Fjölfræðingur óskar eftir starfi Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar 16. nóvember 2024 11:17 Ef ekki næst sátt í kjaradeilu kennara. Sinnir í dag verkefnum sem skarast á við ýmis sérfræðistörf. Samband íslenskra sveitarfélaga stóð fyrir fundi, á Hilton Reykjavík Nordica þann 12. nóvember s.l., með fulltrúum þeirra flokka sem bjóða sig fram til alþingis í lok mánaðar. Yfirskrift fundarins var að rædd yrðu mál sem brenna á kjósendum og sveitarfélögum. Spurningum var varpað til fulltrúa flokkanna sem sátu fyrir svörum. Ég sat þennan fund og verð að segja að vonbrigði mín voru mikil. Þessi fundur sýndi mér svart á hvítu að menntamál virðast ekki vera ofarlega á forgangslistanum hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og ekki heldur hjá kjósendum ef marka má yfirskrift fundarins. Stærsti útgjaldaliður sveitarfélaganna tengist menntamálum. Helmingur útgjalda fer í þann málaflokk en samt var hann ekki ræddur á þessum fundi. Á þeim 100 mínútum sem fundurinn stóð yfir þá var spurningum um MPA þjónustu og húsnæðismál varpað til fulltrúa flokkanna og þar á eftir átti að ræða samgöngumál en það gafst ekki tími til þess. Á fundinum átti að leitast við að fá fram afstöðu flokkanna til sveitarstjórnarmála og stöðu sveitarfélaganna í víðu samhengi. Þrátt fyrir það þá þótti ekki ástæða til að ræða menntamál. Af hverju voru menntamál ekki rædd á þessum fundi ? Á síðu Sambands íslenskra sveitarfélaga segir að gott samstarf ríkis og sveitarfélaga sé grundvallaratriði til að tryggja skilvirka þjónustu og framfarir fyrir samfélagið. Í ljósi þess sem þar stendur og stöðunnar í menntamálum í dag þá hefði ég haldið að þessi málaflokkur yrði ræddur. Það ríkir neyðarástand í menntamálum. Staðan sem upp er komin mun ekki hverfa af sjálfu sér. Hún hefur verið að gerjast allt of lengi. Miðað við það sem sveitarfélögin hafa sagt opinberlega þá gengur þeim illa að reka skólana og uppfylla þá þjónustu sem börn eiga rétt á samkvæmt lögum. Þurfa þá sveitarfélögin ekki að eiga samtal við ríkið um það ? Nóg er búið að gera af skýrslum og ástandið á ekki að koma neinum á óvart. En minna er um efndir. Stefnumótunin kemur frá ríkinu sem setur lögin og sveitarfélögin eiga að framkvæma það sem ríkir leggur til óháð því hvort þau hafi bolmagn til þess eða ekki. Á þennan hátt mismunum við börnum í landinu eftir búsetu. Sveitarfélögin eru alls konar og standa mis vel fjárhagslega. Börn sem búa í ríku sveitarfélagi fá því meiri þjónustu en þau sem búa í fátækari sveitarfélögum. Við stöndum frammi fyrir vanda í menntamálum sem þarf að bregðast við strax og hvorki ríki né sveitarfélög geta skorast undan ábyrgð. Vandinn sem þarf að horfast í augu við og verður ekki flúinn er að ná sátt um kjör kennara. Það þarf að byrja á því að standa við gefin loforð. Fyrr verður ekki hægt að ræða kjaramál. Kennarar eru löngu búnir að fá nóg. Þeir vilja ekki verkföll en verkföll eru eina vopnið sem þeir hafa til að ná til eyrna yfirvalda. Ef yfirvöld hefðu samið þannig við kennara á sínum tíma að þeir fengju menntun sína metna þá værum við ekki að glíma við þennan vanda. En í stað þess að takast á við vandann eins og þarf að gera þá eyðir Samband íslenskra sveitarfélaga púðri í að sverta kjarabaráttu kennara í augum almennings. Samband íslenskra sveitarfélaga segir að launahækkanir kennara hafi verið mun meiri en sérfræðinga á almennum markaði og nefna prósentur í því sambandi. Það sér það hver heilvita maður að samanburður í prósentum er galinn því að auðvitað er prósentuhækkunin hærri eftir því sem launin eru lægri. Svo talar Samband íslenskra sveitarfélaga mikið um verðgildi annarra kjara og réttinda kennara. Ef þessi önnur kjör sem sambandið talar um eru svona eftirsóknarverð og verðmæt. Af hverju í ósköpunum flykkjast þá ekki útskrifaðir kennarar inn í skólana að kenna ? Af hverju er þá þessi vandi ef kennarar hafa það svona gott eins og Samband íslenskra sveitarfélaga vill meina ? Ætlar Samband íslenskra sveitarfélaga virkilega að hunsa og úthúða kennurum til hlýðni ? Að reyna að fá samfélagið á móti þeim þannig að þeir bugist í sinni baráttu. Með því móti eru fleiri kennarar hraktir úr stéttinni og ástandið versnar. Og ég sem hélt að við værum að vinna saman að því að byggja upp öflugt og mannbætandi menntakerfi. Við kennarar höfum í gegnum árin hugsað í lausnum. Hvernig væri að yfirvöld færu að gera það sama og finndu lausn á kennaradeilunni í eitt skipti fyrir öll. Þá fyrst væri hægt að semja við kennara eins og aðrar háskólamenntaðar stéttir. Og þá fyrst myndi fólk hætta að segja „Þessir kennarar eru alltaf í verkfalli“. Höfundur er kennari í stjórn Kennarafélags Reykjavíkur. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Rakel Linda Kristjánsdóttir Kennaraverkfall 2024 Mest lesið Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Gætum við haft það betra? Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Já við fleiri verkfærum fyrir byggðir landsins Arna Lára Jónsdóttir Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Skoðun Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Hver ætlar að hafa augun á boltanum? Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir skrifar Skoðun Brexit rútan mætt til Íslands! Andrés Pétursson skrifar Skoðun Að gera illt verra - Verðbólgan og ábyrgð stjórnvalda Jón Ferdínand Estherarson skrifar Skoðun Íslenski hesturinn og ESB: Hræðsluáróður eða raunveruleg hætta? Begga Rist skrifar Skoðun Landbúnaður og matvælaverð – Framtíðar þróun Guðjón Sigurbjartsson skrifar Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar Sjá meira
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar
Skoðun Þegar stjórnvöld og stórfyrirtæki standa ekki við orð sín Jóhann Helgi Stefánsson,Jón Helgi Björnsson skrifar