Það kemur samfélaginu við þegar maður ræðir vændiskaup við konu Guðný S. Bjarnadóttir skrifar 17. febrúar 2026 09:47 Mér rann kalt vatn á milli skinns og hörunds að lesa pistil Jóns Gnarr um afsögn vinar síns á þingi vegna ætlaðra vændiskaupa. Að Alþingismaður skuli hér kalla Guðbrand útlaga fyrir að taka sjálfur ábyrgð á eigin gjörðum, áttandi sig fullvel á alvarleika málsins, er taktlaust. Jón kallar sig frjálslyndan mann og finnst rétt að hver eigi að feta sína leið í lífinu. Það erum við sammála um, en það er ekki hægt að skrifa á frelsi að geta keypt aðgang að líkama annarrar manneskju þegar margsýnt og sannað er að fólk í vændi er svo yfirgnæfandi meirihluta að næstum mætti tala um öll, þolendur ofbeldis og í mikilli neyð. Valdaójafnvægið sem þar býr að baki er svo augljóst að það er ótrúlegt að þingmaður beri ekki skynbragð á frelsisskerðingunni og ofbeldinu sem það felur í sér. Ég get vel skilið að mönnum bregði þegar einhver sem þeir þekkja aðeins af góðu eru bendlaðir við slíkt en við getum ekki afneitað þeim veruleika að það geti gerst og við verðum að hvetja fólk einmitt til þess að taka ábyrgð á sinni fortíð og gjörðum. Þegar menn verja gerendur Þolendur kynferðisofbeldis þekkja alltof vel þegar aðrir koma gerendum til varnar og hrópa upp ,,Ekki Nonni vinur minn, hann er svo næs og svo góður vinur!” Þetta er blaut tuska í andlit þeirra sem hafa verið beitt ofbeldi og óréttlæti. Mýtan um að gerendur geti ekki sýnt fólki góðar hliðar er langlíf. Gerendur eru margir góðir við mömmu sína, flokka rusl og moka snjó fyrir nágrannann. Eitt útilokar ekki annað. Margoft hafa þolendur biðlað til gerenda að taka ábyrgð. Það er sanngjarnt. Þegar einhver loksins tekur ábyrgðina er mikilvægt að styðja við það. Hér er enginn þolandi sem óskaði eftir því að Guðbrandur segði af sér, þetta var hans ákvörðun og í ljósi stöðu hans ber að virða hana. Jón tekur fram í pistli sínum að honum þyki mjög skrítið að maður sem hafi gerst sekur um vændiskaup árið 2014 fái ekki endurnýjað rekstrarleyfi til að keyra leigubíl. Það er í raun ekkert óeðlilegt. Ein vændiskaup sem lokið er með sekt þýðir ekki endilega (og í raun frekar ólíklega) að maðurinn hafi keypt vændi aðeins eitt skipti þó svo að ekki hafi það komist upp. Einnig er mjög eðlilegt að maður sem hefur gerst sekur um kynferðisbrot sé ekki að keyra konur heim af djamminu. Það eru ótal störf sem krefjast þess að viðkomandi sé með hreint sakavottorð og leigubílstjórar tilheyra þeim flokki, eðlilega. Samfélagið verður að leyfa mönnum að axla ábyrgð Það er ótækt að kalla það slaufun þegar einhver tekur ábyrgð á eigin gjörðum. Einnig má setja spurningamerki við það hvers vegna áherslan er lögð á hvort viðkomandi hafi hætt við kaupin eða ekki. Að ætla sér að kaupa vændi lýsir ákveðinni afmennskun á konum. Það eru nokkur skref sem þarf að taka áður en verknaðurinn er fullframinn. Í fyrsta lagi þarf löngun til að kaupa vændi að vera til staðar. Svo þarf að finna manneskju sem er að selja vændi og eiga við þá manneskju samskipti. Þá mætir viðkomandi og greitt er fé fyrir aðgang að líkama manneskju. Þetta snýst ekki bara um hvort athæfið sjálft hafi átt sér stað. Viljum við manneskju inni á þingi, eða leigubílstjóra, sem hefur slík viðhorf til kvenna? Líkamar kvenna eru ekki söluvara sem karlar eiga rétt á að kaupa. Kynlíf er ekki mannréttindi. Vel má vera að þetta fari fyrir brjóstið á Jóni og fleirum en staðreyndin er þó sú að til að framfarir verði í þessum málaflokki verðum við að taka vel á móti þegar gerendur axla ábyrgð. Í því felst réttlæti, mannleg nálgun og stuðningur. Þannig að jú, það kemur okkur öllum við þegar menn eru að kaupa eða reyna að kaupa vændi á Íslandi. Höfundur er stjórnarformaður Vitundar - samtaka gegn kynbundnu ofbeldi. Heimildir: https://www.visir.is/g/20262829501d/segir-af-ser-thing-mennsku-vegna-til-raunar-til-vaendiskaupa https://www.dv.is/eyjan/2026/2/15/jon-gnarr-skrifar-mys-og-menn/ https://www.visir.is/g/20262834283d/konur-hafi-thurft-ad-afgreida-attatiu-vaendiskaupendur-a-thremur-dogum https://www.visir.is/g/20252799689d/um-vaendi https://www.112.is/kaupir-thu-vaendi Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðný S. Bjarnadóttir Viðreisn Vændi Mál Guðbrands Einarssonar Mest lesið Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir Skoðun Skoðun Skoðun Bókasöfnin okkar Hrönn Soffíu Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Skildi hugmynd Trumps vera “sleggjan” sem allir eru að leita af. Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Opið bréf til Húnboga Þórs Árnasonar Margrét Rut Eddudóttir skrifar Skoðun Hvar eru þingmenn NV-kjördæmis? Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Noregur styrkir EES – Ísland verður að fylgja Rögnvaldur Guðmundsson skrifar Skoðun Landsleikar RÚV! Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Við erum ekki jafn ömurleg og við höldum Þorsteinn Tjörvi Sigurðsson skrifar Skoðun Bjórinn sem slapp við suðurferðina Elís Pétur Elísson skrifar Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar