Hvað ef við erum hrædd við ranga framtíð? Rakel Hinriksdóttir skrifar 24. febrúar 2026 11:32 Ég skil að fólk vilji framfarir. Ég skil að byggðaþróun sé flókið og margþætt verkefni. Ég skil að fólk óttist framtíðina. En hvað ef framtíðin sem við óttumst, þar sem er raforkuskortur og flótti frá landsbyggðinni, er í raun tilbúningur frá hagsmunaöflum - og framtíðin sem við ættum að óttast - sé sundurskorið Ísland af illa ígrunduðum orkumannvirkjum og hnignun lífríkisins? Rúmlega 80% af orkunni sem við öflum (og við öflum miklu meira miðað við höfðatölu en allar aðrar þjóðir í heiminum) fer beint til stórnotenda. Ástæðan fyrir því að talað er um að við sjáum fram á orkuskort í framtíðinni, er sú að það er búið að selja orkuna okkar álverum, gagnaverum, lagareldi o.fl. Var fólkið í landinu spurt að því, hvort að við vildum fórna náttúrunni okkar fyrir stóriðju? Og hvar liggja mörkin? Hættum við ekki fyrr en allar sveitir og byggðir hafa sjókvíar í firðinum, gagnaver í hlíðunum og virkjun á hálendinu? Það verður aldrei skortur á fólki sem vill byggja slíkt upp. En við þurfum að setja einhver mörk sem eru heilbrigð fyrir okkur og landið okkar. Sjá framtíðina í stærra samhengi. Hvað ef ég væri haförninn, sem þarf að flýja vindorkugarð í Garpsdal. Og flygi hátt, nógu hátt til þess að forðast hina hvínandi vængi sem sveiflast yfir landinu og búa til rafmagn fyrir mannfólk. Kæmist ég þá nógu hátt, til þess að sjá stóru myndina? Getum við öll séð stóru myndina? Þetta snýst ekki um litla bæi á Íslandi. Þetta snýst ekki um einn vindorkugarð, eitt laxeldisfyrirtæki, eina stíflaða á eða eitt votlendi sem er ræst fram fyrir landnotkun. Ég tala ekki fyrir alla sem starfa við náttúruvernd, en það er orðið mjög þreytandi að eltast við litla elda með litlar fötur. Það þarf breytingu á viðhorfi. Að við stöldrum við og horfum á heildina. Treystum fagfólki á sviði náttúruvísinda. Við, sem tölum fyrir náttúruvernd viljum ekki banna allt. Við viljum skynsemi og virðingu fyrir lífi landsins. Á milli 70-80% af villtu dýralífi á jörðinni hefur dáið út síðan mannfólkið kom til sögunnar. Á sem rennur óbeisluð til sjávar er sjaldgæf. Land, sem ekki er nýtt, er litið græðgisaugum af fólki með vasana fulla af aurum. Ennþá, eru á Íslandi 43% af óspilltum víðernum Evrópu, þar sem öll dýr (og við líka) fá að njóta náttúrunnar til jafns. Þetta er eitt af því allra dýrmætasta sem við eigum, og enginn getur frá okkur tekið - nema við sjálf. Nýverið bókaði sveitarstjórn Norðurþings á fundi sínum, að senda beiðni til ráðuneytis umhverfis- orku og loftslags, um færslu vindorkugarðsins Hnotasteins á Hólaheiði úr biðflokki Rammaáætlunar í nýtingu. Ég veit að í stóra samhenginu, snýst þetta ekki um einn vindorkugarð, en þessi gjörð finnst mér dæmigerð til þess að lýsa hugsunarhættinum sem ríkir á Íslandi. Hnotasteinn, vindorkugarður með 40 vindmyllum, á að hvíla á miðri Hólaheiði á Melrakkasléttu. Svæði sem er eitt af örfáum utan hálendis Íslands, sem flokkast undir víðáttumikil víðernasvæði þar sem ummerkja mannsins gætir lítið sem ekkert, langt er í næstu akvegi og engin umfangsmikil mannvirki sjást nema úr mikilli fjarlægð. (víðernakortið) T.v. Víðernakortið. Frekari upplýsingar um það, hvernig lesa á í kortið eru hér . T.h. Uppdráttur af því, hvar Hnotasteinn á að vera á Melrakkasléttu, úr skýrslu á vef Norðurþings. Í skýrslu verkfræðistofunnar Eflu kemur fram að í hæstu stöðu eru vindmyllurnar 200 metra háar, og sjást í sirka 20 km fjarlægð. Norðausturvegur, sem liggur yfir heiðina, eru rúmir 18 km, til að setja stærð landsvæðisins í samhengi. Ég þarf ekki að hafa mörg orð um það, hversu mikilvægt þetta svæði er fyrir fugla, en skemmst er frá því að segja að Fuglavernd mælti með því að Hnotasteinn færi beint í verndarflokk og væri þar framvegis. Lykilatriði er, að ekki er búið að fullvinna umhverfismat og áhrif á náttúruna, en samt kýs sveitarstjórn Norðurþings að óska eftir því að Hnotasteinn fari beint í nýtingu. Það má engan tíma missa! Tveir sveitarstjórnarfulltrúar, úr röðum VG, bókuðu að þær væru ekki sammála. Það er gott að halda því til haga. Mér finnst persónulega mjög undarleg þróun, í íslenskri stjórnsýslu, að sveitarstjórnir taki það upp hjá sér að óska eftir tilfærslum í Rammaáætlun, sem er faglegt matstæki. Mér finnst það vera virðingarleysi, og lýsir einmitt gegnumgangandi vandamáli - að fólk ber ekki virðingu fyrir því að landið okkar er ekki bara fyrir okkur. Ég vil að hlustað sé á vísindafólk sem starfar í faghópum Rammaáætlunar, og skammtímahagsmunir víki fyrir vilja til þess að sjá stóru myndina og stunda ábyrga orkuöflun á Íslandi. - Nú eru sveitarstjórnarkosningar á næsta leyti, og ég vil hvetja fólk sem ber hag náttúrunnar fyrir brjósti - og vill að komandi kynslóðir fái að upplifa Ísland eins og við - til þess að bjóða sig fram og taka slaginn. Náttúruverndarsamtök munu styðja við bakið á ykkur. Höfundur er formaður SUNN, Samtaka um náttúruvernd á Norðurlandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umhverfismál Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið „Mamma, af hverju viltu láta sprengja Ísland?“ Bryndís Matthíasdóttir Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir Skoðun Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem Skoðun Þegar sorgin fær reikning frá hinu opinbera Ragnheiður Helga Skúladóttir Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir Skoðun Hvernig á kynlíf að vera? Eva Pandora Baldursdóttir Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson Skoðun Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Skoðun Kærleikur er pönk Guðný Þorsteinsdóttir skrifar Skoðun Er kostnaðurinn einskis virði? Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi þess að lifa æskuna af Einar Torfi Einarsson Reynis skrifar Skoðun Hvað ef svarið hefði verið já? Eva Magnúsdóttir skrifar Skoðun Húsnæðisstefnan sem gerði ungt fólk að leiguliðum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Veist þú í raun hvernig gervigreind virkar? Bjarki Sigurjónsson Thorarensen skrifar Skoðun Stöndum saman um að treysta EES í sessi Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Síbylja í sorginni Sveinn Hjörtur Guðfinnsson skrifar Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar Skoðun Hækkun hjá Heilsu hf. Nota bene! Unnur Hrefna Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Lok ríkisábyrgðar marka kaflaskil Rafnar Lárusson skrifar Skoðun Þjóðin kom saman og byggði Kvennaathvarf – Takk! Esther Hallsdóttir skrifar Skoðun Fangar eigin hugsana, tilfinninga og skoðana Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Þegar sorgin fær reikning frá hinu opinbera Ragnheiður Helga Skúladóttir skrifar Skoðun Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði Kolbrún Halldórsdóttir,Helgi Gunnarsson,Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðardóttir,Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf Ásta María H Jensen skrifar Skoðun Sjálfbær rekstur eða niðurgreiddur – hvort er lúxus, Daði? Hilmar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Lok kosninga Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Afnemum verðtrygginguna - skref fyrir skref Lilja Björk Einarsdóttir skrifar Skoðun Forgangsröðun í átök eða efnahagsaðgerðir? Jón Ferdinand Estherarson skrifar Skoðun Ný komugjöld: Aukinn kostnaður sjúklinga, sparnaður ríkisins Gunnlaugur Briem skrifar Sjá meira
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar
Skoðun Aðskilnaðarstefna ríkis og landsbyggðar – fáum við öll brauðtertusneið? Jónína Brynjólfsdóttir skrifar
Skoðun Virði menntunar og staða á húsnæðismarkaði Kolbrún Halldórsdóttir,Helgi Gunnarsson,Helga Rósa Másdóttir,Steinunn Þórðardóttir,Sigurbjörg Sæunn Guðmundsdóttir skrifar
Eru stjórnvöld bundin af niðurstöðu óréttmætrar þjóðaratkvæðagreiðslu? Haukur Arnþórsson Skoðun