindi fatlaðs fólks og barna. Við ákvörðun um breytingar á meðlagsgreiðslum voru áhrif á fatlað börn og foreldra ekki metin sérstaklega. Foreldrar fatlaðra barna sem eru meðlagsgreiðendur eru oft fjárhagslega verr staddir. Þeir fá ekki sérstakar bætur og stuðning sem aðrir foreldrar njóta. Því eykst hættan á að fötluð börn lendi í fátækt, með slæmum afleiðingum fyrir líkamlega og sálræna heilsu þeirra. Áhrif á jafnrétti og samfélag Breytingin hefur ólíkar afleiðingar eftir kyni: Karlar eru oftast meðlagsgreiðendur og ef þeir þurfa að vinna meira til að viðhalda fyrri lifnaðarhætti þá eykur það umönnunarbyrði kvenna. Aðgerðin gengur gegn markmiðum um útrýmingu fátæktar (Heimsmarkmið 1), jafnrétti kynjanna (Heimsmarkmið 5) og auknum jöfnuði (Heimsmarkmið 10). Hún er einnig í ósamræmi við ýmis ákvæði Barnasáttmála SÞ um hagsmuni barns og stuðning við fjölskyldu. Mig langar einnig að benda á eftirfarandi: Verða börn í verri stöðu eftir þessar breytingar? Já, hópur barna mun vera í verri stöðu eftir þessar breytingar. Er farið í mótvægisaðgerðir til að mæta þessum hópi barna? NEI. Er hugað að því hvort þetta hefði neikvæð áhrif á fatlaða foreldra eða börn? NEI. Hefur þessi breyting neikvæð áhrif á fötluð börn? Já, þessi breyting hefur neikvæð áhrif á hóp fatlaðra barna. Setur þessi breyting ólíkar kröfur á karla og konur? Já, þar sem karlar eru almennt meðlagsgreiðendur og konur meðlagsþyggjendur þá þurfa karlar að vinna meira til að veita börnum sínum sömu lífskjör og áður. Það þýðir að þeir vinna meira, hafa hærri tekjur og öðlast meiri réttindi. Þar sem feður þurfa að vinna meira þá lendir það á mæðrum að sinna umönnun. Þetta er augljóst bakslag í jafnréttismálum. Samantekt Þetta veldur því að Ísland fjarlægist heimsmarkmið 1 um útrýmingu fátæktar, heimsmarkmiði 5 um Jafnrétti kynjanna og heimsmarkmiði 10 um aukinn jöfnuð. Þetta er einnig í andstöðu við ýmis ákvæði Barnasáttmála SÞ. T.d. ákvæði 3 um það sem barni er fyrir bestu, ákvæði 5 um leiðsögn fjölskyldu, ákvæði 6 um líf og þroska, ákvæði 9 um tengsl við fjölskyldu, ákvæði 18 um ábyrgð foreldra, ákvæði 23 um fötluð börn og ákvæði 26 um félagslega aðstoð. Tenging almannatrygginga við launavísitölu býr til vandamál sem nauðsynlegt er að leysa sem fyrst. Það hefði verið mun betra ef Alþingi og velferðarnefnd Alþingis hefðu óskað eftir bæði áhrifamati og jafnréttismati og unnið vinnuna sína betur. Nú situr hópur foreldra fatlaðra barna eftir í verri málum en áður og Alþingi ætlar ekki að gera neitt. Það er mjög einkennilegt af stjórn sem ætlar sér að berjast fyrir auknum jöfnuði og fyrir hagsmuni fatlaðra. Höfundur er viðskiptafræðingur og 4ra barna faðir. (1)https://www.stjornarradid.is/verkefni/opinber-fjarmal/kynjud-fjarlagagerd/greiningarrammi-fyrir-jafnrettismat/ (2)https://www.stjornarradid.is/library/02-Rit--skyrslur-og-skrar/F%C3%A1t%C3%A6kt%20og%20%C3%A1%C3%A6tla%C3%B0ur%20samf%C3%A9lagslegur%20kostna%C3%B0ur.pdf Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lúðvík Júlíusson Mest lesið Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir Skoðun Handbók MAGA hreyfingarnar: Flood the zone with shit Guðni Freyr Öfjörð Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Skoðun Fleyg ummæli á Alþingi! Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Leikskóli á að vera réttur allra barna Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Ísland þarf að breyta um takt í netöryggismálum Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir skrifar Skoðun Hvenær varð uppruni að skýringu á öllu? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Heilbrigðisvottorð fyrir nýtt samband? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Þegar enginn veit hvað er til í ísskápnum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Unga fólkið borgar tvisvar – efnahagur foreldra skiptir sköpum Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Stærsta gjöfin gæti verið líffæragjöf Sunna G. Sigurðardóttir skrifar Skoðun Málþroskaþjófar og misskilin góðmennska Hallfríður Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Þegar konur komast ekki upp á skoðunarbekkinn Þuríður Harpa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Góðvild er ekki stefna Elliði Vignisson skrifar Skoðun Frumkvöðlar dagsins eru skattgreiðendur framtíðarinnar Arnar Bjarnason skrifar Skoðun Verða íslenskar afurðir „Made in Europe“? Hallgrímur Oddsson skrifar Skoðun Hvernig samfélagi viltu búa í? Jóna Björk Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar Skoðun Þegar íslenskt auglýsingafé leitar til erlendra tæknirisa Hólmgeir Baldursson skrifar Skoðun Námsmat í 10. bekk skólaárið 2026-2027 Gauti Eiríksson skrifar Skoðun Þjáist þú af staðreyndagreddu? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Landakortið minnkar ekki þótt lögreglustjórum fækki Lárus Bjarnason skrifar Skoðun Komdu með nestispeningana Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Skoðun Endurgreiðsla vegna viðhalds er fjárfesting til framtíðar Jóhannes Unnar Barkarson skrifar