Uppgjörið: Serbía - Ísland 92-66 | Stelpurnar okkar svæfðar í Serbíu Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar 11. mars 2026 16:18 Stelpurnar okkar áttu frábæran fyrri hálfleik í kvöld og var staðan jöfn að honum loknum. Serbía sigraði Ísland, 92-66, í Novi Sad í undankeppni EM í körfubolta kvenna í kvöld. Þær íslensku höfðu byrjað undankeppnina í brekku, tapað báðum leikjum sínum og skrapa botninn á riðlinum. Fyrst töpuðu þær fyrir Serbíu með tuttugu og fimm stigum á heimavelli og svo með þrjátíu stigum gegn Portúgölum ytra. Þær serbnesku hafa aftur á móti unnið báða leikina sína og trónuðu á toppi riðilsins fyrir leikinn í kvöld. Leikurinn fór vel af stað hjá þeim íslensku. Þær börðust fyrir hverjum bolta og voru að hitta vel. Serbar rifu niður öll fráköst en voru sem betur fer ekki að hitta skotin. Varnarleikur Íslands var til fyrirmyndar á fyrstu mínútunum og gáfu þær Serbum engan tíma með boltann. Þéttur varnarleikur getur þó búið til villur og það var raunin því Þóra Jónsdóttir var kominn með þrjár slíkar strax í fyrsta leikhluta. Íslendingar leiddu við lok fyrsta leikhluta með sex stigum, 20-26. Í öðrum leikhluta hélt Ísland áfram með sömu uppskrift í eldhúsinu. Uppskriftin var einföld. Berjast vel, spila þétt og komast í góð skot. Ísland leiddi um tíma með 11 stigum. Serbarnir slógu þá í klárinn og ákefðin jókst með hverri sókninni. Þær minnkuðu muninn og við það var eins og þær íslensku yrðu skelkaðar. Serbar voru komnir með blóð á tennurnar og Ivana Raca dró vagninn áfram. Hún var komin með þrettán stig þegar flautað var til hálfleiks. Hjá Íslendingum var Sara Rún Hinriksdóttir beittust í fyrri hálfleik og Danielle Rodriguez var einnig góð. Viðsnúningur Serba í öðrum leikhluta reyndist Íslandi vondur.Staðan í hálfleik var 40-40. Í seinni hálfleik héldu Serbar áfram að herða svæfingartakið á þeim íslensku. Þær rifu niður fráköst bæði í vörn og sókn og stilltu miðið í sóknarleiknum. Um tíma var eins og allt læki niður hjá þeim og hringurinn varð minni hjá íslenska liðinu. Í þriðja leikhluta skoruðu Íslendingar aðeins níu stig meðan Serbar skoruðu tuttugu og sex. Staðan við lok þriðja leikhluta var 66-49. Fjórði og síðasti leikhlutinn var keimlíkur þeim þriðja. Serbar hittu vel og þær íslensku fundu ekki leið til að stöðva sóknarþungann. Svæfingartakið var orðið þétt og þó að Íslandi gengi betur að hitta körfuna þá var munurinn orðinn alltof stór.Lokastaða leiksins 92-66. Stelpurnar okkar voru svæfðar í Serbíu. Besti leikmaður vallarins var Ivana Raca sem skoraði 18 stig, reif niður sjö fráköst og var loks með fimm stoðsendingar. Masa Jankovic var einnig ógnar sterk. Hjá Íslandi voru Sara Rún Hinriksdóttir og Danielle Rodriguez öflugustar. Danielle skoraði þrettán stig og Sara Rún tólf. Thelma Dís Ágústsdóttir var einnig flott í leiknum. Úrslitin þýða að Serbar eru að stinga af meðan þær íslensku klóra enn fastar á botninn. Landslið kvenna í körfubolta