Ríkisstjórn Íslands ber ábyrgð Sandra B. Franks skrifar 13. febrúar 2026 09:47 Heilbrigðisþjónusta er ein af grunnstoðum samfélagsins. Hún er ekki valkvæð. Hún er ekki breytileg eftir stöðu ríkissjóðs hverju sinni. Hún er öryggisnet landsins. Í þessari viku fundaði ég, ásamt formönnum annarra stéttarfélaga, með starfsfólki Bráðamóttökunnar. Þar var ekki kallað eftir upphrópunum eða dramatík. Þar var sett fram skýrt ákall um ábyrgð. Starfsfólk lýsti viðvarandi álagi, þröngum aðstæðum og áhyggjum af sýkingavörnum. Þegar tilkynningarskyldur smitsjúkdómur greinist meðal starfsfólks ber að líta á það sem alvarlega vísbendingu um að endurmeta þurfi vinnuaðstæður og sýkingavarnir. Slík atvik kalla á tafarlaust mat og viðeigandi viðbrögð. Viðvörunum á ekki að safna. Við þeim á að bregðast. Ábyrgðin er lagaleg og hún er ykkar Ríkisstjórn Íslands fer með framkvæmdarvaldið. Þegar ríkið rekur heilbrigðisstofnun er ríkið vinnuveitandi í skilningi laga og ber þar með ábyrgð á öryggi og heilbrigði starfsfólks. Vinnuverndarlög kveða skýrt á um skyldu vinnuveitanda til að meta áhættu og tryggja öruggar vinnuaðstæður. Sú skylda er ekki háð fjárlagastöðu. Hún er ekki háð pólitískri forgangsröðun. Hún fellur ekki niður þó starfsemin sé „of mikilvæg til að stöðvast“. Þvert á móti. Því mikilvægari sem starfsemin er, því ríkari er skylda ríkisins til að tryggja öryggi. Ef fagleg stjórnvöld, s.s. embætti landlæknis, Vinnueftirlitið, heilbrigðiseftirlit, eldvarnareftirlit eða Persónuvernd, hafa bent á óásættanlegt ástand, ef úrbætur hafa tafist árum saman og ef heilsutjón eða smit hefur komið upp, þá er ekki lengur um stefnumótunar-tal að ræða. Heldur lögbundna skyldu sem ber að uppfylla. Seigla er ekki rekstrarmódel Heilbrigðiskerfið stendur vegna fólksins sem þar vinnur. Sjúkraliðar og annað framlínufólk halda þjónustunni gangandi af fagmennsku, ábyrgð og skyldurækni, jafnvel þegar forsendurnar eru brostnar. En seigla starfsfólks er ekki stefna. Hún er ekki lausn. Hún getur aldrei orðið staðgengill fyrir lögbundna ábyrgð vinnuveitanda. Það er ekki ásættanlegt að byggja rekstur á því að starfsfólk beri áhættu sem vinnuveitanda ber skýr lagaskylda til að greina, lágmarka og koma í veg fyrir. Öryggi á vinnustað er ekki samningsatriði. Það er réttur. Ef aðstæður eru viðvarandi ófullnægjandi og engu að síður haldið áfram án raunverulegra og fullnægjandi úrbóta, þá er það ekki lengur tímabundin áskorun. Þá er það meðvituð ákvörðun um að láta ástandið viðgangast. Og slík ákvörðun ber ábyrgð. Krafan er einföld Ríkisstjórn Íslands, forsætisráðherra, fjármálaráðherra og heilbrigðisráðherra, verða nú að svara skýrt hvernig og hvenær brugðist verður við. Á fundinum kom fram rökstutt og samhljóða mat starfsfólksins. Aðstæður á Bráðamóttökunni eru langt umfram það sem húsnæði, mönnun og öryggiskerfin þola. Yfir 100 sjúklingar eru vistaðir í rými sem hannað er fyrir 36. Einangrun er ómöguleg. Brunahætta er augljós vegna þrengsla og búnaðar. Átta starfsmenn greindust með leynda berkla í desember. Þetta eru ekki dramatískar lýsingar, - þetta eru blákaldar staðreyndir. Þegar slíkt ástand hefur verið viðvarandi árum saman, og fagleg yfirvöld hafa bent á óásættanlegar aðstæður, og heilsutjón og smit hafa komið upp, þá er ekki lengur um tímabundið álag að ræða. Hér er kerfisbundinn vandi á ferð sem krefst skýrra, tímasettra og fjármagnaðra úrbóta, án frekari tafar. Lífsnauðsynleg heilbrigðisþjónusta verður að uppfylla lögbundnar kröfur um öryggi og aðbúnað. Að öðrum kosti er ekki aðeins verið að víkja frá faglegum viðmiðum heldur frá lagaskyldu ríkisins. Ef slíkt ástand er látið viðgangast þrátt fyrir skýrar viðvaranir og raunverulegar afleiðingar, þá er það ekki óheppilegt atvik. Þá er það meðvituð ákvörðun, og meðvituð ákvörðun ber ábyrgð. Höfundur er formaður Sjúkraliðafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sandra B. Franks Mest lesið Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir Skoðun Halldór 01.08.2026 Halldór Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson Skoðun Skoðun Skoðun Sex ástæður fyrir JÁ-i í ágúst Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Heilbrigt starfsumhverfi Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ísland í nýrri heimsmynd Sigurgeir Þorkelsson skrifar Skoðun Fullyrðingar og raunveruleikinn Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Kristrún Frostadóttir sammála nei-sinnum Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Brestur í manngæsku - ESB og flóttafólk Ari Orrason skrifar Skoðun Þegar líðan stúlkna verður aukaatriði Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Evra eða króna? Grímur Grímsson skrifar Skoðun Auðvaldinu best borgið í Brussel - ekki þjóðinni Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Er hið gamla alltaf gott? Ebba Margrèt Magnúsdóttir skrifar Skoðun RKV- eða ESB-ranglætið? Benedikt V Warén skrifar Skoðun „Nei“ er ekki lok málsins, - það er frestun þess Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig varð gervigreindin til og hvernig virkar hún? Karl Thoroddsen skrifar Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Það sem Ísland mun berjast fyrir í samningaviðræðum við ESB Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Hvar eru góðu mennirnir? Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Slagorð í stað gagna: Grein Snorra Mássonar um ESB-aðild Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Hættulegasti tími ársins í umferðinni Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Að neita að leita Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun ESB umræðan og gervigreindin Ólafur Hannesson skrifar Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar Skoðun Hver ber raunverulega ábyrgð á minkaslysinu? Anahita Sahar Babaei skrifar Skoðun Spænska knattspyrnuliðið sem héraðsmetafór fyrir Spán Jordi Oriola Folch skrifar Skoðun Gæði bygginga ráðast ekki ef reglugerðum einum saman Bergþóra Góa Kvaran skrifar Skoðun Ég hélt að þetta væri bara lítið hrúður Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Af hverju já? Reynir Böðvarsson skrifar Skoðun Ef lausnirnar eru til, af hverju eru þær ekki notaðar? Birgir Hrafn Birgisson skrifar Skoðun Óreiða á samviskunni Páll Rafnar Þorsteinsson skrifar Skoðun Fullveldi fyrir hvern? Hjálmar Vilhjálmsson skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju er svona erfitt að vera heiðarlegur við sjálfan sig? Sigurður Árni Reynisson skrifar
Skoðun Stór orð, lítil rök og ekkert dæmi um ranga tölu – Svar til Konráðs S. Guðjónssonar Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Vinnslustöðin rýrir afkomu sjómanna og landverkafólks – en til hvers? Gunnar Sigurðsson skrifar