1-1-2 dagurinn Hjalti Sigurðsson skrifar 11. febrúar 2026 08:00 Þann 11. febrúar er einn, einn, tveir dagurinn en þá halda viðbragðsaðilar á lofti mikilvægi neyðarnúmersins 1-1-2 og allrar þeirrar starfsemi sem tryggja öruggt viðbragð við hverskonar neyð. Eitt númer fyrir allt landið, sama hver neyðin er í 30 ár Það skiptir engu hverskonar aðstoð þú þarft á að halda í neyð, þú þarft bara að muna þessa þrjá tölustafi, einn, einn, tveir. Síðan 1. janúar 1996, eða í þrjátíu ár hefur Neyðarlínan svarað öllum erindum sem kalla á útkall viðbragðsaðila í gegnum samræmda neyðarsímanúmerið 1-1-2. Fyrsta viðbragðið Viðbragðsaðilar um allt land standa vaktina til að tryggja heilsu, öryggi og velferð landsmanna og eru fyrsta viðbragðið þegar neyðin bankar upp á. Þessir aðilar eru allir sérhæðir og mjög færir á sínu sviði og með því að starfa þétt saman, eins og raun ber vitni mynda þeir sterka keðju sem við getum treyst á þegar þörf er á. Neyðarverðir Starfsfólkið á varðstofu neyðarlínunnar, neyðarverðirnir sem svara símtölum og öðrum erindum sem berast til 1-1-2 eru stundum kallaðir fyrsta - fyrsta viðbragðið þar sem þau taka á móti neyðarsímtölum og sjá til þess að rétt fyrsta viðbragð fari af stað. Það má segja að þar sé keðjan virkjuð þegar aðstæður kalla að aðkomu viðbragðsaðila. Mikilvægasti hlekkurinn Í keðjunni eru allir hlekkirnir, allir viðbragðsaðilarnir ómetanlegir en til að vel takist til í fyrsta viðbragði í neyðartilvikum er enginn mikilvægari en innhringjandinn. Góðar upplýsingar frá þeim sem hringir í neyðarlínauna geta skipt sköpum, geta bjargað mannslífum. Þegar hringt er í neyðarlínuna munu neyðarverðir spyrja þig spurninga sem allar tengjast hvar, hver, hvað og hvenær þó þær séu orðaðar á mismunandi hátt eftir eðli hvers máls fyrir sig. Hvar er neyðin? Hver er þú? Hvað kom fyrir? Hvenær gerðist það? Því er gott að undirbúa sig fyrir það að þurfa mögulega einhvern daginn að hringja í 1-1-2 og hugsa með sér; hvernig þarf ég að vera undirbúinn til að vera mikilvægasti hlekkurinn í keðjunni? 1-1-2 dagurinn 2026 Nú er vika neyðarnúmersins og um allt land standa viðbragðsaðilar að viðburðum í nafni 1-1-2 dagsins sem miða að því að minna á mikilvægi 1-1-2. Eftir að hafa lesið þessa grein vona ég að þið sjáið tækifærið í því að gera eitthvað að þessu tilefni inn á heimilum og vinnustöðum, ræða um 1-1-2 og leggja línunnar að ykkar viðbrögðum í neyð. Höfundur er aðstoðarvarðstjóri hjá Neyðarlínunni og verkefnastjóri 1-1-2 dagsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Lögreglan Slökkvilið Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira