Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Brimborg og Ragnheiður Tryggvadóttir 19. febrúar 2026 12:00 Ford Puma Gen E lítur út fyrir að vera þægilegur og penn borgarbíll. Hann leynir þó hressilega á sér. Hvaða skilyrði þarf heppilegur aukabíll á heimilið að uppfylla? Hann mætti ekki kosta hönd og löpp en yrði að vera þægilegur, praktískur og dálítið skemmtilegur og ekki skemmdi fyrir ef hann hefði útlitið með sér. Aukabíll yrði að vera ódýr í rekstri svo rafbíll væri sniðugur kostur. Ford Puma Gen E er dálítið sætur og á fínasta verði. Ég ákvað að prófa hann.
Uppgefin drægni er Ford Puma er allt að 364 km sem er alveg ágætt. Kannski ekki í langferðirnar norður yfir heiðar en sem aukabíll væri það heldur ekki hans aðalhlutverk. Hann er tilvalinn borgarbíll fyrir snattið, skutlið og búðarferðirnar og dugir samt alveg í góðan sunnudagsrúnt út úr bænum. Mér leist strax vel á hann. Skvísulegur borgarbíll reyndist flutningabíll í dulargervi Þessi dúlludúskur lumar reyndar á leynitrompi, einu stærsta farangursrými sem ég hef séð í fólksbíl, 456 lítrar plús 80 lítra leynihólfi (Megabox). Undir fölskum botni leynist nefnilega heljarinnar geymsluhólf úr plasti þar sem hægt er að henda allskonar óhreinu dóti, snjóugum skíðaskóm eða drullugum gönguskóm, rennblautum sundfötum og öðru sem maður vill helst ekki fá á teppið í farangurshólfinu eða inn í bílinn. Með því að fella aftursætin niður nást um 1200 lítrar, smá jeppastælar þar. Garðúrgangur, dósir, dekk, golfkerra, golfsett, moldugar garðplöntur, komið með þetta allt, Sorpuferð, búslóðaflutningar, ekkert mál. Ég átti einu sinni pallbíl sem ég sakna alla daga en megaboxið í Puma fór langleiðina með að sefa þann söknuð. Og rúsínan í pylsuendanum, svo kippir maður bara tappanum úr og smúlar hólfið hreint, takk fyrir! Hér er stutt klippa þar sem má sjá hvernig spúlað var úr megaboxinu eftir flutninga helgarinnar: Klippa: Farangursrými Ford Puma leynir hressilega á sér Ekki bara flutningabíll En burt séð frá jeppastælum og vörubílatöktum þessa bíls þá vann hann sér inn nokkra punkta á öðrum vígstöðvum. Hann er í fyrsta lagi afar nettur, 4214 mm á lengd, 1930 mm á breidd m/speglum: (án spegla: 1805 mm) og 1555 mm á hæð. Hann er virkilega liðlegur í akstri og reyndist afar þægilegur í snúningum niðri í bæ. Hann lék sér einnig að bílastæðaflækjum og míní-hringtorgum Skeifunnar, þar sem dísilhlunkurinn er til dæmis ekkert sérstaklega þægilegur, og einstaklega lipur að smeygja sér í þröng bílastæði. Puma stimplaði sig alltaf betur og betur inn sem aukabíllinn. Sætin eru þægileg og hægt að stilla þau til, hækka dálítið og auka stuðninginn við mjóbakið, sem ég kunni vel að meta. Og auðvitað tjúna upp hita. Skjárinn er stór, 12 tommur og eins og að horfa á bíóskjá þegar bakkmyndavélin fór í gang. Eins fannst mér bíllinn frekar einfaldur þ.e. lítið tæknitröll og hægt að nálgast það nauðsynlegasta á skjánum í fáum smellum. Sem er jákvætt. Stundum þarf bara þetta helsta. Geymsluplássið milli framsætana er ágætt, tveir bollahaldarar og hilla þar sem hægt er að hlaða símann þráðlaust, hólf þar undir fyrir töskuna og undir armpúða er lokað hólf. Það er B&O hljóðkerfi í bílnum svo það mátti hækka vel. Ford Appið kom sterkt inn, sérstaklega til að stilla inn hvenær bíllinn skyldi forhita sig og á hvaða dögum en það er lík bara hægt að smella á Climatehnappinn í appinu tíu mínútum fyrir brottför og bíllinn bíður hlýr og notalegur. Í appinu er hægt að fylgjast með stöðunni á rafhlöðunni í hleðslu, leita uppi hleðslustöðvar í nágrenninu og fleira. Puma er svosem enginn kappakstursbíll þó nafnið bendi til annars. Hann er 168 hestöfl og um 8 sekúndur frá 0 og upp í 100. Það er hægt að velja milli nokkurra akstursstillinga og til dæmis stilla á sportstillingu svo hann bregst kröftugar við en ég var ekkert í þannig gír. Normal stillingin var alveg nóg og ég hélt mig á henni. Ég saknaði kannski örlítið meiri mýktar þegar ég ók yfir hraðahindranir, en kannski hefði ég bara átt að fara hægar yfir þær. Drægnin dugar í það helsta Allt að 364 km á 100% hleðslu en óstaðfest þumalputtaformúla segir að hér á okkar kalda landi megi klípa nánast 100 km strax af uppgefinni drægni rafbíla yfirleitt. Sel það ekki dýrara en ég keypti en í þessu tilviki gæti það alveg staðist. Bíllinn var 100% hlaðinn þegar ég renndi af stað inní helgina og gaf upp 322 km, en eftir 80 km af snatti var rafhlaðan komin niður í 42% og gaf upp 68 km. Ég brenndi semsagt upp 58% af rafhlöðunni en, taka verður með í reikninginn að þessa helgina var ískalt, frostið alltaf á bilinu -7 til - 10 gráður og sætishitarar, stýrishiti og miðstöð í blússandi botni alltaf þegar ég var á ferðinni. Auk þess sem ég lét bílinn alltaf forhita sig gengum appið áður en ég fór út. Ég var ekkert að spara rafmagnið. Enda var þetta ekkert vandamál, ekki í það hlutverk sem ég ætlaði þessum bíl, snatt. Fyrsti bíll, aukabíll, ömmu- og afabíll? Þessi bíll er ansi sniðugur, þægilegur og lipur. Eftir helgina get ég til dæmis vel séð hann henta þeim sem eru með splunkuný ökuskírteini, nettur og lipur og á hagstæðu verði. Tilvera þessara krakka byggist hvort sem er á hlutum sem þarf að hlaða oft svo þau kippa sér ekkert upp við það þó þau þurfi að hlaða oft. Hann smellpassar líka sem aukabíll á heimilið, til dæmis fyrir mig sem nota þunglamalegan dísilhlunk í langferðir yfir fjöll og heiðar en nenni ekki á honum í snúninga niður í bæ. Þar kæmi hinn lipri Puma sterkur inn, meira segja í Sorpuferðir og stórinnkaup, þökk sé Megaboxinu. Plássið aftur í er í það tæpasta fyrir fullorðinn einstakling með stirð hné, en það færi aftur á móti vel um litla farþega, erum við jafnvel að tala um ömmu- og afabíl? Allavega er nóg pláss fyrir barnakerrurnar í megaboxinu. Hvað kostar svo þessi vörubíll í dulargervi? Verðið á Ford Puma rafbíl er frá 5.190.000 krónum og með rafbílastyrknum, sem er hálf kúla, er hann kominn niður í 4.690.000 krónur. Þessa dagana fylgir reyndar veglegur kaupauki með Ford Puma. Frí vetrardekk og þjónustan fyrstu 5 árin eða að 80.000 km akstri. Ég mæli með að skella sér í reynsluakstur og máta sig við hann ef fólk er á höttunum eftir sniðugum borgarbíl eða aukabíl á heimilið sem leynir á sér. Fyrir utan þægindi, einfaldleika og almenn næsheit náði hann mér algjörlega með Megaboxinu.
Bílar Vistvænir bílar Mest lesið Dramadrottningar myndu líkja Tromsö-flugi við rýting í bakið Viðskipti innlent Opinberir starfsmenn eigi rétt á sjöfalt fleiri veikindadögum Viðskipti innlent Prófessor slær á áhyggjuraddir Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent Skapa nýjar flíkur úr óseldum notuðum fötum Atvinnulíf Lindex-höllin verður Kappahl-höllin og ný verslun opnuð 21. mars Viðskipti innlent 74 prósent íbúða seldist á undirverði í desember Viðskipti innlent Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Samstarf Arkitektar og verkfræðingar vænta samdráttar á íbúðamarkaði Viðskipti innlent Kristín í Komið gott fær sér dagvinnu Viðskipti innlent Fleiri fréttir Sætur borgarbíll þar til kíkt er í skottið Bílanaust flytur í sérhannaðar höfuðstöðvar að Álfabakka 4 G-vítamín eru litlu skrefin sem breyta miklu Nýjar áskriftarleiðir að Heimavörn bylting á öryggismarkaði Hreingerningafyrirtæki brýtur blað í fræðslumálum Hjálpar skiptastjórum að greina eignaundanskot Bestu íslensku vörumerkin 2025: viðurkenningarhátíð í Hörpu Margborgar sig að gera við stjörnu í rúðu: Carglass hefur opnað á Íslandi Stærsti Ímarkdagurinn í 40 ár: Alþjóðlegar stjörnur markaðsmála mæta EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Forsteyptar húseiningar einfalda byggingarferlið Krambúðin lækkar verð: 200 vörur á Prísverði Frábært ár að baki hjá Bylgjunni Mikil eftirspurn eftir notuðum Toyota bílum Andrew Thomas, stofnandi BetterYou talar á Læknadögum Opið fyrir innsendingar í Lúðurinn 2025 Greiðsluáskorun Gjöfult samstarf Arion banka og íslenska karlalandsliðsins í yfir tuttugu ár Fullt af nýjum bílum hjá Toyota Sjá meira
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent
Skiptastjóri Play kannar hvort Icelandair sé bótaskylt vegna ummæla starfsmanns Viðskipti innlent