Innlent

Vill verða for­maður FEB

Atli Ísleifsson skrifar
Sigurður Ágúst Sigurðsson lét nýverið af störum sem forstjóri Happdrættis DAS.
Sigurður Ágúst Sigurðsson lét nýverið af störum sem forstjóri Happdrættis DAS. Aðsend

Sigurður Ágúst Sigurðsson, fyrrverandi forstjóri DAS, hefur ákveðið að gefa kost á sér til formanns í Félagi eldri borgara í Reykjavík og nágrenni (FEB). Aðalfundur félagsins sem fram fer hinn 21. febrúar.

Greint er frá framboðinu í tilkynningu þar sem fram kemur að hann hafi víðtæka reynslu í aðkomu að uppbyggingu dvalarheimila á vegum Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins, en síðastliðin þrjátíu ár hafi Sjómannadagsráð staðið fyrir uppbyggingu fimm hundruð öryggis- og þjónustuíbúða og átta hjúkrunarheimila. 

„Hann lét nýverið af störfum sem forstjóri Happdrættis DAS, en hann gegndi því starfi í 33 ár og sat stjórnarfundi Sjómannadagsráðs höfuðborgarsvæðisins. Áður starfaði hann sem aðalbókari Hrafnistuheimilanna og sem slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá Slökkviliði Reykjavíkur (nú SHS).

Sigurður er fæddur árið 1953 og ólst upp í Smáíbúðahverfinu í Reykjavík. Hann er kvæntur Guðrúnu B. Björnsdóttur læknaritara og eiga þau þrjár dætur og fjögur barnabörn. Sigurður útskrifaðist úr Verzlunarskóla Íslands og er með próf frá Háskólanum í Reykjavík í fjármálum og rekstri.

Sigurður situr í stjórn Malbikunarstöðvarinnar Höfða en hann hefur enn fremur víðtæka reynslu af stjórnar- og nefndarstörfum. Þá hefur hann setið í fjölda nefnda á vegum dómsmálaráðuneytisins vegna starfa sinna fyrir happdrætti DAS.

Enn fremur hefur Sigurður komið að starfi íþróttahreyfingarinnar, en hann var formaður handknattleiksdeildar ÍR í 4 ár og leikmaður meistaraflokks ÍR og KA í handbolta á yngri árum,“ segir í tilkynningunni. 

Haft er eftir Sigurði að verði hann kjörinn formaður FEB muni hann leggja mitt að mörkum til að viðhalda og bæta það góða félagsstarf sem nú sé rekið innan félagsins. „Þá mun ég berjast gegn því óréttlæti sem eldri borgurum er sýnt á allt of mörgum sviðum, en draga verður verulega úr tekjuskerðingum þess hóps sem fær ellilífeyrir almannatrygginga frá Tryggingastofnun,“ segir Sigurður og bætir við: „Jafnframt er nauðsynlegt að fleiri úrræði verði í boði í húsnæðismálum aldraða í framtíðinni, en lífaldur fólks fer hækkandi og eldra fólki fjölgandi.“

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×