Atvinnulíf

Sex ein­kenni um að þú sért í miðaldrakrísu í vinnunni

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Að upplifa miðaldrakrísu í vinnunni eða starfsframa getur komið upp á aldursbilinu 40-60 ára. Oft áttum við okkur ekki á því í fyrstu, hvað er eiginlega að angra okkur.
Að upplifa miðaldrakrísu í vinnunni eða starfsframa getur komið upp á aldursbilinu 40-60 ára. Oft áttum við okkur ekki á því í fyrstu, hvað er eiginlega að angra okkur. Vísir/Getty

Stundum vantar okkur orð til að lýsa einhverju sem þó er nokkuð algengt að fólk upplifi. Eins og til dæmis það að upplifa miðaldrakrísu í vinnunni. Já, það er til. 

Á ensku er talað um mid-career crisis. Sem við gætum svo sem einnig þýtt sem einhvers konar mið-starfsframakrísu, en veljum í þessari grein að tala um sem miðaldrarkrísu í vinnu/starfsframa.

Þó skal tekið fram að tímabilið sem hér um ræðir og á oftast við getur spannað aldursbilið 40-60 ára.

Í stuttu máli lýsir þessi krísa sér þannig að við erum að upplifa einhvers konar efa, óánægju og stöðnun í starfi. 

Þó þannig að við erum oft ekki að átta okkur á því hvað er eiginlega að angra okkur?

Sumir vilja meina að þessi upplifun geti jafnvel komið upp fyrir fertugt; frá 35 ára. Mögulega getur það skipt máli hér, hvenær fólk byrjaði fyrir alvöru að vinna, á hvaða aldri það var þegar það lauk námi eða hversu lengi það hefur verið í sama starfinu.

Hvert svo sem aldursbilið er, þá eru hér sex einkenni sem gætu bent til þess að þú sért að upplifa miðaldrakrísuna í vinnunni þinni eða starfsfframa.

1. Gamli drifkrafturinn er horfinn

Lýsir sér til dæmis í því að verkefni sem þér fannst áður mjög spennandi og skemmtileg, virka leiðinleg og óspennandi í dag. Eða að þótt þú hafir eitt sinn oft rétt upp hönd og boðist til að leysa úr einhverjum málum eða verkefnum, þá ertu einfaldlega hætt/ur því í dag: Nennir því ekki lengur.

2. Sjálfsöryggið varð fyrir hnjaski

Skýrt merki um krísu getur verið breytt sjálfsmat og sjálfsóöryggi í starfinu, sem þú þó upplifðir ekki áður. Þetta getur til dæmis lýst sér þannig að þú hafir ekkert efast um hæfni þína í starfi í mörg ár, en ert allt í einu að upplifa óöryggi og efasemdir.

3. Almenn óánægja í vinnunni

Síðan er það þessi líðan að vera almennt að upplifa óánægju í vinnunni. Jafnvel þannig að heilu sunnudagarnir fara í að láta sér líða illa yfir því að það er vinna daginn eftir. Eitthvað sem þú þekktir ekki áður.

4. Óþol gagnvart nýju starfsfólki

Í staðinn fyrir að taka brosandi og með jákvæðni á móti nýju starfsfólki ertu að upplifa ákveðið óþol gagnvart þessu fólki. Í staðinn fyrir að vera vinaleg/ur í fasi, er ekki laust við að fólk upplifi pirring frá þér.

5. Leiðinlegt viðmót

Enn önnur vísbending er að vera svolítið sama um samstarfsfélagana þannig að alls kyns lítil atriði sem ættu að teljast eðlileg og sjálfsögð í samskiptum samstarfsfélaga er nánast horfið úr þínu fari. Það er varla að þú nennir að bjóða góðan daginn nema stundum.

6. Aukin þreyta

Jafn eðlilegt og það er að vera stundum þreytt eftir vinnudaginn, ertu að upplifa þreytuna meira eins og viðvarandi orkuleysi í vinnunni allan daginn, alla daga. Þú varla hefur þig í að byrja á næsta verkefni.

Algengt er að fólk upplifi á einhverjum tímapunkti ævinnar einhvers konar miðaldrakrísu. Sem í sumum tilfellum mætti kalla einhvers konar lífsstefnukrísu, því varla telst það að vera 35 ára nokkur aldur. Í ágætri grein á vefsíðunni Forbes má lesa meira um almenna krísu sem fólk getur upplifað um eða yfir miðjum aldri, sjá nánar HÉR.

En við ætlum að halda áfram að rýna í krísuna sem fólk getur upplifað í vinnunni sinni. Þótt allt annað sé í fínu standi, svo sem heimilið, fjölskyldan, parsambandið, heilsan eða áhugamálin.

Það sem þú getur gert ef þú telur þig vera að upplifa einhvers konar krísu í vinnunni eða starfsframanum, gætu leiðir itl lausna til dæmis verið:

  • Frí, hvíld

Að taka sér smá frí frá vinnu til að átta okkur á málunum gæti reynst vel. Sérstaklega ef niðurstaðan er kannski sú að upplifunin þín er nær því að vera kulnun en miðaldrarkrísa

  • Hvað viltu?

Annað er að spyrja okkur sjálf stóru og erfiðu spurninganna. Sem oft vlija gleymast í áranna rás, við verðum svo upptekin í því að sinna börnum, heimili og öllu því sem fylgir. Stóra spurningin hér er: Hvað viltu?

  • Hristu aðeins upp í rútínunni þinni

Enn eitt atriðið gæti verið að hrista svolítið upp í okkur sjálfum með því að breyta einhverju í vinnunni okkar. Hér er ekki verið að tala um neitt drastískt heldur einfaldlega að skoða hvort það séu einhver lítil atriði sem þú gætir gert öðruvísi. Byrjað daginn á öðrum verkefnum en venjulega? Snúið forgangsröðun verkefna við yfir vikuna? Eitthvað sem þú vilt læra til að betrumbæta þig í einhverju? Hér er gott að reyna að hugsa aðeins út fyrir boxið.

  • Leiðinlegir eða skemmtilegir vinnufélagar

Leiði getur verið smitandi en það sama má segja um jákvæðni og bros. Mögulega gæti það hálpað þér að taka markvisst ákvörðun um að vera meira í kringum jákvæða fólkið í vinnunni, en forðast það fólk sem líklegast er til að nöldra eða vera þungt í skapi.

  • Ertu tilbúinn í erfða ákvörðun?

Loks er það spurningin um það hvort þú teljir þig tilbúinn/tilbúna til að taka erfiða ákvörðun. Því í sumum tilvikum endar fólk með að hætta í vinnunni sinni og jafnvel skipta algjörlega um gír. Sumir skella sér jafnvel í nám eða breyta alfarið um starfsvettvang og hlutverk. Allt þó að vel huguðu máli. Því þá er okkur allir vegir færir.


Tengdar fréttir

Eftirlaunaaldurinn og tilfinningastigin fimm

Þegar að við missum ástvin förum við í gegnum fimm stig í sorgarferlinu og þau tilfinningastig eru þau sömu og þegar að við missum vinnuna.

Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum

Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×