„Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa“ Árni Sæberg og Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifa 22. desember 2025 15:33 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna, og Ingvi Hrafn Óskarsson, lögmaður samtakanna. Vísir/Vilhelm „Ég verð að segja að ég er svolítið hlessa. Ég er ánægður með að þeir hafi verið dæmdir ólöglegir þessir skilmálar en ósáttur við það að ekkert tjón hafi hlotist af skilmálunum,“ segir Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Landsbankinn var í dag sýknaður af öllum kröfum neytenda í tveimur síðustu vaxtamálunum svokölluðu.
Líkt og fjallað var um í dag taldi Hæstiréttur að tilteknir skilmálar Landsbankans í tveimur lánasamningum hafi verið ólögmætir en að ekkert tjón hefði hlotist vegna þeirra. Því var Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum neytenda. Breki segir þá niðurstöðu í takti við það sem Neytendasamtökin lögðu upp með, að því leytinu til að skilmálarnir hafi verið dæmdir ólögmætir. Stór breyting Í dómunum tveimur segir að skilmálarnir hafi heimilað bankanum að breyta vöxtum í samræmi við vaxtaákvarðanir hans á hverjum tíma. „Það var það sem við lögðum upp með, að bönkunum verður ekki lengur heimilt að breyta vöxtum eftir hentisemi, nánast, heldur verði skilmálarnir að vera skýrir, aðgengilegir og útskýranlegir fyrir venjulegum neytanda. Auðvitað er það stór breyting en við erum svolítið hvumsa yfir því að bönkunum hafi verið, Landsbankanum í þessu tilviki, hafi verið heimilt að beita skilmálunum, eins og hann gerði og án þess að það hafi hlotist neitt tjón af. Svona í fljótu bragði þá er bara ósammála því.“ Leggjast yfir dómana ásamt jólabókunum Breki segir að hann og lögmenn Neytendasamtakanna muni nú leggjast yfir dómana, ásamt jólabókunum. Grétar Dór Sigurðsson, Breki Karlsson og Ingvi Hrafn Óskarsson. „Þetta verður kannski aðallesturinn yfir hátíðirnar og svo sjáum við til strax í byrjun næsta árs hvað við gerum.“ Hann bendir á að í gengislánamálunum svokölluðu á sínum tíma hafi þurft að höfða tugi mála áður en niðurstaða náðist neytendum í hag. Hann voni að ekki muni þurfa að koma til þess. Neytendasamtökin muni á nýju ári ræða við alla bankana og sjá hvernig þeir munu bregðast við dómunum.
Vaxtamálið Lánamál Fjármálafyrirtæki Landsbankinn Neytendur Mest lesið Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Neytendur Hjallastefnan fær loksins húsnæði Viðskipti innlent Bein útsending: Ásgeir og Tómas sitja fyrir svörum Viðskipti innlent Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Neytendur Viðvarandi óvissa, versnandi verðbólguhorfur og háir vextir gætu reynt á Viðskipti innlent Ný verslun Elko opnuð í Smáralind Viðskipti innlent Boðar Icelandair og flugmenn til fundar annað kvöld Viðskipti innlent Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrstu Spar-verslanirnar opna um helgina Samlokan merkt á tólf þúsund krónur vegna kerfisvillu Innkalla pipar vegna eiturs Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis Lækkunin skilaði sér hjá öllum nema Costco Svara kallinu og hafa opið til tíu á kvöldin Vonar að þrjár konur hjá Icelandair hafi fengið hrós Isavia má rukka í rennuna eftir allt saman Súperdósin snýr aftur Mega ekki auglýsa MBA-nám án þess að vera háskóli Sjá meira