Smá pæling frá einni sem ætlar að taka þátt í uppbyggingu Grindavíkur Dagmar Valsdóttir skrifar 26. febrúar 2026 21:01 Ég er uppalin í Fellunum og maðurinn minn frá Vík í Mýrdal, ekki í Grindavík en hvergi hef ég fundið jafn sterka tilfinningu fyrir heimili og hér. Ég á mann, fjóra stráka og tík. Við hjónin eigum Grindavík Guesthouse. Ég er í leiðsögunámi hjá EHI og hef stofnað Kvika Travel ehf. Ég ætla ekki að sitja hjá. Ég ætla að taka þátt í að byggja bæinn upp aftur. Ég skrifa þetta ekki sem sérfræðingur. Ég skrifa þetta sem mamma sem þarf að taka ákvörðun um framtíð barna sinna. Það gaus síðast í júlí á síðasta ári. Frá því í lok september höfum við þurft að vera tilbúin að rýma gistihúsið með skömmum fyrirvara, hlusta eftir flautunum og vera með plan. Þetta er ekki bara eitthvað í skjali. Þetta er raunveruleikinn. Við búum núna í Kópavogi með strákunum okkar á meðan reksturinn er í Grindavík. Annað okkar þarf að vera í bænum þegar gestir eru í gistihúsinu á meðan hitt er með börnunum. Við keyrum fram og til baka. Þetta gengur í einhvern tíma. En þetta er ekki líf til lengdar. Það er ekki sanngjarnt gagnvart strákunum okkar að foreldrar þeirra séu alltaf á ferðinni. Við viljum vera á einum stað. Við viljum vera í Grindavík. Ég veit að það fylgir því ákveðin óvissa að búa í Grindavík. Maður venst ýmsu. En það sem við þurfum eru skýr svör. Grindavíkurnefnd er að vinna að skýrslu sem á að móta framtíð bæjarins. Ég spyr einfaldlega, hvað þýðir hún fyrir okkur. Er verið að horfa á stöðuna eins og hún er í dag. Hvenær fáum við að vita hvert stefnir. Við bíðum og satt að segja höfum við ekki miklar væntingar um að skýrslan endurspegli aðstæðurnar eins og þær eru í dag í Grindavík, en vonandi höfum við rangt fyrir okkur. Fasteignafélagið Þórkatla á stóran hluta fasteignanna í bænum. Í dag má gista í þeim en ekki búa og sá frestur rennur út 31. ágúst. Flestir hafa þurft að kaupa sér hús annars staðar. Bankar lána ekki eins og áður fyrir eignum í Grindavík. Fasteignamarkaðurinn er í frosti. Náttúruhamfaratrygging Íslands hefur einnig breytt reglum þannig að ef verða ný tjón vegna náttúruhamfara geta þau fallið á eigandann sjálfan. Það eykur óvissuna enn frekar. Ef margir vilja selja á sama tíma og snúa aftur segir sig sjálft að það verður erfitt. Þetta eru einföld markaðslögmál og mun hafa áhrif á alla íslendinga ekki aðeins okkur. Svo er það jafnræðið. Við borgum fasteignagjöld og annan kostnað til bæjarins. Ef Þórkatla greiðir ekki það sama, þá spyr maður sig, hvar er jafnræðið. Hvernig á bæjarfélag að ganga upp ef ekki er greitt fyrir þá þjónustu sem veitt er. Það er erfitt að tala um sameiginlega ábyrgð ef ábyrgðin er ekki jöfn. En svo er hitt. Það er stundum sagt að neyðin láti nakta konu spinna. Kannski gerðist það hjá okkur hjónunum. Þegar ljóst var að ríkið ætlaði ekki að kaupa fyrirtækin í bænum þrátt fyrir að hafa lofað því fyrir kosningar, þurftum við að ákveða hvort við ætluðum að gefast upp eða breyta um stefnu. Við ákváðum að hugsa upp á nýtt. Grindavík Guesthouse heldur áfram. Við erum að opna Borg Café & Studio. Ég hef stofnað Kvika Travel af því að mig langar að segja söguna okkar. Mig langar að taka á móti fólki sem vill skilja hvað við höfum gengið í gegnum. Mig langar að búa til viðburði, jóga, göngur, samveru og fræðslu sem bæði innlendir og erlendir geta sótt. Við fengum styrk frá Byggðastofnun og Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum sem gerði okkur kleift að hrinda þessu af stað. Fyrir það erum við afar þakklát, því annars hefðum við þurft að láta fyrirtækið okkar fara. Ég sé Grindavík fyrir mér sem stað þar sem listafólk kemur saman. Þar sem tónleikar eru haldnir. Þar sem fólk kemur til að finna friðinn og kraftinn í náttúrunni. Þar sem börnin okkar læra að lifa með náttúrunni en ekki á móti henni. Þar sem fólk kemur í sunnudagsbíltúr, fær sér ís, fer í sund og nýtur þess sem bærinn hefur upp á að bjóða hverju sinni. Þegar ég er í Grindavík slaka ég hvergi meira á. Ég finn frið og ró og líka styrkinn sem er alls staðar í kring. Við erum ekki að bíða eftir að einhver annar byggi bæinn. Við erum byrjuð og ég tala ekki bara fyrir sjálfa mig heldur marga vini mína sem búa í Grindavík. Við erum full af eldmóði og krafti. En leyfið okkur að taka þátt.Leyfið okkur að ákveða okkar framtíð.Leyfið okkur að vera með í ákvörðunum um Grindavík. Án okkar fólksins sem vill búa þar og starfa er engin framtíð. Áfram Grindavík. Höfundur er íbúi í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Eldgos á Reykjanesskaga Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar