Atvinnulíf

Spreng­hlægi­legt að sjá pabba sinn á dans­gólfinu

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Ólöf Kristrún Pétursdóttir, stjórnarkona í UAK, verkefnafulltrúi hjá KLAK-Icelandic Startups og nemi í hátækniverkfræði í HR, finnst almennt gott að byrja daginn snemma þótt óneitanlega sé það freistandi á köldum vetrarmorgnum að liggja undir hlýrri sænginni.
Ólöf Kristrún Pétursdóttir, stjórnarkona í UAK, verkefnafulltrúi hjá KLAK-Icelandic Startups og nemi í hátækniverkfræði í HR, finnst almennt gott að byrja daginn snemma þótt óneitanlega sé það freistandi á köldum vetrarmorgnum að liggja undir hlýrri sænginni. Vísir/RAX

Ólöf Kristrún Pétursdóttir, stjórnarkona í UAK, verkefnafulltrúi hjá KLAK-Icelandic Startups og nemi í hátækniverkfræði í HR, segist þeim megin í lífinu að hláturinn lengi lífið og á auðvelt með að skella uppúr yfir alls konar hlutum í daglegu lífi.

Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.

Hvenær vaknar þú á morgnana?

„Ég hef alltaf verið mikil morgunmanneskja og finnst gott að byrja daginn snemma. Ég ætla nú samt ekki að neita því að í vetrarmyrkrinu er aðeins hlýrra undir sænginni.“

Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?

„Ég er með fasta morgunrútínu heima og finnst gott að hafa tíma fyrir það. Svo er langbest ef ég næ að koma inn hreyfingu á morgnana. Við vinkonurnar erum duglegar að skipuleggja okkur saman, enda höfum við komist að því að það er miklu erfiðara að skrópa ef hinar eru að bíða eftir manni.“

Hvað í daglegu lífi fær þig alltaf til að hlæja jafn mikið?

Æ, það er svo margt sem fær mig til að hlæja. Það þarf nú ekki meira en að horfa á The Office, spila nýjasta jólaspilið, fylgjast með pabba á dansgólfinu eða spjalla um atburði gærkvöldsins við vinkonurnar. 

Amma Kristrún sagði alltaf að hláturinn lengdi lífið og ég reyni að vera þeim megin í tilverunni.“

Ólöf er alltaf með skrifblokk á sér og þegar henni finnst hún vera að drukkna í verkefnum, getur það skipt sköpum að skrifa bara niður öll verkefnin og halda utan um þau þar. Vísir/RAX

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?

„Efst á baugi hjá mér núna, auðvitað fyrir utan skóla og vinnu, er stjórnarseta í UAK. Vorönn félagsins er að hefjast og undirbúningur fyrir opnunarviðburðinn í fullum gangi. Opnunarviðburðurinn er 24. janúar í Grósku og ber yfirskriftina: Forysta í breyttum heimi. Það er opinn viðburður, ókeypis inn og við fáum til okkar frábæra gesti, þær Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og Rebekku Rún Jóhannesdóttur.

Helsta markmið UAK er að stuðla að jafnrétti, hugarfarsbreytingu og framþróun í íslensku samfélagi. Félagið skapar vettvang fyrir konur til að fræðast, hvetja og efla hver aðra. Það var svo sannarlega byrjunin á ótrúlegu ferðalagi að skrá mig í UAK. Ég hef kynnst þvílíkum kvenskörungum og kem út af hverjum viðburði full eldmóðs og innblásturs. Ég hvet þau sem hafa áhuga að kynna sér starfsemina og mæli auðvitað með því að ganga í félagið á heimasíðu UAK.

Mér finnst alltaf gaman þegar það er nóg að gera og það er ekki minna viðburðaríkt í vinnunni hjá KLAK þessa dagana. Við erum að keyra af stað Gulleggið, stærstu frumkvöðlakeppni landsins, sem hefst með Masterclass í Grósku í dag.“

Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?

„Undanfarið ár hef ég verið með marga bolta á lofti með háskólanáminu. 

Eitt af því sem ég hef tileinkað mér á þessum tíma er að ganga alltaf með skrifblokk. Þegar mér líður eins og ég sé að drukkna í verkefnum, þá hefur það verið algjör „game changer" að skrifa öll verkefnin niður á blað og halda utanum framvindu þeirra þar.

En svo finnst mér líka góð hvatning, þegar verkefnin líta út fyrir að vera óyfirstíganleg, að ímynda mér að ég standi hinumegin við fjallið, horfi tilbaka og hugsi: Þetta hafðist!“

Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?

„Ég ætla nú ekkert að ljúga því, að öll kvöld séu eins hjá mér. Ég reyni að vera spontant og er dugleg að stökkva í allskonar vitleysu með fólkinu mínu. Kvöldin eru því eins fjölbreytt og þau eru mörg, en svo kemur það nú fyrir að ég komi mér bara vel fyrir í sjónvarpssófanum. Annars finnst mér næs að enda daginn í kvöldsundi og vera komin í háttinn fyrir miðnætti.“


Tengdar fréttir

„Nú skal það takast að setjast yfir bækurnar og klára prófið“

Albert Magnússon, umboðsaðili fyrir Lindex og Gina Tricot, segist sjá svolítið af sjálfum sér í elsta syninum, sem vakir fram á nætur yfir háskólanáminu. Sem eitt sinn var venjan hjá honum en nú er öldin önnur og hann orðinn mjög kvöldsvæfur. Albert segist alltaf upplifa áramótin sem ákveðin kaflaskil og áramótaheitið í ár er að klára flugnámið.

„Hef oft grínast með að langa að verða ruslamálaráðherra“

Sæunn Ósk Unnsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Hopp Reykjavík, segist klárlega samsvara sig við karakterinn í áramótaskaupinu sem endaði með að flokka sjálfan sig. Og telur reyndar að sjálf hafi hún bæði flokkað og endurnýtt sjálfan sig.

Jólabarnið týndist: „Ég er að færast upp skalann aftur, segi sex“

Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar, segist hafa týnt jólabarninu svolítið í sér um tíma. Það er þó að breytast aftur og í dag gefur hún sjálfri sér sex í einkunn sem jólabarn á skalnum 1-10. Með stækkandi fjölskyldu eru nýjar hefðir að bætast við um jólin.

„Ég fæ líklega kartöflu í skóinn á morgun, er það ekki?“

Snorri Jakobsson, hagfræðingur og eigandi Jakobsson Capital segist svo laglaus að hann sé vinsamlegast beðinn um að þegja þegar það er samsöngur. Snorri viðurkennir að stelast stundum í vasareikni eða excel þegar enginn sér til á kvöldin.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×