„Groundhog Day“ í boði réttarkerfisins Davíð Bergmann skrifar 2. febrúar 2026 15:01 Þetta er eins og biluð plata sem neitar að hætta að spila. Fréttirnar á Vísi nýverið eru nánast klipptar út úr handriti sem við höfum lesið hundrað sinnum áður: Fólskuleg líkamsárás á Hafnarfjarðarvegi. Fórnarlambið, Daníel Örn Sigurðsson, var bara að bíða eftir strætó eftir handboltaleik þegar þrír piltar, 16 og 17 ára, ákváðu að sýna „hetjuskap“ sinn. https://www.visir.is/g/20262837712d/log-regla-fekk-send-mynd-bond-af-a-rasinni-fra-veg-far-endum Svo kemur næsta frétt, og næsta. Dómar sem eru í engu samræmi við alvarleika brotanna – eins og í hrottalegu hóparásinni í Heiðmörk. Þar er dæmt af slíkri mýkt að maður spyr sig hvort verið sé að refsa fyrir ofbeldi eða veita smá ávítur fyrir að gleyma að vökva blómin. https://www.dv.is/frettir/2025/12/25/ungmenni-daemd-fyrir-frelsissviptingu-og-hrottalega-hoparas-heidmork/ Skrúfan er löskuð, en kafarinn sefur Spurningin sem brennur á manni er þessi: Hvað þurfa málin að vera mörg, og hvað þurfa fórnarlömbin að vera mikið slösuð (eða látin) áður en við berjum í borðið og segjum „hingað og ekki lengra“? Miðað við dómafordæmi síðustu ára býst ég ekki við neinu öðru en hefðbundnu „skamm-skamm“ og kannski einu föstu handtaki á öxlina. Við neitum nefnilega að breyta nálguninni þegar kemur að afbrotum barna og ungmenna. Skrúfan á olíuskipinu okkar hefur verið löskuð í áratugi. Við vitum öll af henni. Við heyrum hljóðið í henni. En enginn ætlar að kafa niður og laga hana. Þess í stað sitjum við á innsoginu í hvert skipti sem nýtt mál kemur upp, lýsum yfir þungum áhyggjum í fjölmiðlum og bíðum svo bara róleg eftir næstu árás. Er þetta virkilega planið fyrir næstu áratugi? Möppudýr í fílabeinsturnum Ef fólskulegar árásir og morð duga ekki til að kalla á breytingar, hvað þarf þá að gerast? Það væri óskandi að dómsmálaráðherra tæki fast á þessum málum í stað þess að fela sig á bak við vinnuhópa. Ég hef þegar setið fund með aðstoðarmönnum núverandi ráðherra ásamt reynsluboltum sem hafa unnið áratugum saman á meðferðardeild Stuðla. Okkur blöskrar aðgerðarleysið. Í stuttu máli hefur ekkert heyrst í ráðuneytinu síðan við fórum á þennan fund! Við þurfum ekki fleiri nefndir eða fleiri möppudýr í fílabeinsturnum til að skrifa skýrslur sem enginn les. Við þurfum aðgerðir. Ég skora á ráðherra að sýna festu. Ég er alltaf tilbúinn að mæta aftur og teikna þetta upp ef þess þarf – Það þarf að fara að gerast eitthvað annað en bara þetta eilífa innihaldslausa orðagjálfur og skýrslufóstur í boði ríkisins. Hvað þarf til? Ég hef misst tölu á þeim ráðherrum, þingmönnum og lögreglustjórum sem ég hef hitt til að benda á hið augljósa. Við þurfum ekki að finna upp hjólið; við getum bara horft til Danmerkur (Puk/Politiets Ungdomsklub) eða Youth Offending Teams í Bretlandi. En nei, hér gerist akkúrat ekki neitt. Við erum eins og smábörn sem stingum puttanum í eldinn aftur og aftur til að athuga hvort hann sé örugglega jafn heitur og síðast. „Jú, hann brennur enn þá,“ segjum við hissa, á meðan sérsveitin sinnir tólf sinnum fleiri vopnuðum útköllum en áður og hnífstungur á Menningarnótt verða að árlegum viðburði. Ekki breyta lögunum – notið þau! Það fyndna (eða tragíska) er að við þurfum ekki einu sinni að breyta lögum. Við þurfum bara að fara að líta á 57. grein almennra hegningarlaga og nota þau tæki sem þegar eru til staðar. Ég hef sagt það áður og ég segi það aftur: Daginn sem ný og raunveruleg nálgun í málefnum ungra afbrotamanna lítur dagsins ljós, þá skal ég hætta að „rífa kjaft“. En þangað til mun ég halda áfram að benda á að við erum óttalegir hellisbúar í þessum málum. Við fögnum því þegar tekið er á málefnum erlendra afbrotamanna – sem er gott og blessað – en hvers vegna fá okkar eigin ungu ofbeldisseggir að vaða uppi nánast án afleiðinga? Hver verður næstur, kæri ráðherra? Tækifærin til að gera vel eru ótrúlega mörg ef við þorum bara að hugsa út fyrir kassann. Langar að benda á Facebook-síðuna „hvernig fækkum við afbrotum barna“. Höfundur er áhugamaður um betra samfélag og óskar eftir sæti hjá Miðflokknum fyrir næstu borgarstjórnarkosningar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Davíð Bergmann Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar