Atvinnulíf

Einkenni algengra aldursfordóma á vinnustöðum

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Veist þú í hverju einkenni aldursfordóma felast á vinnustöðum? Það langar engum að upplifa aldursfordóma þegar að við eldumst.
Veist þú í hverju einkenni aldursfordóma felast á vinnustöðum? Það langar engum að upplifa aldursfordóma þegar að við eldumst. Vísir/Getty

Aldursfordómar hafa orðið nokkuð undir í umræðum síðustu ára um fordóma á vinnustöðum og forvarnir gegn þeim. Meira er rætt um aðgerðir og forvarnir gegn kynfordómum, kynvitund, kynhneigð, þjóðerni og trú. 

En flest öll eldumst við og því eru aldursfordómar sem eru allra hagur að séu ekki til staðar. Því hvern langar að upplifa þessa fordóma þegar líður að síðustu árum í starfi?

Hér eru nokkur dæmi um einkenni aldursfordóma:

  1. Kennsla á nýjungum, breyttum verkferlum, tækni og fleira er frekar úthlutað eða beint til yngri starfsfólks en eldri
  2. Nýjum verkefnum er síður úthlutað til eldri starfsmanna
  3. Eldri starfsmenn eru skildir út undan
  4. Öðruvísi kröfur um frí, þ.e. þeir sem eiga uppkomin börn eiga sjálfkrafa að dekka sumarfrístímann í vinnu þegar yngra starfsfólk þarf að vera heima vegna barna
  5. Aldurstengt grín sem fólk áttar sig ekki á að geta sært
  6. Eldra starfsfólk fær síður stöðuhækkun eða launahækkun

Ráð til stjórnenda

Ekki gera ráð fyrir að aldursfordómar séu ekki til staðar á þínum vinnustað.

Stjórnendur þurfa að byrja á því að velta fyrir sér sínu eigin viðhorfi eða hegðunarmynstri gagnvart starfsfólki á mismunandi aldri. Hvað er öðruvísi?

Eitt ráðið sem eldra starfsfólki er gefið er að leita til yngra fólks og biðja það um að vera sinn mentor í kennslu fyrir nýjungum, s.s. í tækni. Oft geta skapast skemmtileg tengsl út frá þessu.Vísir/Getty

Ráð fyrir eldri starfsmenn

  • Vertu óhrædd/ur við að læra eitthvað nýtt og biðja um hjálp. Ein sniðug leið getur verið að fá einn af yngri starfsmönnunum til að vera mentorinn þinn. Útkoman getur verið skemmtileg og góð
  • Afsannaðu mýtur um að eldra starfsfólk með því að vera jákvæð/ur gagnvart nýjungum, s.s. nýjum verkefnum, að læra eitthvað nýtt, taka þátt í félagsskap og fleira
  • Dragðu úr sögum frá því í „gamla daga.“ Þú þarft ekki að hætta að segja þær en ef þú minnist gamalla tíma mjög oft ertu í raun sjálf/ur að draga fram aldurinn þinn (en vilt draga úr aldursfordómum)
  • Haltu áfram að reyna að gera betur. Þetta er einkenni ungs fólks á framabraut og ekkert sem segir að þú eigir að slá af þessari kröfu þótt árafjöldinn sé farinn að telja
  • Haltu áfram að vera með augun opin fyrir nýjum tækifærum. Innan sem utan vinnustaðarins. Þetta á einnig við um að virkja þig í félagslegum tengslum og tengslaneti.

Ráð fyrir allt starfsfólk

Er tilefni til aðgerða?

Ef þú telur ástæðu til að vinnustaðurinn þinn grípi til aðgerða, skaltu skrá niður dæmi (dagsetningar, atburðir, setningar osfrv.) sem þér finnst lýsandi aldursfordómar á þínum vinnustað. 

Leitaðu síðan til stjórnenda eða mannauðsstjóra og óskaðu eftir því að málefnið verði rætt og það skoðað.


Tengdar fréttir

Gáttuð á niður­lægingu vinnu­fé­laganna gagn­vart föður hennar

Dóttir manns sem mætti til vinnu eftir þrálát veikindi í fyrradag kveðst gáttuð og sorgmædd yfir móttökunum sem hann fékk hjá vinnufélögum sínum. Hún segir þá hafa niðurlægt föður sinn og ekkert skeytt um heilsufar hans og aðstæður. Fyrirtækið hefur brugðist við málinu og beðist afsökunar.

Á sextugsaldri í atvinnuleit: Þrjú góð ráð

Fólk á sextugsaldri í atvinnuleit þarf að gæta þess að ferilskráin þeirra sé ekki lengri en ein til tvær A4 síður þótt starfsreynslan sé mikil. Þá er um að gera að nýta sér samfélagsmiðlana eins og unga fólkið gerir.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×