Konan kvartaði til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa í ágúst á síðasta ári og krafðist þess að fá litunina endurgreidda að fullu og bætur að andvirði litahreinsunar á millisíðu hári.
Samkvæmt verklagi nefndarinnar var hárgreiðslustofunni boðið að svara kvörtuninni. Það gerðu þau í nóvember sama ár. Gagnaöflun vegna málsins lauk í upphafi febrúar á þessu ári og var kveðinn upp úrskurður þann 5. febrúar.
Þjónustan ekki í samræmi við óskir
Í kvörtun konunnar kom fram að þjónustan hafi ekki verið í samræmi við hennar óskir. Hún hafi beðið um að ljósar strípur yrðu settar í dökka rót hennar og gylltur eða gulur tóner í aflitaða enda hársins. Hún hafi sýnt starfsmanni myndir sem hafi sýnt þá útkomu sem hún hafi viljað fá. Útkoman hafi svo verið allt önnur. Hún hafi verið alveg aflitaða rót og gráfjólubláan lit í enda hársins í stað þess gula tóns sem hún hafði óskað eftir.
Konan kvartaði samdægurs til stofunnar og var boðið að koma í lagfæringu daginn eftir. Í lagfæringunni óskaði hún eftir því að hár hennar yrði litahreinsað til að ná gráa tónernum úr hárendunum og að rótin yrði lagfærð svo það sæist að hún hefði farið í strípur en ekki heillitun. Starfsmaðurinn var ekki við því heldur heillitaði hárið í millibrúnum lit og tónaði hárendana í hlýbrúnum lit.
Erfitt að lita þurrt hár
Starfsmaður hafi svo fullyrt að það væri vegna ástands hárs konunnar sem svo fór fyrir lituninni en það var mjög þurrt. Sé hárið þurrt sé hvorki auðvelt né gott að lita það.
Þegar konan var svo beðin að greiða fyrir lagfæringarnar neitaði hún því og vísaði til þess að lagfæringin hafi heldur ekki verið í samræmi við það sem hún bað um. Eftir það kvartaði hún svo til kærunefndarinnar.
Í svörum hárgreiðslustofunnar til kærunefndarinnar kemur fram að starfsmaðurinn hafi samtals varið níu klukkustundum í að laga hár hennar auk þess sem miklu magni efna hafi verið varið í bæði upprunalegu litunina og svo lagfæringuna. Þá segir að tap þeirra sé umtalsvert enda sé kostnaður við laun, efni og annað tengt þjónustunni mun meiri en sú fjárhæð sem sóknaraðili greiddi fyrir þjónustuna.
Í niðurstöðu nefndarinnar er fallist á það að eftir lagfæringu hafi hár konunnar ekki verið í samræmi við það sem hún hafi óskað eftir og ekki bætt úr þeim mistökum sem voru gerð daginn áður. Því telur nefndin konuna eiga rétt á afslætti af greiðslu fyrir þjónustuna sem þykir hæfilegur 50 prósent og því er stofunni gert að endurgreiða henni 8.500 krónur. Ekki var fallist á kröfu hennar um bætur sem nemi því sem kosti að litahreinsa hárið.