Lífið

Röddin kom dóm­nefndinni heldur betur á ó­vart

Stefán Árni Pálsson skrifar
Arnar Freyr flutti sitt lag með stæl.
Arnar Freyr flutti sitt lag með stæl.

Arnar Freyr tvítugur nemi og starfsmaður í vörudreifingu kom heldur betur á óvart í dómaraprufu í Idol þætti gærkvöldsins á Stöð 2.

Arnar mætti og flutti lagið Something in the Orange eftir Zach Bryan.

„Þetta var óvænt rödd. Bara rosalega þroskuð og flott,“ sagði Bríet eftir að Arnar hafði flutt sitt lag.

Allir dómnefndinni voru sammála um að rödd Arnars hafi komið þeim skemmtilega á óvart eins og sjá má hér að neðan. 

Áskrifendur Stöðvar 2 og Stöðvar 2+ geta aftur á móti séð þáttinn frá því í gærkvöldi í heild sinni í frelsiskerfi Stöðvar 2 og á Stöð 2+.

Klippa: Röddin kom dómnefndinni heldur betur á óvart





Fleiri fréttir

Sjá meira


×