Nammið rýkur áfram upp í verði Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. febrúar 2025 16:59 Það verður vafalítið nartað í Nóa Kropp, Kúlusúkk frá Sanbó eða Freyju Hrís á einhverjum heimilum yfir sjónvarpinu í kvöld. Vísir Kúlusúkk og þristar hafa hækkað um ríflega fjórðung í verði í lágvöruverðsverslunum á einu ári. Kílóverðið er þó enn lægra en á vinsælasta súkkulaði stærri framleiðanda sem einnig hækkar og hækkar í verði.
Kakóbrestur í Afríku, þaðan sem evrópskir súkkulaðiframleiðendur fá magnið af kakóbaununum til framleiðslu á súkkulaði, hefur valdið gífurlegum verðhækkunum á súkkulaði í Evrópu. Íslenskir neytendur eru meðal þeirra sem finna fyrir því þegar kemur að skiladögum við kassann í matvöruverslunum. Dyggur lesandi Vísis vakti athygli fréttastofunnar á því að poki af Þristum, sem konan hans er einfaldlega sjúk í og hefur verið um árabil, kosti nú 549 krónur í Bónus. Þristur vann yfirburðarsigur meðal álitsgjafa Vísis á besta namminu fyrir áratug síðan og nýtur enn mikilla vinsælda hjá íslenskum neytendum. Áhyggjurnar voru á rökum reistar. Þristur hefur á einu ári hækkað um 29 prósent í verði. Kúlu-súkk, sem blaðamaður sjálfur hefur neytt af kappi um árabil og orðið fyrir vonbrigðum þegar það hefur verið uppselt, hefur sömuleiðis hækkað í verði um 27 prósent á milli ára. Snorri Páll Jónsson, framkvæmdastjóri Kólus, segir miður að þurfa að hækka verð en bendir á að þegar komi að súkkulaðivörum bjóði fyrirtækið enn lægsta verðið. Það megi sjá í krónum per kíló. „Kakóverð hefur verið að hækka í heiminum, hefur þrefaldast á nokkrum mánuðum vegna uppskerubrests. En við erum búin að hækka verðið langminnst,“ segir Snorri Páll. Verðlagseftirlit ASÍ gerði könnun meðal stærri sælgætisfyrirtækjanna í mars í fyrra. Þá hafði suðusúkkulaðið vinsæla hjá Nóa Siríus hækkað verulega og varaði framkvæmdastjóri hjá fyrirtækinu við frekari hækkunum á árinu og vísaði til kakóbrestsins í Afríku. Verðlagseftirlit ASÍ vakti athygli á því í desember að verð á súkkulaði hjá Nóa Siríus hefði hækkað langmest af öllum vörum í nýrri samantekt eftirlitsins. Verðhækkun Nóa Siríus nam tæpum 23 prósentum en verðið hjá Freyju fór upp um rúm tíu prósent og sjö prósent hjá Góa Lindu. Kólus var ekki hluti af samantekt ASÍ enda töluvert minna fyrirtæki en hin þrjú þrátt fyrir að framleiða vinsælt sælgæti. Snorri segir fyrirtækið óumflýjanlega þurfa að hækka verð en ekki sem nemi áhrifum uppskerubrestsins í Afríku. „Við höfum verið mjög íhaldsamir og reynt að halda í okkur eins og mögulegt er,“ segir Snorri. Því miður sé ekki útséð með frekari hækkanir enda ekki í boði að gera framvirka samninga - nema þá allra stærstu fyrirtækin í einhverjum tilfellum. Óvissan sé því mikil. „Verðið er bara á fleygiferð, og hefur verið síðan í september í fyrra.“ Vísir tók saman hækkun á nokkrum vinsælum súkkulaðivörum á milli ára, frá því í febrúar í fyrra. Aftast má sjá verð í krónum á kíló. Miðað er við verðið í Bónus: Freyju Hrís 250 grömm: 879 krónur (25,9% hækkun) - 3516 krónur/kg Vala bananastangir 150 grömm: 417 krónur (0% hækkun) - 2780 krónur/kg Nóakropp 360 grömm: 943 krónur (18,2% hækkun) - 2619 krónur/kg Freyju Mix 500 grömm: 1279 krónur (16,5% hækkun) - 2558 krónur/kg Sanbó Þristar 250 krömm: 549 krónur (29,2% hækkun) - 2196 krónur/kg Sanbó kúlusúkk 300 grömm: 598 krónur (27,5% hækkun) - 1993 krónur/kg Góu Hraun 200 grömm: 389 krónur (21,9% hækkun) - 1945 krónur/kg Nestle Smarties 130 grömm: 227 krónur (21,4% hækkun) - 1746 krónur/kg
Sælgæti Verðlag Matvöruverslun Tengdar fréttir Verð á kaffi sögulega hátt Verð á kaffi hefur tekið stökk og hefur aldrei verið hærra. Verðhækkanirnar má rekja til áætlana um minni uppskeru á kaffibaunum en undanfarin ár vegna mikilla þurrka og rigninga. Kaffiframleiðendur segjast aldrei hafa séð annað eins. 10. desember 2024 22:59 Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 9. desember 2024 11:17 Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Verð á suðusúkkulaði frá Nóa Síríus hækkaði um 70 krónur á einum mánuði í Bónus eða úr 359 krónum í 429 krónur. Heimsmarkaðsverð á kakóbaunum hefur aldrei verið hærra. Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus, segir neytendur geta átt von á frekari hækkunum. 29. mars 2024 08:01 Mest lesið Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Viðskipti innlent Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Neytendur Samtalshermir til að æfa okkur fyrir erfiðu og viðkvæmu samtölin Atvinnulíf Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Viðskipti innlent Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Viðskipti innlent Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Neytendur 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Viðskipti innlent Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Neytendur Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Samstarf Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Samstarf Fleiri fréttir Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira
Verð á kaffi sögulega hátt Verð á kaffi hefur tekið stökk og hefur aldrei verið hærra. Verðhækkanirnar má rekja til áætlana um minni uppskeru á kaffibaunum en undanfarin ár vegna mikilla þurrka og rigninga. Kaffiframleiðendur segjast aldrei hafa séð annað eins. 10. desember 2024 22:59
Súkkulaðið verði dýrara hjá öllum um páskana Pétur Thor Gunnarsson, framkvæmdastjóri Freyju og Atli Einarsson, viðskiptastjóri Góu-Lindu, segja von á svipuðum verðhækkunum hjá þeim og hjá Nóa Síríus. Neytendur muni finna fyrir þeim um til dæmis páskana. Þeir fóru yfir alls kyns súkkulaðitengt í Bítinu á Bylgjunni í morgun. 9. desember 2024 11:17
Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Verð á suðusúkkulaði frá Nóa Síríus hækkaði um 70 krónur á einum mánuði í Bónus eða úr 359 krónum í 429 krónur. Heimsmarkaðsverð á kakóbaunum hefur aldrei verið hærra. Auðjón Guðmundsson, framkvæmdastjóri markaðs- og sölusviðs Nóa Síríus, segir neytendur geta átt von á frekari hækkunum. 29. mars 2024 08:01