Engin þjónusta, enginn biðlisti Anna Berglind Svansdóttir, Gyða Elín Bergs og Linda Björk Magnúsdóttir skrifa 8. febrúar 2026 14:02 Fyrirsögnin vísar í niðurstöðu sem blasir við verði frumvarp um breytingar á lögum um sjúkratryggingar samþykkt óbreytt (lögin má sjá hér). Frumvarpið felur í sér alvarlegt brot á grundvallarrétti sjálfstætt starfandi heilbrigðisstarfsfólks til að semja á jafnræðisgrunni. Fyrir talmeinafræðinga, sem hafa verið samningslausir við Sjúkratryggingar Íslands frá 2022, bætist þetta ofan á langvarandi undirverðlagða þjónustu og skort á samnings- og samstarfsvilja af hálfu SÍ. Samkvæmt nýlegri könnun Visku eru yfir 70% sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga óánægðir með kjör sín. Þolinmæði stéttarinnar er á þrotum og samþykkt frumvarpsins gæti reynst síðasti naglinn í kistu sjálfstætt starfandi talmeinaþjónustu.Þjóðin virðist upplýst um langa biðlista barna eftir þjónustu talmeinafræðinga en í umræðunni gleymist oft að fullorðið fólk þarf einnig á talmeinafræðingum að halda og bíður, líkt og börnin, eftir nauðsynlegri þjónustu. Talmeinafræðingar sinna fullorðnu fólki sem á í erfiðleikum með tal, mál, rödd eða kyngingu. Orsakirnar eru fjölbreyttar og geta tengst slysum, áföllum, sjúkdómum eða komið fram án augljósra skýringa. Með einstaklingsmiðaðri þjálfun, ráðgjöf og stuðningi er leitast við að bæta eða viðhalda færni, hjálpa fólki að takast á við breyttar aðstæður og finna leiðir sem auðvelda samskipti í daglegu lífi. Aðkoma talmeinafræðinga getur haft veruleg áhrif á daglegt líf, félagslega virkni og almenna líðan einstaklinga. Stétt talmeinafræðinga á Íslandi telur aðeins um 180 manns; þar af eru einungis um 25 sem halda uppi sérhæfðri talmeinaþjónustu fyrir fullorðna landsmenn - hvort sem er á sjúkrastofnunum eða sjálfstætt. En af hverju er fullorðið fólk sem þarf á talmeinaþjónustu að halda sérstakt áhyggjuefni?Reykjalundur, endurhæfingarstofnun, lagði nýverið niður sína talmeinaþjónustu og þar með tvö stöðugildi talmeinafræðinga. Þar er meðal annars sérhæfð hópmeðferð fyrir fólk með parkinsonsjúkdóm þar sem talmeinafræðingar sinntu fræðslu, ráðgjöf og þjálfun en allt að 90% þeirra sem greinast með parkinson finna fyrir einkennum í rödd eða tali. Kjarkur (áður Sjálfsbjörg), endurhæfing fyrir hreyfihamlaða einstaklinga sem glíma við tauga- og heilaskaða, fækkaði sínum talmeinafræðingum úr tveimur í einn á síðasta ári. Á endurhæfingardeild Landspítalans á Grensási eru nú fimm stöðugildi talmeinafræðinga sem sinna fullorðnum. Þessi fækkun stöðugilda er ekki tilviljun, hér á sér stað ákveðin þróun þar sem þrengt er að sérhæfðri endurhæfingu. Þetta gefur heldur ekki til kynna að þörfin fyrir þjónustu talmeinafræðinga sé einfaldlega ekki meiri, til að mynda hefur Reykjalundur boðað að samið verði við tvo talmeinafræðinga í verktöku til að sinna þeim verkefnum sem áður voru unnin af talmeinafræðingum stofnunarinnar. Verktakaráðning kemur aldrei í stað þess að tilheyra þverfaglegu teymi innan sömu stofnunar þar sem fylgst er náið með málefnum og áskorunum hvers einstaklings og unnið er að því að takast á við erfiðleikana sem ein heild. Talmeinaþjónustan sem veitt er á Landspítala, Kjarki og áður á Reykjalundi er tímabundin og þegar veru fólks lýkur þurfa margir áframhaldandi þjálfun. Hingað til hafa sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar sinnt þeirri þjálfun en áður en til hennar kemur fer fólk á fyrrnefnda biðlista. Nú er hins vegar uppi sú alvarlega staða að vegna viðvarandi samningsleysis við SÍ, og í ljósi fyrrnefnds frumvarps, er raunveruleg hætta á að sjálfstætt starfandi talmeinafræðingar neyðist til að hætta starfsemi. Ef til þess kemur mun stór hópur fólks standa eftir án aðgengis að nauðsynlegri heilbrigðisþjónustu. Hvert á þetta fólk þá að leita - og þeir sem ekki hafa dvalið á fyrrnefndum stofnunum en þurfa engu að síður á aðkomu talmeinafræðings að halda? Undirritaðar lýsa yfir verulegum áhyggjum af stöðu talmeinaþjónustu innan heilbrigðiskerfisins og þeim afleiðingum sem brotthvarf sjálfstætt starfandi talmeinafræðinga gæti haft á skjólstæðinga okkar. Ein leið til að útrýma biðlistum væri vissulega að hafa engin úrræði sem biðlistar geta myndast í en er það skynsamleg og sjálfbær lausn? Varla. Höfundar eru talmeinafræðingar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Heilbrigðismál Mest lesið Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson Skoðun Skoðun Skoðun Svargrein við grein Hauks Arnþórssonar Jón Sigurgeirsson skrifar Skoðun Sjálfstæðisflokkurinn og Bókun 35. Fullveldi eftir hentugleikum? Júlíus Valsson skrifar Skoðun Hvar er náungakærleikurinn? Steindór J. Erlingsson skrifar Skoðun Það sem gerist þegar við segjum frá Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Brýtur innviðaráðherra lög, aftur? Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Ekkert okkar á að ganga þennan veg eitt Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Kerfið sem sýndarveruleiki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Erum við að grafa undan lýðræðinu? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Berð þú ábyrgð á stafrænni útilokun fólks með fötlun? Rósa María Hjörvar skrifar Skoðun Hvernig förum við með valdið? Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Gervi hvað? Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun 11 ógnir sem Ísland þarf að búa sig undir Ingólfur Shahin skrifar Skoðun Hvenær er faglegt að spyrja fagfólk? Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Ef fréttir eru nauðsynjavara, hver á að borga? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Reynsla, fagmennska og framtíð SÁÁ Jón Páll Hallgrímsson skrifar Skoðun Próf eiga að vera áttaviti, ekki áfangastaður Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? Jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar