Neytendur

Nammigrísir í á­falli yfir verðinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ef grannt er gáð má sjá að um 200 gramma poka er að ræða þótt verðmerkingin sé fyrir 360 gramma poka. Sá sem þetta skrifar hefur gerst sekur um að klára poka af Nóakroppi einn síns liðs. Virðist engu skipta um hvora stærðina sé að ræða.
Ef grannt er gáð má sjá að um 200 gramma poka er að ræða þótt verðmerkingin sé fyrir 360 gramma poka. Sá sem þetta skrifar hefur gerst sekur um að klára poka af Nóakroppi einn síns liðs. Virðist engu skipta um hvora stærðina sé að ræða. Ester Ýr

Verð á hinu vinsæla sælgæti Nóa kroppi er tæplega þrjú þúsund krónur fyrir kílóið í verslunum Nettó. Allt ætlaði um koll að keyra í umræðuhópi þegar einn neytandinn taldi ranglega að verðið væri komið yfir fimm þúsund krónur kílóið.

Vertu á verði - eftirlit með verðlagi er með virkari Facebook-hópum landans. Í verðbólguárferð standa meðlimir vaktina, fylgjast með vöruverði og skapast oft heitar umræður.

Meðlimum hópsins brá í brún þegar einn viðskiptavinur Nettós í Lágmúla birti mynd í hópnum um helgina. Verðmiðinn við 200 gramma pokana af Nóa kroppi sýndi stórum stöfum verðið 1059 krónur. Það hefði þýtt rúmlega fimm þúsund krónur fyrir kílóið.

Misskilningur reyndist á ferðinni því þótt pokarnir hafi verið 200 grömm í hillunni var verðmerkingin fyrir 360 gramma poka. Stærri gerðina, partýútgáfuna. Kílóverðið er því 2942 krónur fyrir kílóið. Sem mörgum þótti engu að síður alltof hátt.

Líkt og með Wham og Duran Duran skiptast nammigrísir Íslands í fylkingar. Annars vegar þeir sem velja frekar Nóa kropp og svo hinir sem kjósa Freyju Hrís. Sá samanburður rataði einmitt í umræðuna og leiddi í ljós að hjá Nettó kostar 200 gramma pokinn af Hrís 729 krónur sem svarar til 3645 króna fyrir kílóið.

Sambó Kúlu-Súkk annað vinsælt sælgæti, fyllt af lakkrís ólíkt Kroppinu og Hrísinu, er nokkuð ódýrara í sömu verslun. 529 krónur fyrir 300 grömm eða 1763 krónur fyrir kílóið.

Er mörgum nammineytandanum nóg boðið og segja óeðlilegt að sælgætið sem hér hefur verið nefnt sé hreinilega orðið dýrara en kjúklingur í einhverjum tilfellum með tilliti til kílóverðs. Þá má nefna að fyrrnefndar vörur eru um tíu prósentum ódýrari í verslunum Bónus og Krónunnar en enn dýrari hjá Hagkaup, Iceland og Krambúðinni.


Hefur verð hækkað óeðlilega mikið? Ertu með dæmi? Sendu okkur línu á ritstjorn@visir.is.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×