Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair Bjarki Sigurðsson skrifar 4. október 2025 21:31 Breki Karlsson, formaður Neytendasamtakanna. Vísir/Einar Formaður Neytendasamtakanna segir engan brag af verðhækkunum hjá Icelandair í kjölfar gjaldþrots Play. Þrátt fyrir mikið framboð af flugferðum til og frá Íslands hafa ferðaskrifstofur lent í vandræðum með endurskipulagningu ferða.
Miðað við samtöl fréttastofu við stóra aðila innan ferðamannageirans hefur gjaldþrot Play haft minni áhrif á stærri fyrirtæki en búist var við. Lítið er um að stærri hópar afbóki eða fresti ferðum til landsins, þó dæmi séu um það. Fréttastofa hefur þó heyrt af fjölda einstaklinga og minni hópa sem gjaldþrotið hefur áhrif á. Jólaferðir til Spánar sem eru tímabundið á ís og fleira. Samkvæmt Neytendalögum ber ferðaskrifstofum að aðstoða þá sem kaupa pakkaferðir við að komast á áfangastað. Neytendasamtökunum hefur borist fjöldi ábendinga sem sýna að stofurnar hafa lent í smá brasi. „Við höfum orðið vör við það að það eru ferðaskrifstofur sem benda farþegum sínum á að reyna að redda sér sjálfum flugferðum. Með misjafnri útkomu. Það er oft á tíðum erfitt að finna beint flug á þann stað sem menn ætluðu á upprunalega, þannig þetta er flókin staða,“ segir Breki. Þrátt fyrir að Play skilji eftir gat á markaðinum, er enn fjöldi flugfélaga sem flýgur til og frá Íslandi. Samkvæmt Isavia eru 25 flugfélög með áætlunarflug til Íslands einhvern hluta ársins. Taka ber fram að hluti býður eingöngu upp á flug á ákveðnum tímum ársins. Kort sem sýnir löndin sem Íslendingar geta ferðast til með beinu flugi. Athugið að staðsetningarnar á kortinu sýna ekki hvar borgirnar sem flogið er til eru. Tölurnar tákna fjölda flugfélaga sem fljúga til hvaða lands. Vísir/Sara Talning fréttastofu sýnir að félögin 25 fljúgi til 51 borgar í 25 löndum. Gert var ráð fyrir að Play yrði með átta prósent markaðshlutdeild síðustu þrjá mánuði ársins, áður en félagið fór í þrot. Það er því úr nægu að velja fyrir Íslendinga á leið erlendis. Hér má sjá merki flugfélaganna 25 sem fljúga til og frá Íslandi.Vísir/Sara Það vakti þó athygli að skömmu eftir fall Play hækkaði sætisverð hjá Icelandair töluvert. Flugfélög nota alla jafna kerfi sem kallast „Dynamic Pricing“ eða kvikverðlagning, sem miðar að því að verð breytist mjög hratt eftir eftirspurn, árstíma, framboði og fleiru. „Hún er ekkert náttúrulögmál. Það á ekkert endilega alltaf við að beita henni, sér í lagi ekki þegar eitthvað svona kemur upp á. Þegar fólk er á flæðiskeri statt að hækka þá verð á flugmiðum upp úr öllu valdi. Það finnst mér ekki flott,“ segir Breki.
Neytendur Fréttir af flugi Play Gjaldþrot Play Icelandair Mest lesið Omnom gjaldþrota og kröfuhafar uggandi Viðskipti innlent Veitingastaðurinn opinn en lónið opnar síðar Viðskipti innlent Steinhissa á MR og rifjar lúmskt upp sjónvarpsleysið á fimmtudögum Atvinnulíf Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair Neytendur Innbú Play til sölu: Gæti aflað búinu fjórtán milljóna króna Viðskipti innlent Skáluðu fyrir kraftinum sem knýr samfélagið Viðskipti innlent Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent Eva og Guðrún nýir forstöðumenn hjá Icelandair Viðskipti innlent Nú er ekki hægt að afskrá flugvélar nema að greiða gjöldin Viðskipti innlent ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Neytendur Fleiri fréttir Enginn bragur af verðhækkunum Icelandair ORA svarar fyrir fiskbúðinginn: „Stundum þarf bara pung í að gera breytingar“ Þetta eru réttindi þeirra sem eiga bókað með Play Airpods allt að 40 prósent dýrari hérlendis U-beygja Metro sem komst í gegnum eftirlit án nokkurra athugasemda Lækkar vexti og boðar frekari innreið á lánamarkað „Gæti orðið til þess að þú sért látinn fara“ Sleppur við vangreiðslugjaldið hjá Parka Afbókaði dýra ferð þremur dögum fyrir brottför og fær endurgreitt Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Dældi dísil á bensínbíl en fær kostnaðinn endurgreiddan Fær endurgreiðslu þar sem sjónvarpið í herberginu virkaði ekki Sýnishornið of ólíkt borðplötunni sem skilaði sér heim Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Sjá meira
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent
Rifjar Ímon-málið upp 17 árum seinna: „Hreint og beint ofbeldi af hálfu opinberra starfsmanna“ Viðskipti innlent