Gyðingahatur, vinstri sinnar og Kristur Birgir Dýrfjörð skrifar 27. desember 2023 08:30 Grein í Morgunblaðinu 27. 11. ´23 ber yfirskriftina Gyðingaandúð. Höfundur er fyrrverandi kennari. Í upphafi greinarinnar stendur, - „Hatursbylgjur ganga yfir hinn vestræna heim sem af barnaskap og andvaraleysi hefur liðið og stuðlað að innfluttningi fólks með óaðlaganlega menningu, viðhorf, trúarbrögð og siði. Í einfeldni sinni töldu vesturlandabúar að þeir hefðu lagt að baki gyðingaandúð eftir hörmungar seinni heimsstyrjaldarinnar og útrýmingarherferð nasistanna. Reyndin er önnur. Andúðarglóðin slokknaði ekki, heldur var og er blásið að henni af síauknum þrótti. Þar eru að verki innflytjendur frá löndum múslima en ekki síður fylgispakir hópar vinstri sinna og annarra öfgamanna“, svo mörg eru þau orð. Hér er reiður kennari hátt til höggs í sleggjudómum. Þeir sleggjudómar hans lýsa svo óvönduðu og meinfýsnu innræti, og barnalegri fávisku um það mál, sem hann þykist dæma, að það líkist helst þekktum viðbrögðum þess hóps mannflórunnar, sem gengur mest á mænunni. Vinstri sinnar Ég er vel sáttur við það, að vera skilgreindur vinstri sinni, en ég frábið mér að það sé ástæðan fyrir fyrirlitningu minni á harðlínustjórn síonistanna í Ísrael. Satt best að segja þá minnir framkoma þeirra óþægilega mikið á framkomu nasista. Guðrún Brunborg, sú mæta kona, sagði frá á samkomum sínum á Íslandi hvernig nasistarnir höguðu sér þegar þýskum hermanni var banað í Noregi, þá smöluðu þjóðverjar íbúum saman og völdu þar úr nokkrar manneskjur, sem þeir stilltu upp fyrir framan íbúana og skutu þá. Þannig voru allir íbúar gerðir ábyrgir og refsað fyrir dráp á þýskum hermanni. Aðferð harðlínu-síonista í dag er sú sama. Þeir gáfu fólki fyrirmæli að fara til suður-Gasa. Þegar götur og torg voru troðin af fólki, þá sögðu stjórnendur að þar á meðal um væru Hamas liðar, sem yrði að drepa, þeir gátu þó ekki þekkt þá úr og Þá höfðu þeir það eins og nasistarnir í Noregi, þeir refsuðu öllum íbúum Gasa fyrir Hamas, og sprengdu og skutu og drápu konur, börn, gamalmenni og sjúklinga, og nú hafa þeir bætt síðasta skjólinu við, - flóttamannabúðum. Þeir glæpir eru ástæða fyrirlitningar minnar á sjórn Ísraels, ekki að ég er vinstri maður. Ástæðan er, að ég er manneskja. Það er lágkúruleg lítilsvirðing gagnvart þúsundum Íslendinga, að láta að því liggja að hægri sinnar í pólitík séu samþykkir glæpaverkum ríkisstjórnar Ísrael. Ég hef einlæga samúð með saklausu fólki í Ísrael vegna þess haturs, sem yfir það er kallað nú. Gamla testamenti, Kóran og Kristur Í grein sinni vísar kennarinn í Kóran Múhameðs og vitnar þá í SÚRU 9:14. Hann bætir svo við eigin túlkun á þeirri súru (Sjá Kóran, Þýðingu Helga Hálfdánarsonar 2. útg. bls. 106 ) og eftir þá viðbót sína fullyrðir hann, að ástandið í Ísrael megi rekja til grimmdar í kenningum Múhameðs. Sé það rétt, að rekja megi stríðið á Gasa til gamalla trúarsetninga múslima, þá má líka rekja barnadrápin sem gyðingar stunda nú til frásagna í gömlum trúarritum þeirra? Í Konungabók 2. Kafla 23 og 4, segir frá Elísa nokkrum sem strákahópur kallaði til „burt með þig skalli! Burt með þig!“ Hann formælti þeim í nafni Jehova, sem brást vel við og sendi tvær birnur úr skóginum, sem rifu 42 drengi í tætlur. Líkt og sprengjur gyðinga tæta nú börnin í Gasa. Gamla testamentið boðar lögmál gyðinga um hefndina. Auga fyrir auga, og tönn fyrir tönn. Það er skylda og réttur gyðinga samkvæmt trú þeirra. Kristur Fyrir liðlega 2 þús. árum var ungur gyðingur í Galíleu, sem lýsti frati á hatrið í lögmáli gyðinga. Hann blés á lögmálið um „auga fyrir auga og tönn fyrir tönn.“ Hann boðaði kærleika, miskun og fyrirgefningu 7x70 sinnum skyldi fyrirgefa. Hann hét Jesús, sonur Jóseps og Maríu, sem kölluð er mey. Síðar var þessi ungi uppreisnarmaður kallaður Kristur. Valdastéttum gyðinga stafaði ógn af boðskap þessa unga manns. Ekkert hatur, engin hefnd. Hann vildi ekki einu sinni samþykkja, að grýta hórkonu til dauða. Hann sagði bara „sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum.“ Svo þvældist þessi náungi um landið og hélt útifundi, og boðaði að fólk ætti að temja sér kærleika og miskunnsemi í stað auga fyrir auga. Það sem verra var fólk var farið að elta hann á milli þorpa, og margir farnir að trúa þessu hættulega rugli, sem braut í bága við hefnd gyðinga, hann smánaði lögmálið. Það var dauðasök. Ráðamenn gyðinga nelgdu því Jesús, þennan brjálaða byltingarmann, á kross. Þar skyldi hann hanga og kveljast til dauða öðrum til viðvörunar, og kenningar hans þá gleymast lýðnum. Það fór þó öðruvísi með gleymskuna en gyðingarnir ætluðu eins og alkunnugt er í dag. Jafnvel „vinstrisinnar“, sem kennarinn sakar um gyðingahatur segja, að kenningar Krists um samskipti manna séu fyrirmynd þess, sem jafnaðar og samvinnufólk boðar sem sína stefnu. Fríkirkjan í Reykjavík Allar þjóðir þrá og vilja frið. Hann verður þó að hefjast með einlægu samtali allra aðila. Á jólum árið 2022 komu fram í sjónvarpsmessu í Fríkirkjunni fulltrúar margra trúarbragða; Múslima, kristinna og gyðinga o.fl. Allir undir sama þaki að fræða um sína trú. Það var mögnuð stund. Öll þau trúarbrögð boða mannhelgi og gagnkvæma umhyggju meðal iðkenda þeirra. Lofsvert framtak Fríkirkjunnar sannaði hvað hægt er að gera þegar vilji er til staðar. ES: „Fátt er svo með öllu illt,að ekki fylgi eitthvað gott“ segir í gömlum málshætti. Það sem mér finnst gott í grein kennarans er í undirskrift hans. Þar stendur; „Fyrrverandi kennari“. Höfundur er rafvirkjameistari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birgir Dýrfjörð Trúmál Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson Skoðun Bönnum Rússa en ekki Ísraela Sigurlaug Knudsen Stefánsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Skoðun Íslenskir bændur berskjaldaðir í boði RÚV Heiðbrá Ólafsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar Skoðun Hvernig losum við bílinn? Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar Sjá meira
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar
Skoðun Stærsta hættan við gervigreind er ekki tæknin heldur hik stjórnenda Gísli Rafn Ólafsson skrifar
Skoðun Að geyma þá í myrkri: Varðhaldsmiðstöðin sem Ísland á ekki að reisa Nichole Leigh Mosty skrifar
Af hverju vill ríkisstjórnin neyða bændur til að taka á móti norskum froskköfurum? Arndís Kristjánsdóttir Skoðun