Þingmenn auðvaldsins Karl Héðinn Kristjánsson skrifar 2. júlí 2025 12:01 1. Hundrað klukkustunda málþóf í þágu sérhagsmunaseggja. Þingmenn Sjálfstæðisflokksins og Miðflokksins í stjórnarandstöðu hafa staðið fyrir 110 klukkustunda málþófi á Alþingi til að tefja leiðréttingu veiðigjaldsins – einfalt skref sem myndi færa ríkissjóði 6–8 milljarða króna á ári og stöðva langvarandi og kerfisbundið svind stórútgerðanna gegn þjóðinni. Á sama tíma eru grunnlaun hvers þingmanns að lágmarki 1.525.841 kr. á mánuði, eða tæplega 18,3 milljónir króna á ári. Flestir fá þeir veglega ofan á þessi grunnlaun fyrir nefndarstörf, ferðakostnað, húsnæðisstuðning o.fl. Við hin mætum því í vinnuna til að greiða þeim ofurlaun meðan þeir verja ofurhagnað svindlara. --- 2. Svindlið sem leiðréttingin á að stöðva Stórútgerðir hafa árum saman selt sjálfum sér fisk undir markaðsverði. Með því tekst þeim að greiða lægri laun til sjómanna og borga lægra veiðigjald. Leiðréttingin er því ekki „hækkun“, heldur löngu tímabær leiðrétting. Stórútgerðin ætti að þakka fyrir að sleppa svo vel með skrekkinn. --- 3. Heilbrigðismálin – forgangsröðun Á sama tíma og þingmenn verja hagsmuni stórútgerðanna stendur heilbrigðiskerfið höllum fæti og færist yfir í sífellt dýrari einkarekstur. nýleg skoðanagrein heilsuhagfræðings og lyfjafræðings varar okkur við þessari þróun. Ríkið og Sjúkratryggingar greiða nú milljarða króna til einkaaðila á hverju ári; læknar flytja sig í einkageirann, biðlistar lengjast og almenningur borgar í auknu mæli tvöfalt – bæði úr eigin vasa og í gegnum skatta. Viljum við líkjast meira Bandaríkjunum þar sem er borgað hátt í tvölfalt meira en á Íslandi, yfir 17% af VLF (vergri landsframleiðslu) til að greiða fyrir hagnað milliliða og einkaðila í heilbrigðiskerfinu? Í Bandaríkjunum er auðvaldið allsráðandi. --- 4. "Varnarátak" – 1,5 % af VLF, 70 milljarðar á ári? Tölum aðeins meira um forgangsröðun. Ríkisstjórnin hefur heitið því að hækka varnarútgjöld Íslands í 1,5% af vergri landsframleiðslu (≈70ma. kr.) árið 2035. Það jafngildir því að bæta við 34ma. kr. á ársgrundvelli – fjárhæð sem gæti: Tífaldað stuðning við óhagnaðardrifna húsnæðisuppbyggingu. Tvöfaldað, að minnsta kosti, fjárfestingar í geðheilbrigðisþjónustu. Markviss uppbygging meðferðar- og stuðningsúrræða fyrir börn og ungmenni með þroska‑ og hegðunarerfiðleika. Tvöfaldað framlag til háskólanna. Fjármagnað stórátak í samgöngum: Ein stór jarðgöng á hverjum þrem árum. Lestir – færa fólki og fyrirtækjum hagkvæmari og grænni kosti. Ísland er herlaus þjóð. Er virkilegt tilefni til stórátaks í varnarmálum núna, þegar húsnæðiskreppa og hnignun heilbrigðiskerfisins og innviða blasir við? Ásamt dýpkandi innviðaskuld. Við ættum að taka sjálfstæðar ákvarðanir sem þjóð um hvað sé skynsamt og rétt að gera. Nýtum fullveldi okkar. Bandaríkin vilja auka hernaðarútgjöld allrar Evrópu til muna en það skilar sér í stórauknum hagnaði bandarískra vopnaframleiðenda. Við ættum að harðneita að taka þátt í slíku stríðsbrölti. Skynsamlegra væri að verja fjármunum í raunverulegt öryggi fólks: þök yfir höfuðið, öflugt heilbrigðiskerfi og samgöngur sem halda landinu saman. Það mun raunverulega auka öryggi með því að auka velsæld og heilbrigði og þannig draga raunverulega úr glæpum og ofbeldi. Ég tek undir með Grími Atlasyni. Hvar er málþófið um alvarlega stöðu barna á Íslandi? --- 5. Pólitísk efnahagsskipan – fyrir hvern? Þingmenn auðvaldsins eru í öfgafullu málþófi við ríkisstjórnina til að stöðva smávægilega leiðréttingu á kerfisbundnu svindli – en þingheimur allur virðist sammála um stóru málin: að verja ofurhagnað útgerðanna og stórfjármagnseigenda, auka „varnarútgjöld“, skattpína almenning og svelta grunnstoðir samfélagsins. Hér eru tölur sem gefa mikilvægt samhengi: Viðbótarútgjöld í varnarmál (0,75 → 1,5 % VLF): -34 milljarðar króna á ári Leiðrétt veiðigjald (áætlaðar auknar tekjur): +6–8 milljarðar króna á ári Allt framlag til háskólanna: ≈ 26 milljarðar króna á ári Félagslegt húsnæði (fjárfesting ríkisins): Innan við 3 milljarðar á ári Þingið stendur saman um dýrar og mjög metnaðarfullar varnaráætlanir í þágu NATO – en hlustar lítið þegar kallað er eftir ódýrara húsnæði, stuðningi við einstæða foreldra, börn, barnafjölskyldur, aldraða og bættum innviðum. Alvöru öryggi verður ekki tryggt með vopnum – heldur með velferð, menntun, heilbrigði og öruggu þaki yfir höfuðið. --- 6. Kjósum okkur sjálf, krefjumst stjórnvalda í almannaþágu Við þurfum þingmenn sem þora að berjast fyrir hagsmunum almennings, burt með þá sem taka þingið í gíslingu til hálf fimm um morguninn fyrir útgerðarmenn með risavaxna reikninga á Tortóla. Gefum ekki atkvæði okkar þeim sem lifa á ofurlaunum til að verja ofurhagnað auðmanna sem kæra sig ekkert um hagsmuni almennings. Vinnandi fólk skapar verðmætin sem halda samfélaginu uppi – krefjumst þess að þau renni til velferðar, menntunar og raunverulegs öryggis í stað þess að hverfa í vasa sjálfhverfra fjármagnseigenda. Höfundur er meðlimur í framkvæmdastjórn Sósíalistaflokks Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Karl Héðinn Kristjánsson Sósíalistaflokkurinn Mest lesið Halldór 5.9.2026 Halldór Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum ekki sagt körlum að tala og svo ekki hlustað Grétar Björnsson skrifar Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar Skoðun Höfum við tíma fyrir börnin okkar? jóhann Rúnar Pálsson skrifar Skoðun Lindsay Clancy: Konur eru „hysterískar” þegar það hentar þeim Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Bilið sem skilningurinn fyllir ekki Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Marta Kos verður að virða niðurstöðuna Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar góður ásetningur skilur börn eftir Guðjóna Eygló Friðriksdóttir skrifar Skoðun Gagnaver, Verne og Ísrael Halldór Reynisson skrifar Skoðun Sterkari innviðir fyrir STEM menntun Huld Hafliðadóttir skrifar Skoðun Ísland sagði nei – en sagði það nei við Evrópu? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun EES-samningurinn og regluverk atvinnulífsins Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Ábyrgur hagsmunaseggur eða óábyrgt fórnarlamb? Þórdís Hólm Filipsdóttir skrifar Skoðun Milljón hugmyndir, hundrað tímamót Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Fjórða valdið? En það ert þú! Þorsteinn J. Vilhjálmsson skrifar Skoðun Að velta eigin sök á aðra Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Próf, einkunnir og (PISA) mat á skólakerfi. Hluti 1. Jón Torfi Jónasson skrifar Skoðun Hvers eiga börnin að gjalda? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Á að mismuna lántökum? Jón Guðni Ómarsson skrifar Skoðun Þegar öll hafa svörin skiptir hugsunin mestu Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Bubbi Morthens og endalok alheimsins Kristján Logason skrifar Skoðun Þýsklendingar á meðal vor Darri Eyþórsson skrifar Skoðun Þöllin á þorpinu Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Þjóðin sagði nei. En „látum eins og ekkert sé…” Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Málshraðasögur Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Búrkuball í inngildingarviku Þórarinn Hjartarson skrifar Skoðun Þjóðaratkvæðgreiðslan: Aðild að Evrópusambandinu hafnað Kristinn H. Gunnarsson skrifar Skoðun Blekking litla samfélagsins Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar Skoðun Bókun 35: Munurinn á stjórnarskrá Noregs og Íslands Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Skoðun Blómleg ferðaþjónusta skilar sér heim til íslenskra samfélaga Sigfinnur Björnsson skrifar
Skoðun Óþægilegar niðurstöður gera könnun ekki ómarktæka Ingrid Kuhlman,Svanur Sigurbjörnsson skrifar
Skoðun Farsælt samstarf sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu í 50 ár Páll Björgvin Guðmundsson skrifar