Endursamningar lykillinn að stórbættum fjárhag Tinna Traustadóttir skrifar 6. mars 2026 08:02 Ísland er eyja og orkukerfið okkar tengist ekki öðrum orkukerfum. Staðreyndin er samt sú að við seljum rafmagnið okkar á alþjóðlegum markaði. Viðskiptavinir okkar eru stór og öflug alþjóðleg fyrirtæki með starfsemi um allan heim. Sum þessara fyrirtækja hafa mun sterkari efnahagsreikning en Landsvirkjun – eitt þeirra skilaði hagnaði sem nemur rúmlega 3 þúsund milljörðum íslenskra króna á dögunum. Rætur þess félags, Rio Tinto, liggja í raforkuframleiðslu og álframleiðslu í Kanada. Móðurfélag Norðuráls er stærsti álframleiðandinn í Bandaríkjunum. Alcoa og Elkem eru meðal stærstu framleiðenda málma í Noregi og með starfsemi víða um heim. Þá hafa gagnaver, sem öll eiga íslenskar rætur, byggt upp mikla starfsemi í nágrannalöndunum á síðastliðnum misserum. Öll eiga þessi fyrirtæki það sammerkt að hafa valið Ísland og Landsvirkjun eftir ítarlega skoðun. Valið stóð á milli okkar og landa á borð við Noreg og Kanada. Þau völdu okkur og við völdum þau. Saga Landsvirkjunar og viðskiptavina hennar er samofin saga atvinnuþróunar, verðmætasköpunar og bættra lífskjara. Við höfum vaxið saman og styrkt samkeppnishæfni hvert annars. Lítil Landsvirkjun í stórum heimi Landsvirkjun er lítið fyrirtæki í alþjóðlegum samanburði. Systurfélög okkar á Norðurlöndunum framleiða og selja margfalt meira rafmagn. Þá er eðlismunur á starfsemi orkufyrirtækis sem er með beinar tengingar við aðra raforkumarkaði og fyrirtækis sem starfar í lokuðu kerfi sem byggir eingöngu á endurnýjanlegum orkukostum. Þessi sérstaða okkar, ásamt stærðinni, gerir samningsstöðu Landsvirkjunar gagnvart alþjóðlegum viðskiptavinum snúna. Viðskiptavinir okkar kaupa einnig raforku erlendis og að sumu leyti hafa orkufyrirtæki á samkeppnismörkuðum náð að standa sig betur en fyrirtæki hérlendis því þau hafa haft orku að bjóða nýjum viðskiptavinum. Nýleg dæmi um gagnaver sýna að þau hafa leitað til Finnlands, Noregs, Svíþjóðar og Danmerkur vegna þess að hér á landi hefur ekki verið tiltæk orka fyrir frekari vöxt. Við höfum þannig orðið af vaxtartækifærum vegna skorts á raforku. Landsvirkjun er ekki aðeins smá miðað við aðra raforkuframleiðendur heldur einnig miðað við notendurna sjálfa. Rio Tinto notar til dæmis rúmlega fjórum sinnum meiri raforku en Landsvirkjun framleiðir. Þessi fyrirtæki eru harðir viðsemjendur sem eru vanir að semja um orkukaup hvar sem er í veröldinni. Þau eru eftirsóknarverðir viðskiptavinir sem eiga þess kost að færa starfsemi sína á milli landa þegar samningar renna út. Fjárhagslegur styrkur þeirra er einnig gríðarlegur og jafnast á við fjárhagslegan styrk heilu ríkjanna. Mesta endursamningaskeiðið Allt frá stofnun Landsvirkjunar var sýn manna sú að raforkuverðið yrði fremur lágt í upphafi en myndi hækka þegar fram liðu stundir. Jóhannes Nordal, sem var stjórnarformaður fyrirtækisins fyrstu þrjá áratugina, ítrekaði þetta reglulega. Fram til ársins 2005 voru aðstæður erfiðar, orkuverð á heimsvísu lágt og samningsstaða Landsvirkjunar erfið í lokuðu kerfi. Fyrirtækið var mjög skuldsett, hafði aldrei greitt skatta og lítinn arð. Endursamningar við Rio Tinto Alcan í Straumsvík árið 2010 mörkuðu kaflaskil. Síðan þá hefur okkur tekist vel upp við samningaborðið. Endursamningar á allra síðustu árum hafa verið lykillinn að stórbættum fjárhag Landsvirkjunar, niðurgreiðslu skulda og aukinni arðsemi. Arðgreiðslur til eiganda Landsvirkjunar – íslensku þjóðarinnar – nema samtals um 110 milljörðum króna fyrir síðustu fimm ár og um 70 milljarðar hafa verið greiddir í skatta á sama tímabili. Fram undan er mikilvægasta endursamningaskeið í 60 ára sögu fyrirtækisins. Stærsti hlutinn snýr að Alcoa, sem notar þriðjung allrar raforku sem Landsvirkjun framleiðir. Samningurinn er til 40 ára og nú er komið að verðendurskoðun um miðbik samningstímans. Auk þess renna fleiri samningar út á næstu árum og viðræður um framhaldið standa yfir. Í endursamningum felast bæði tækifæri og áskoranir. Hart er tekist á, enda eru þetta stærstu viðskiptasamningar sem gerðir eru hér á landi. Niðurstaðan litast af stöðunni á alþjóðlegum orku- og afurðamörkuðum. Okkur hefur þó alltaf tekist að ná saman að lokum. Viðskiptavinir okkar eru í harðri alþjóðlegri samkeppni og rekstrarskilyrði þeirra hafa áhrif á greiðslugetuna. Á komandi árum viljum við raungera enn meiri verðmæti og fá hærra verð fyrir orkuna, en jafnframt halda áfram að vaxa með viðskiptavinum okkar. Sá tími sem Jóhannes Nordal sá fyrir sér er runninn upp: Tími til að uppskera ríkulega fyrir þær miklu fjárfestingar í orkuvinnslu sem lítil þjóð hefur byggt upp jafnt og þétt undanfarna áratugi. Höfundur er framkvæmdastjóri Sölu og þjónustu hjá Landsvirkjun. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Tinna Traustadóttir Orkumál Landsvirkjun Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstagjöf er svoddan streð… Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Stækkum kökuna í stað þess að sneiða hana þynnra Rannveig Grétarsdóttir skrifar Skoðun Er þetta ásættanleg frammistaða íslenskrar stjórnsýslu? Þorsteinn Narfason skrifar Skoðun Forsjálni því þetta reddast ekki Gunnar Hersveinn skrifar Skoðun Flokkur fólksins og fjárlögin Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar