Innlent

Stjórn KFUM og KFUK biðst af­sökunar vegna glæpa séra Frið­riks

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Séra Friðrik Friðriksson stofnaði KFUM og sömuleiðis íþróttafélögin Val og Hauka.
Séra Friðrik Friðriksson stofnaði KFUM og sömuleiðis íþróttafélögin Val og Hauka. Vísir/Vilhelm

Vitnisburðir liggja fyrir, hafnir yfir skynsamlegan vafa, um að séra Friðrik Friðriksson, stofandi KFUM og KFUK, hafi áreitt pilta kynferðislega og farið yfir mörk þeirra.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórn KFUM og KFUK á Íslandi.

Þar segir að í lok október síðastliðnum hafi KFUM og KFUK boðið þeim sem höfðu orðið fyrir kynferðislegri áreitni eða ofbeldi af hálfu Friðriks, eða þeim sem hefðu heimildir um slíkt, að stíga fram og greina frá reynslu sinni.

Opnaður hafi verið formlegur farvegur með milligöngu tveggja reyndra fagmanna.

„Í gegnum þennan farveg hafa nú komið fram vitnisburðir, hafnir yfir skynsamlegan vafa, um að sr. Friðrik Friðriksson, stofnandi KFUM og KFUK, hafi í skjóli virðinarstöðu sinnar farið yfir mörk í samskiptum við drengi og áreitt þá kynferðislega.

KFUM og KFUK biður hér með þolendur einlæglega afsökunar,“ segir í tilkynningunni.

„Við hörmum að félagið hafi ekki verið vakandi fyrir þessari hegðun stofnandans á sínum tíma, en sr. Friðrik lést árið 1961.

Stjórn KFUM og KFUK þakkar þeim fjölmörgu sem hafa látið sig málið varða og hafa með margvíslegum hætti lagt lið í þessu uppgjöri við fortíðina.“

KFUM og KFUK umberi ekki kynferðislega áreitni eða ofbeldi og öryggi og velferð barna sé í fyrirrúmi.

„Við gerum afar strangar kröfur til þeirra sem starfa með börnum og ungmennum á vettvangi samtakanna. Þau þurfa m.a. að standast ítarlega bakgrunnsathugun og fá einnig þjálfun og uppfræðslu um siðareglur, barnavernd og mörk í samskiptum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×