Þurfi ekki að óttast bílnúmeralesara við Sorpu Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 6. mars 2026 22:45 Gunnar Dofri Ólafsson sviðsstjóri samskipta- og þjónustusviðs Sorpu. Vísir/Lýður Valberg Teknir hafa verið upp bílnúmeralesarar við allar Endurvinnslustöðvar Sorpu. Margir velta fyrir sér hvort þetta verði til þess að fleiri reikningar detti inn á heimabankann en Gunnar Dofri Ólafsson sviðsstjóri samskipta- og þjónustusviðs Sorpu segir svo ekki vera. „
Síður en svo. Þetta er bara hugsað til að hjálpa okkur að greina á milli þess hvort við eigum að rukka þá sem koma með gjaldskylt rusl til okkar sem einstaklinga á höfuðborgarsvæðinu eða sem fyrirtæki.“ Ekki sjálfvirk gjaldtaka Þannig sé ekki um sjálfvirka gjaldtöku að ræða, megintilgangur lesarans sé að skanna bílnúmer og greina hvort bílar séu á vegum fyrirtækja eða íbúa sem ekki eru frá höfuðborgarsvæðinu. „Sirka 75 prósent af þeim sem koma til okkar eru sannarlega íbúar á höfuðborgarsvæðinu, einhvers staðar á bilinu 25 til 35 prósent eftir því hvar þessi 75 prósent, hversu hátt þau ná, eru aðrir þannig það eru fyrirtæki utan höfuðborgarsvæðisins.“ Lítt þekkt staðreynd sé að Sorpa sé rekin að megninu til fyrir almannafé, skatta sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu greiði samhliða fasteignagjöldum. „Það er ástæðan fyrir því að ég og þú fáum þegar við erum bara í einkaerindum að koma með ákveðna flokka án þess að borga fyrir þá, en þetta eru flokkar sem fyrirtæki og fólk utan höfuðborgarsvæðisins borgar ekki fyrir, það borgar ekki fyrir þetta með sköttunum sínum og þarf þá að greiða fyrir við hlið.“ Fyrst var tilkynnt um búnaðinn í janúar síðastliðnum. Búnaðinum komið upp við sex stöðvar Sorpu Búnaðinum hefur verið komið upp við allar sex stöðvar Sorpu en Gunnar segir kostnað ekki mikinn. „Sérstaklega þegar þetta er sett í samhengi við það að íbúar á höfuðborgarsvæðinu borga 1,9 milljarð inn í reksturinn, þannig við erum í rauninni bara að slá skjaldborg utan um opinbert fé með þessu.“ Almennt sé ánægja með gjaldtöku hjá Sorpu. „Óánægjan snýst fyrst og fremst um það að vita ekki hvort þú þurfir að borga, þannig það er eitthvað sem við viljum bæta úr,“ segir Gunnar Dofri. „Það kemur ekkert í heimabankann, þetta er allt saman gert við hliðið, það er engin sjálfvirk gjaldtaka, þetta er ekki spennuástandið sem þú ferð í gegnum þegar þú ferð í bílahús eða eitthvað svoleiðis heldur er öll greiðsla bara hérna hjá mínum mönnum í hliðinu.“
Sorpa Bílar Mest lesið Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira